Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Grétar skaut stúlku til bana á Skeiðarársandi

Grétar skaut stúlku til bana á Skeiðarársandi

Þann 16. ágúst 1982 fannst 21 árs gömul stúlka skotin til bana á Skeið­ar­ár­sandi á Suð­aust­ur­landi. Hin látna reynd­ist vera Yvette Bahuaud, franskur ferða­maður.

Þakkir til „sheriffsins“

Syst­urnar Yvette og Marie Luce Bahuaud, 29 ára, voru staddar saman á Íslandi að ferð­ast um landið. Þær systur stóðu við afleggjar­ann að Höfn í Horna­firði og ætl­uðu sér að húkka þar far áleiðis inn í Skafta­fell. Þar tók Grétar Sigurður Árnason, sem þá var á fimm­tugs aldri, stúlk­urnar upp í og bauðst til að aka þeim. Sagðist hann starfa við að gæta öryggis á vegum og ók hann bíl sem syst­urnar héldu að væri lög­reglu­bíll.
Hann keyrði stúlk­urnar að sælu­húsi á Skeið­ar­ár­sandi, þar sem hann skildi við þær án nokk­urra máleng­inga og hélt leiðar sinnar.

Sælu­húsin sem syst­urnar gistu í

Stúlk­urnar fengu sér kvöld­mat og skrif­uðu í gesta­bók sælu­húss­ins þar sem þær þökk­uðu „sheriffnum“, eins og þær köll­uðu Grétar, fyrir að hafa ekið þeim þessa löngu leið. Fóru þær svo að sofa.

Veitti henni þung högg

Grétar kom hins vegar aftur í sælu­húsið síðar um kvöldið.
Samkvæmt vitn­is­burði Marie vökn­uðu þær systur við að Grétar stæði við dyrnar á sælu­hús­inu þar sem þær sváfu, með riffil í ann­ari hendi og vasa­ljós í hinni. Hann til­kynnti stúlk­unum að þær ættu að koma með sér til Hafnar þar sem lög­reglan á Akureyri hafi sagt honum að þær reyktu hass og beðið hann um að taka þær.
Marie sagði hann hvorki hafa litið út fyrir að vera æstur né undir áhrifum vímu­efna.

Syst­urnar neit­uðu að fara með honum og sögð­ust ekki reykja hass. Hann hélt áfram að reyna fá stúlk­urnar með sér en án árang­urs og tók hann þá að reið­ast, að sögn Marie. Endaði það með því að hann fór út og kom inn aftur með stein eða málm­hlut sem hann sló Marie í höf­uðið með og réðst því næst á Yvette sem flúði grát­andi út.

Þá réðst Grétar aftur að Marie og veitti henni nokkur mjög þung högg sem leiddu til þess að hún missti með­vit­und.

Lét sem bílslys hefði átt sér stað

Eftir að Marie komst aftur til með­vit­undar sagð­ist hún hafa heyrt systur sína hrópa, síðan heyrði hún skot, annað hróp og svo annað skot. Stuttu síðar heyrði hún bíl vera settan í gang.

Grétar hafði þá fundið Yvette við afleggjar­ann að Sælu­hús­inu. Og taldi sak­sókn­ari máls­ins að hann hafi skotið hana þá af full­komnum ásetn­ingi, með hagla­byssu, af 35 til 40 metra færi. Í þann mund kom þar að flutn­inga­bíll.
Grétar náði hins vegar að blekkja bíl­stjór­ann sem var land­vörður og sagð­ist hafa keyrt á stúlk­una og bað hann um að sækja aðstoð.

Samkvæmt bíl­stjór­anum mætti hann grænum Mercedes Benz og fyrir utan bíl­inn hefði legið stórslösuð stúlka og öku­mað­ur­inn. Stúlkan bað í sífellu um hjálp og reyndi að kalla eitt­hvað, en bíl­stjór­inn fór að sækja aðstoð enda hafði hann enga ástæðu til að vefengja frá­sögn manns­ins um að þarna hefði orðið bílslys. Því ók hann í flýti upp í Skafta­fell og fékk þar aðstoð lög­regl­unnar.

Náði að staulast út

Lög­reglu­maður og land­vörð­ur­inn fóru saman í átt að meintum slys­stað, en þar var engan að finna. Þeir óku áfram og birt­ist þá skyndi­lega stúlka í ljós­geisla lög­reglu­bíls­ins, var þar Marie á ferð.

Eftir að Marie komst til með­vit­undar hafði hún því náð að staul­ast út úr sælu­hús­inu og niður að vegi. Bless­un­ar­lega fann lög­reglan og land­vörður hana og var Marie flutt með sjúkra­flugi til Reykja­víkur þar sem hún gekkst undir höf­uð­að­gerð vegna áverk­anna sem hún hlaut.

Lík Yvette finnst

Snemma næsta dag fannst bif­reið Grétars við Neskvísl við Svína­fells­jökul. Var hann hvergi að finna en í skotti bif­reið­ar­innar fannst lík frönsku stúlkunnar. Voru á því miklir áverkar og skotsár.

Stað­ur­inn þar sem bíll Grétars fannst. Við bíl hans stendur lög­reglu­bíll og er gæslu­þyrla að hefja sig til lofts í leit­ar­flug.

Var Grétars leitað í sól­ar­hring þangað til hann fannst neð­ar­lega í hlíðum Hafra­fells, neðan Illu­kletta. Hafði hann hlaðið sér byrgi þar. Sýndi hann engan mót­þróa að koma með leit­ar­mönn­unum og afhenti skop­vopn sín möglu­laust, en þegar hann fannst var hann vopn­aður riffli og hagla­byssu.

Játaði hann bæði að hafa banað Yvette og veitt systur hennar höf­uð­á­verka.

Þann 28. Júní 1983 var hann dæmdur til 16 ára fang­els­is­vistar.

Hótaði að nota skotvopn sitt

Grétar bjó um tíma á Akureyri, en þar hafði lög­regla haft afskipti af honum og þótt ástæða til að taka af honum byssu. Var það gert af örygg­is­á­stæðum en hann þótti ofbeld­is­hneigður og hafði haft í hót­unum um að nota byss­una.
Einnig hafði Grétar komið við sögu lög­regl­unnar vegna ávís­ana­mis­ferlis og víx­ilsvika og er hann sagður hafa hrökkl­ast til Dan­merkur vegna fjár­mála­mis­ferlis. Þaðan hafi hann svo flutt í Öræfasveit­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ