Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vilhjálmur segir lífshættulega stöðu á Landspítala: „Stjórnvöld þurfa að girða sig í brók“

Vilhjálmur segir lífshættulega stöðu á Landspítala: „Stjórnvöld þurfa að girða sig í brók“

„Kæri við­tak­andi. Sótt hefur verið um fyrir þig í ADHD teymi Land­spít­al­ans. Biðtími eftir þjón­ustu hefur lengst tölu­vert. Skortur er á fag­fólki í teym­inu og fram­tíð þess og stað­setn­ing innan heil­brigð­is­kerf­is­ins er óljós eins og er. Unnið er að því að finna lausn.“

Svo hljóðar bréf sem ein­stak­lingar sem bíða grein­ingar hjá ADHD teymi Land­spít­al­ans hafa fengið sent í gegnum Heilsu­veru síð­ustu daga.

Um er að ræða ein­stak­linga sem þegar hafa fengið umsókn sína um grein­ingu hjá teym­inu sam­þykkta og hafa því verið á biðlista.

Við­tak­andi bréfs­ins sem Mannlíf hefur undir höndum hefur beðið grein­ingar í rúmt ár. Þegar við­kom­andi, sem vill ekki láta nafns síns getið, fékk umsókn sína sam­þykkta fyrir rúmu ári var honum tjáð að biðin eftir grein­ingu gæti orðið allt að tvö til þrjú ár. Bréfið lýsir því grafal­var­legri stöðu þegar kemur að ADHD grein­ingum á spít­al­anum, sem þó var slæm fyrir. Bréfið er und­ir­ritað af Svövu Dagnýju Árna­dóttur, rit­ara ADHD teym­is­ins.

Báðir geðlæknar sagðir hafa gefist upp undan álagi

Bið eftir grein­ingu á ADHD hefur aldrei verið lengri. Í sam­tali við Mannlíf segir Vil­hjálmur Hjálm­ars­son, for­maður ADHD sam­tak­anna, ástandið vera óboð­legt, ef ekki hrein­lega lífs­hættu­legt. Hann seg­ist und­an­farna daga hafa fengið að sjá nokkur bréf eins og það sem vitnað er í hér að ofan.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá teym­is­stjór­anum seint í maí síð­ast­liðnum skild­ist Vil­hjálmi að tek­ist hafi að full­manna sál­fræði­stöður innan teym­is­ins, en þrátt fyrir það væri bið­tím­inn um þrjú ár.

Vil­hjálmur segir þröngan hóp mögu­lega hafa getað fengið for­gang í grein­ingu hingað til, en það séu ekki margir sem falla þar undir.

„Ekki bætir úr skák að báðir geð­læknar eru sagðir hafa gef­ist upp undan álagi og horfið til starfa hjá núver­andi geð­heilsuteymum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins,“ segir Vil­hjálmur. Samkvæmt Vil­hjálmi voru þessir tveir geð­læknar sam­tals með eitt 100% stöðu­gildi. „Nú blasir svo við að ADHD teymi Land­spít­al­ans er end­an­lega óstarf­hæft,“ bætir hann við.

Bréf frá ADHD teymi Land­spít­ala

Öruggt að börn af landsbyggðinni muni síður fá þjónustu

Ef horft er til Þroska- og hegð­un­ar­stöðvar og stöðu barna virð­ist útlitið enn svart­ara.

„Þar á bæ mun biðlist­inn vera um tvö ár, sem er afar stórt hlut­fall af ævi barns og hefur tvö­fald­ast nú um mitt ár. Biðlisti frá fyrra ári taldi 304 börn og nú á miðju ári bætt­ust 360 börn við,“ segir Vil­hjálmur. Þær tölur hefur hann eftir Oddnýju Harð­ar­dóttur, sem situr í fjár­laga­nefnd Alþingis.

Þroska- og hegð­un­ar­stöð heyrir undir Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, en þrátt fyrir það er stöð­inni jafn­framt ætlað að sinna þjón­ustu á lands­vísu. Vil­hjálmur telur að núver­andi ástand muni koma afar illa niður á börnum búsettum á lands­byggð­inni.

„Nú þegar fjár­magns­skortur og álag er að lama starf­sem­ina er ekki bara við­búið heldur öruggt að börn af lands­byggð­inni muni síður fá þjón­ustu, nema eitt­hvað mjög alvar­legt komi til.“

Vil­hjálmur segir að heyra megi á for­svars­mönnum Þroska- og hegð­un­ar­mið­stöðvar að rekst­ur­inn sé að bug­ast undan álagi og atgervis­flótti við það að bresta á. Hann sé jafn­vel þegar haf­inn.

„Heil­brigð­is­ráð­herra hefur und­an­farið sagst munu leggja fram hug­myndir að lausnum. Eins og staðan er nú hef ég litla trú á að þessar hug­myndir kom­ist til fram­kvæmda eða verði að minnsta kosti kynntar fyrir kosn­ingar – og enn síður trúi ég að nægt fjár­magn muni fylgja. Að minnsta kosti ef eitt­hvað er að marka hænu­skref og aft­ur­hald fjár­veit­inga­valds­ins und­an­farið, svosem varð­andi kostn­að­ar­þátt­töku vegna sál­fræði­þjón­ustu fyrir full­orðna,“ segir Vil­hjálmur.

Treysta þurfi fagfólki

„Þetta vanda­mál er ekki nýtt af nál­inni, heldur teygir það sig tvo ára­tugi aftur í tím­ann. Mín til­finn­ing er ein­fald­lega sú að innan stjórn­kerf­is­ins ótt­ist menn ekki bara auk­inn kostnað vegna grein­inga, heldur haldi jafn­framt að slíkt leiði sjálf­krafa til lyfja­með­ferðar í öllum til­fellum. Á meðan er stefnu­leysið slíkt að þeir sem að koma fórna hrein­lega höndum, enda öll starf­semi og fram­tíð­arplön í algjöru upp­námi, sama hvert litið er. Hér þurfa stjórn­völd hrein­lega að girða sig í brók.“

Vil­hjálmur segir að það þurfi að treysta því fag­fólki sem kemur að ADHD grein­ingum. Hann þver­tekur fyrir að hér sé ein­hver stór­kost­leg hætta á ofgrein­ingum. Hann segir þá heil­brigð­is­starfs­menn sem sér­hæfa sig á þessu sviði vera full­færa til verks­ins.

„Snemmtæk íhlutun með fag­legri grein­ingu og við­eig­andi með­ferð­ar­úr­ræðum mun ein­fald­lega breyta stöð­unni til hins betra – og það hratt,“ segir Vil­hjálmur ákveð­inn.

„Ef þessum hringl­anda­hætti linnir ekki, er kannski kom­inn tími á að minna heil­brigð­is­ráð­herra á hug­mynd um lausn sem lögð var inn á hennar borð fyrir margt löngu. Í stuttu máli þá buð­ust ADHD sam­tökin, í sam­vinnu við fag­fólk í heil­brigð­is­geir­anum, til að stíga fram fyrir skjöldu og leysa málið með skil­virkum hætti, svo fremi sem fjár­magn fylgdi. Ekki kannski, ekki bráðum – heldur strax,“ segir Vil­hjálmur.

„Um leið þarf að útfæra leiðir til úrbóta á meðan skortur á geð­læknum með sér­þekk­ingu er við­var­andi. Þetta má hæg­lega gera með þver­fag­legri sam­vinnu sál­fræð­ings, heim­il­is­læknis og geð­læknis sem kæmi að ákvörðun um lyfja­með­ferð ef svo ber undir,“ segir Vil­hjálmur að lokum.

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð