Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Sigtryggur alltaf verið sjúkur í sjóinn og kominn með pungapróf: „Ég er stundum of bjartsýnn“

Sigtryggur alltaf verið sjúkur í sjóinn og kominn með pungapróf: „Ég er stundum of bjartsýnn“

„Móðir mín sagði mér að ég hafi verið sjúkur í sjó­inn alveg frá blautu barns­beini,“ segir Sig­tryggur Bald­urs­son, tón­list­ar­maður og fram­kvæmda­stjóri Útflutn­ings­skrif­stofu íslenskrar tón­listar (ÚTÓN). „Ég fædd­ist í Noregi og bjó fjöl­skyldan niðri við strönd þangað til ég varð 2 ára og bæði mamma og eldri systir mín hafa sagt að ef þær létu mig frá sér í sand­inn þegar ég var lít­ill þá hafi ég skriðið bein­ustu leið út í sjó­inn eins og skjald­baka.“

Hafið bláa hafið hug­ann dregur.

„Það er í raun­inni á seinni árum sem ég hef farið að lað­ast meira að sjónum. Það er ákveðin dásam­leg mistería í því hvernig maður lað­ast að hlutum eða fólki; blessuð ástin. Sjórinn er eitt af höf­uð­el­em­ent­unum og maður sækir í ákveðna orku eða still­ingu í hann. Ég sæki þangað ákveðið jafn­vægi. Ein­hverjir sem trúa á stjörnu­speki myndu segja að það sé vegna þess að ég er vog. Ég held að allir leiti að jafn­vægi í sál­ina í hvaða stjörnu­merki sem þeir eru í. Ég held að það hafi ekk­ert með þetta að gera. Ég lað­ast að sjónum. Ég hef farið í sjó­sund og mér finnst það vera voða gaman en mér finnst bara yfir­leitt vera svo kalt. Ég hef prófað það og hef buslað; ég labba stundum út í fjöru rétt hjá heim­ili mínu og hendi mér út í og syndi aðeins. Svo hef ég farið í Naut­hóls­vík og synt þar svo­lítið.“

Nei, Sig­tryggur er ekki nógu hrif­inn af sjó­sundi.

„Þá er betra að vera á kajaknum.“

Fílósófískt róðarí

Kajakinn.

„Ég eign­að­ist kajak fyrir nokkrum árum. Það komu fram kajakar sem ég kalla „idiot-proof“. Þeir eru kall­aðir „sit on“ kajakar í stað­inn fyrir „sit in“. Maður situr ofan á þeim en ekki inni í þeim. Þeir eru rosa­lega stabílir og maður þarf ekki að vera mjög flinkur; maður þarf ekki að læra að verða ræð­ari til þess að geta róið þeim. Það er rosa­lega ein­falt að eiga við þá. Mér fannst þetta vera svo heill­andi; að geta fengið sér kajak, labbað með hann niður í sjó, en ég bý rétt hjá sjónum, róið út og veitt sér fisk í soðið. Ég bý á Kárs­nes­inu í Kópavogi og fór að vinna í því að finna fiski­mið fyrir utan Álftanes til að geta róið til fiskjar. Svo er það reyndar „practical“ afsökun til að fara út að róa.“

Sig­tryggur seg­ist hafa æft sig í að detta í sjó­inn og fara aftur upp í kajak­inn.

„Ég tók sjálfan mig aðeins í gegn í „basic“ örygg­is­at­riðum. Nei, nei. Ég er voða­lega var­kár þannig séð. Ég ræ yfir­leitt í félags­skap við ein­hverja aðra. Jú, jú, ég hef farið í ein­hverjar sól­ó­ferðir. Það er líka gaman. Ég hef meira gaman af ein­hverju létt­fíló­sófísku róðaríi heldur en að gera eitt­hvað sem er hættu­legt.“

Sig­tryggur upp­lifir umhverfið auð­vitað allt öðru­vísi úti á sjó en ella.

„Ég tók strax eftir því þegar ég byrj­aði að róa út á fjörð­inn þar sem ég bý og byrj­aði að róa út á Álftanes og þar í kring að maður sá umhverfi sitt allt í einu frá öðrum sjón­ar­hóli heldur en maður var vanur. Það er svo­lítið sjar­mer­andi að fá annað sjón­ar­horn á til­ver­una. Það er það sem ég kalla fíló­sófískt róðarí. Þarna er maður strax kom­inn með annað sjón­ar­horn á til­ver­una og kom­inn í allt annað umhverfi sem er samt alveg við dyra­staf­inn hjá manni. Ég fæ aðra upp­lifun af nærum­hverf­inu. Mér finnst það vera rosa­lega sjar­mer­andi. Náttúran er alls staðar í kringum okkur. Það þarf ekki að fara í Þórsmörk til að fá nátt­úr­upp­lifun. Ég get farið út á kajak og róið 50 metra frá hús­inu mínu og þá er ég kom­inn í ein­hverja nátt­úru­upp­lifun sem er allt önnur heldur en að fara upp í Þórsmörk með fullri virð­ingu fyrir því. Það sem ég er að segja með þessu er að þetta er allt í kringum okkur. Það þarf bara að opna augun og taka betur eftir þessu.“

Með pungapróf

Sig­tryggur seg­ist eiga skemmti­legan tengda­son í Gauta­borg og að hann reyni að heim­sækja dóttur sína og fjöl­skyldu hennar þar í borg eins oft og hann getur.

„Hann vissi af þessu báta­blæti mínu og fór að senda mér í kóvinu í fyrra­vor myndir af skútum sem voru til sölu í Gauta­borg. Þetta voru mjög fal­legar skútur. Hann var að fylgj­ast með verð­inu á þeim og ég hélt að hann væri að grín­ast af því að þær voru svo ódýrar. Ég hélt án gríns að það vant­aði eitt núll á verðið. Svo fór ég að spyrja hann hvort þetta væri raun­veru­legt verð og hann sagði svo vera. Þetta voru fárán­legar tölur. Það er næstum því hægt að fá skútur gef­ins í Gauta­borg á vorin. Ég spurði hvernig stæði á þessu. Þá er ástæðan að það er offram­boð. Rík­is­stjórn Olavs Palme ákvað á 8. ára­tugnum að skútu­sport og sigl­ingar skyldu verða alþýðu­sport í Svíþjóð en ekki elítu­sport eins og það er víð­ast hvar ann­ars staðar í heim­inum. Og hvernig fóru þeir að því? Jú, það var búið til nýtt efni, trefja­plast, sem var farið að nota mikið í báta­smíði þannig að þeir studdu við litlar trefja­plasts­fa­brikkur, báta­verk­smiðjur, svo voru iðu­lega lítil fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem fóru að fram­leiða mikið af bátum. Svo var þetta, hafn­ar­gjöld og annað, í raun­inni nið­ur­greitt. Þannig að þetta varð að miklu alþýðu­sporti og það var ofboðs­lega mikil fram­leiðsla á skútum á þessu tíma­bili.“

Tíminn leið og sumir skútu­eig­endur vildu fá sér nýja skútu og til varð mikið magn af skútum.

„Það er orðið umfram­magn af skútum sér­stak­lega á þessu svæði þannig að það er hægt að fá skútu á lágu verði á vorin þegar fólk er að hugsa sér til hreyf­ings með báta­kaup. Og við slógum saman í eina skútu. Þetta var eins og við værum að kaupa gamlan skóda; svipað verð. Það er hægt að fá gamla skútu undir hálfri milljón með öllum græjum; segli og öllu dóti.“

Sig­tryggur og eig­in­kona hans fóru svo til Síþjóðar í fyrra­sumar og lærðu að sigla.

„Svo tók ég punga­próf í fyrra­haust. Þannig að þetta er búin að vera upp­lifun.“

Sig­tryggur segir að það hafi verið dásam­legt að vera á skút­unni.

„Maður er í raun­inni með lít­inn, fljót­andi sum­ar­bú­stað og vorum við að sigla á milli eyj­anna í skerja­garð­inum fyrir utan Gauta­borg. Þetta var afskap­lega þægi­leg sigl­ing. Það var lítil úthafs­alda og þetta er voða­lega fal­legt og „idillic“ allt saman. Ég upp­lifði þarna sænskt sumar. Það voru búnar til margar nátt­úru­hafnir þarna fyrir 40-50 árum síðan en settir voru járn­hankar í kletta þar sem maður getur krækt böndum og bundið skút­una þannig við klett. Þannig að maður er með lít­innn, fljót­andi sum­ar­bú­stað sem maður skott­ast í. Það er mjög skemmti­legt.“

Sig­tryggur og eig­in­kona hans ætla til Sví­þjóðar síðar í sumar og ætlar stór­fjöl­skyldan þá að sigla jafn­vel á stóru vötn­unum inni í landi.

„Vänern og Vättern; ég man eftir þessu úr landa­fræð­inni í 12 ára bekk. Það eru skipa­skurðir þarna um allt þannig að það er líka hægt að fara í svo­leiðis ævin­týri sem eru allt öðru­vísi ævin­týri.“

Bogomil og Mikki refur

Það hefur verið til­tölu­lega lygnt á lífs­sigl­ingu Sig­tryggs sem seg­ist vera jákvæður að eðl­is­fari og hepp­inn almennt í líf­inu. Stundum hefur þó gefið á bát­inn í lífi fjöl­skyldu­með­lima og vina sem hefur haft áhrif á hann.

„Það er alltaf erfitt þegar eitt­hvað heilsu­tengt kemur upp. Svo eld­ast for­eldrar manns. Það getur verið erfitt. En það er allt hluti af líf­inu. Ég sjálfur hef ekki orðið fyrir neinum leið­in­legum áföllum ennþá. 7-9-13. Erfitt og ekki erfitt. Það er spurn­ing hvort maður meti erf­ið­leika sem hluta af ákveðnu ferli í líf­inu eða hvort maður afmarki þá sem erf­ið­leika. Jú, ég á vini og ætt­ingja sem hafa misst börnin sín. Það er það átak­an­leg­asta sem ég hef orðið vitni að. Annars er lífið alltaf ansi fjöl­þætt mál­verk og maður þarf að taka því svo­lítið eins og það kemur. Þetta get ég nátt­úr­lega sagt kom­andi úr ákveð­inni for­rétt­inda­stöðu af því að ég bý við góða heilsu og hef ekki lent í alvar­legum hremm­ingum með mína eigin fjöl­syldu. Það að vinir og ætt­ingjar hafa misst börn hefur haft þau áhrif á mig að maður reynir að kunna betur að meta það sem maður hefur. Ég hef reynt að temja mér að þakka fyrir það sem ég hef. Ég er stundum of bjart­sýnn. Það á til að vefj­ast fyrir mér.“

Sig­tryggur hefur sem tón­list­ar­maður glatt mann og annan og margir kann­ast við karakt­er­inn Bogomil Font en það er jú karakter sem Sig­tryggur bjó til á sínum tíma. Marsbúa cha cha cha. Hæ mambó. Fly me to the Moon. Kaupa­konan hans Gísla í Gröf. Tico tico. Rokk calypsó í rétt­unum. Og lögin eru fleiri á plöt­unni „Ekki þessi leið­indi.“ Svo var það Bogomil Font og Millj­óna­mær­ing­arnir.

Þvílíkt fjör og skemmti­leg­heit.

Hvað er líkt með Sig­tryggi og Bogomil?

„Þeim finnst báðum voða gaman að vera til. Og Bogomil er einn af mínum upp­á­haldskarakt­erum. Hinir eru ekki jafn­þekktir. En Bogomil var karakter sem ég bjó til svo­lítið til að sinna ákveðnu hlut­verki eins og vill vera. Hann var svo­lít­ill sprelli­karl og var að sinna því þegar mér fannst ég þurfa að vera alvar­legur tón­list­ar­maður.“

Bogomil var iðu­lega með hatt.

„Jú, hann er eins og Mikki refur sem er með skott. Ég hef alltaf borið þá saman. Það er eitt­hvað prakk­ara­el­em­ent sem þeir hafa í mínum huga. Þeim er alls ekki varnað eins og maður segir. Mikki refur er með skott og Bogomil með hatt­inn sinn.“

Ætli Bogomil sé refur eins og sagt er?

Það er spurn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Fólk

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Húsið var reist árið 2014
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD