Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Neytandi vikunnar: „Væri til í að sjá okkur á Íslandi leggja meiri áherslu á ferska matarmarkaði“

Neytandi vikunnar: „Væri til í að sjá okkur á Íslandi leggja meiri áherslu á ferska matarmarkaði“

Neytandi vik­unnar er Halldóra Mogensen 41 árs, þing­flokks­for­maður Pírata sem leiðir nú list­ann fyrir kom­andi kosn­ingar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Halldóra býr ásamt mann­inum sínum og tveimur börnum, sjö mán­aða syni þeirra og 10 ára gam­alli dóttur Halldóru úr fyrra sam­bandi. Halldóra hefur flakkað mikið um ævina en ólst upp í Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Halldóra seg­ist aldrei hafa fundið sig í skóla eftir að hún flutti heim til Íslands, þá í 10. bekk. Hún helt­ist úr námi 17 ára og fór að vinna. Halldóra hefur mest­megnis unnið við þjón­ustu­störf um ævina, í versl­unum, á veit­inga­stöðum, börum og við ferða­þjón­ustu í nokkur ár áður en hún hóf störf sem þing­maður.í

Hve miklu eyðir fjölskyldan í mat og aðrar rekstrarvörur heimilisins á mánuði og

hvar verslar hún helst ?

„Við verslum helst í Krónunni þar sem finna má gott úrval af líf­rænum mat og glút­en­lausum en við erum öll fjöl­skyldan með glúten óþol sem versn­aði til muna eftir að við lentum í myglu­veik­indum. Við verslum líka í Mela­búð­inni en þar er hægt að finna allt sem vantar upp á eftir Krónu­ferð­ina, með ólík­indum hversu miklu er hægt að koma fyrir í svona litlu rými! Hversu miklu við eyðum í mat er mjög breyti­legt eftir vinnu og aðstæðum hverju sinni “.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

„Við höfum verið að temja okkur það að gera ein stórinn­kaup á viku til þess að fækka snatt­ferð­unum sem eiga það til að verða dýr­ari en upp­haf­legt erindi áætl­aði. Þá höfum við­einnig verið að styðj­ast við mat­ar­plan fyrir kvöld­mat vik­unnar en það er ótrú­lega erfitt að styðj­ast við það þegar vinnu­tím­inn er jafn óreglu­legur og ófyr­ir­sjá­an­legur og á þingi. Ég myndi helst vilja breyta því hversu lítið úrval er af líf­rænum kjöt­vörum hér á landi.Það er ekki hægt að nálg­ast líf­rænt, gras­bít­andi naut svo ég viti til og næst því sem ég hef­komið að finna líf­rænan kjúkling er sýkla­lyfja­lausi kjúkling­ur­inn sem fæst í Mela­búð­inni. Mér finnst einnig vont hvað við notum mikið af erfða­breyttu fóðri í dýra­haldi. Ég hefði talið það vera heilla­væn­legt skref fyrir íslenskan land­búnað að færa okkur mun meira yfir í líf­rænt enda höfum við alla burði til þess “.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er ?

„Já, í fyrsta skipti á mínum vinnu­ferli hef ég getað lagt fyrir und­an­farin ár. Styðst bæði við sér­eign­ar­sparnað og svo almennan reikn­ing eins og er þar sem við erum að safna fyrir fyrstu íbúð­ar­kaup­unum “.

Telur þú álagningu verslana sanngjarna og gerir þú verðsamanburð á vörum og

þjónustu ?

„Mat­ar­k­arfan hefur hækkað tölu­vert. Það vill svo til að mað­ur­inn minn er einmitt í þessum skrif­uðum orðum að taka saman kvitt­anir yfir mat­ar­inn­kaup síð­ustu mán­aða til að gera sam­an­burð. Það verður fróð­legt að sjá hvað kemur út úr þeirri vinnu “.

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

„Ég er ekki með nein lán enda hef ég aldrei keypt mér neitt af viti. Keypti minn fyrsta bíl þegar ég komst inn á þing árið 2016 og á hann enn. Nú erum við að skoða það að kaupa okkar fyrstu íbúð og þá skiptir máli að velja rétt. Mín upp­lifun af þessu öllu saman er að það er allt of mikil áhætta sem felst í því að tryggja öruggt skjól fyrir fjöl­skyld­una. Þetta er ein af grunn­þörfum okkar og alveg galið að þess­ari stærstu og mik­il­væg­ustu fjár­fest­ingu fylgi svona mikil áhætta fyrir lán­tak­endur á meðan að bank­inn fær að tryggja í bak og fyrir að hann græði alltaf, eins og spila­vítin “.

 Umhverf­is­vernd, skiptir hún þig máli ?

„Já, umhverf­is­vernd skiptir mig miklu máli og geri ég mitt besta sem neyt­andi að haga mér í sam­ræmi við mik­il­vægi mála­flokks­ins en mér finnst skipta máli að við gerum kröfu til fyr­ir­tækja og þá sér­stak­lega stór­fyr­ir­tækja að gjör­bylta fram­leiðslu­ferlum og öðrum rekstri og að við gerum kröfu til stjórn­mála­fólks að setja það í for­gang að end­ur­hugsa hag­kerfið okkar og hvatana þar til að tryggja áfram­hald­andi líf­væn­leika plánet­unnar fyrir kom­andi kyn­slóðir. Þunginn á lofts­lags- og umhverf­is­að­gerðum á ekki að hvíla á herðum neyt­enda enda er það lít­ill hluti mann­kyns sem býr við þann efna­hags­lega sveigj­an­leika sem er nauð­syn­legur til að hafa tök á því að haga neyslu sinni á sem umhverf­is­vænstan hátt “.

Annað sem þú vilt taka fram ?

„Ég væri til í að sjá okkur á Íslandi leggja meiri áherslu á ferska mat­ar­mark­aði. Vörur beint frá býli, ferskur fisk­mark­aður við höfn­ina, græn­met­is­mark­aður, aukin áhersla á fjöl­breyti­leika og sér­stöðu mat­vara frá mis­mun­andi lands­hlutum og býlum. Svo mættum við alveg lækka raf­magns­kostnað fyrir græn­met­is­bændur og stuðla að auknu sjálf­bærni okkar í mat­væla­fram­leiðslu “.

 Hvaða mál og mála­flokkar telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á ?

„Við verðum að fara að leggja meiri áherslu á þá hug­mynda­fræði sem stýrir sam­fé­lag­inu okkar og skoða hvort hún þjóni okkur inn í fram­tíð­ina. Við þurfum að horfast í augu við ákveðnar grund­vall­ar­spurn­ingar um gagn­semi þeirra kerfa sem við höfum sniðið okkur, hvort þau séu raun­veru­lega að þjóna heild­inni og byrja að takast á við rót vanda­mál­anna í stað þess að plástra mein sem eru inn­gróin og kerf­is­læg. Mik­il­væg­ast er að byrja á efna­hags­kerfi sem grund­vall­ast af hug­mynda­fræði um línu­legan, óend­an­legan hag­vöxt á plánetu sem hefur ekki yfir óend­an­legum auð­lindum að ráða. Við þurfum að styrkja lýð­ræðið og efla traust á stjórn­málum með bættum vinnu­brögðum og lýð­ræð­is­legum ferlum sem tryggja aðkomu almenn­ings alls, ekki bara sér­hags­munafla, að stefnu­mótun, samn­ingu laga og ákvarð­ana­töku. Aðkoma almenn­ings að ákvörð­un­ar­töku er gíf­ur­lega mik­il­væg þar sem hún hefur þær afleið­ingar að dreifa vald­inu sem og ábyrgð­inni. Með vald­efl­ingu almenn­ings drögum við úr spill­ingu og vald­eflum á sama tíma þing­menn til að finna nauð­syn­legt hug­rekki í að knýja fram þær breyt­ingar sem þörf er á til að geta mætt fram­tíð­inni með áætlun sem þjónar heild­inni og þar af leið­andi fram­þróun sam­fé­lags­ins alls “.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð