Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sorgir og sigrar Vöndu Sigurgeirsdóttur: „Ég öfunda öll börn sem eiga ömmur og afa“

Sorgir og sigrar Vöndu Sigurgeirsdóttur: „Ég öfunda öll börn sem eiga ömmur og afa“
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir

„Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til for­manns Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands. Ég hef fengið fjölda áskor­ana frá fjöl­skyldu og vinum, frá fjöl­breyttum hópi fólks í sam­fé­lag­inu og úr knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni sjálfri. Ég er mjög þakk­lát fyrir þessa hvatn­ingu. Þetta var ekki ein­föld ákörðun en af vand­lega íhug­uðu máli ákvað ég bjóða mig fram. Mér þykir vænt um þessa hreyf­ingu og hef verið partur af henni stóran hluta ævi minnar. Ég tel að ég sé vel til þess fall­inn að leiða þá vinnu sem framundan er.“ Þetta til­kynnti Vanda Sig­ur­geirs­dóttir á Facebook-síðu sinni í dag.

Í við­tali við Mannlíf segir Vanda að hún telji að reynsla sín og menntun und­ir­búi hana vel undir að gegna starfi for­manns KSÍ. „Þetta er sann­ar­lega vanda­samt verk­efni en ég er með mikla reynslu af að vinna með fólki og því að leysa úr alls konar vanda­málum og ágrein­ingi svo sem ein­elt­is­málum.“

Vanda er lektor í tóm­stunda- og félags­mál­fræði við mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands og er sér­svið hennar ein­elti og tóm­stunda- og leið­toga­fræði. Hún fékk Fálka­orð­una 1. jan­úar á þessu ári fyrir störf að jafn­rétt­is­málum, kvennaknatt­spyrnu og fyrir bar­áttu gegn ein­elti. Ásamt því að vinna sem lektor við HÍ rekur hún fyr­ir­tækið KVAN ásamt þremur öðrum þar sem starfs­menn bjóða meðal ann­ars ýmiss konar ráð­gjöf, fræðslu, nám­skeið og fyr­ir­lestra. Vanda nefnir að reynsla sín innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar myndi nýt­ast sér í starfi for­manns KSÍ, til að mynda reynslan sem leik­maður en hún var í kvenna­lands­lið­ið­inu í knatt­spyrnu, hún var fyr­ir­liði í lands­lið­inu, A-lands­liðs­þjálf­ari fyrst kvenna, hún þjálf­aði félags­lið og hefur þjálfað bæði stelpur og stráka.

Þetta er sann­ar­lega vanda­samt verk­efni en ég er með mikla reynslu af að vinna með fólki og því að leysa úr alls konar vanda­málum og ágrein­ingi svo sem ein­elt­is­málum.

„Ég er eina konan á Íslandi sem hefur þjálfað meist­ara­flokk karla í fót­bolta og ég hef líka þjálfað meist­ara­flokk kvenna. Ég hef verið í stjórn félags, ég hef verið for­maður, gjald­keri, for­eldri og sjálf­boða­liði. Þannig að ég hef víð­tæka og yfir­grips­mikla þekk­ingu á fót­bolt­anum og félags­störfum. Mér finnst þetta allt passa vel inn í þau verk­efni sem fram undan eru hjá KSÍ þótt margt annað sé þar fram undan eins og fjár­hags­á­ætlun og að und­ir­búa næsta árs­þing. Mér finnst aftur á móti vera mik­il­vægt að tekið sé á þeim málum sem hafa valdið því að hreyf­ingin hefur skadd­ast og fólk hefur misst trú og traust á hana og ég myndi leggja áherslu á að end­ur­vinna það traust. Já, ég vil ganga svo langt að segja að menntun mín og reynsla búi mig undir það og það er hluti af því að ég ákvað að bjóða mig fram til for­manns. Svo brenn ég fyrir jafn­rétt­is­mál­unum og fyrir fót­bolt­anum og ég held að þetta sé mjög skemmti­legt og áhuga­vert starf.“

Ég er eina konan á Íslandi sem hefur þjálfað meist­ara­flokk karla í fót­bolta og ég hef líka þjálfað meist­ara­flokk kvenna.

Vanda seg­ist von­ast til að verða kjörin og ef það verður að veru­leika hlakkar hún til að takast á við þær áskor­anir sem bíða. „Innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar er mikið af mjög góðu fólki og ég hlakka til að vinna með þeim að góðum málum.“

Dauðafæri fyrir hreyfinguna

Þegar Vanda er spurð um sýn sína á kyn­ferð­is­af­brota­málin tengd leik­mönnum sem hafa verið áber­andi að und­an­förnu segir hún að til þess að end­ur­vinna traust fólks á hreyf­ing­una þá verði þessi mál að kom­ast í lag.

„Sú vinna er hafin eins og fram kom í til­kynn­ingu frá stjórn KSÍ. Þannig að ný stjórn þarf að halda vinn­unni áfram og í mínum huga er þetta eitt af mik­il­væg­ustu verk­efnum þess­arar nýju stjórnar sem er þó bara bráða­birgða­stjórn. Á þing­inu í febr­úar þarf að leggja fyrir til­búna ferla og vinnu­brögð um það hvernig hreyf­ingin ætlar að taka á þessum málum í fram­tíð­inni. Ég held að það hljóti allir að vera sam­mála um að þetta er eitt­hvað sem þarf að laga.“

Ef Vanda verður kjörin for­maður KSÍ þá yrði hún fyrsta konan í því emb­ætti. „Mér finnst það vera mjög spenn­andi til­hugsun en ég vil ekki að ég yrði kosin bara af því að ég er kona. En mér finnst að það sé kannski kom­inn tími til að gefa því tæki­færi. Ég hef verið „fyrsta konan“ nokkrum sinnum þannig að ég kvíði því ekki. Svo ég nota fót­bolta­mál þá finnst mér þetta vera dauða­færi fyrir hreyf­ing­una.“

Svo ég nota fót­bolta­mál þá finnst mér þetta vera dauða­færi fyrir hreyf­ing­una.

Ástvinamissir

Vanda er reynslu­bolti í fót­bolt­anum og getur státað af mörgum bikar- og Íslands­meist­aratitlum sem leik­maður og þjálf­ari. Þegar hún er spurð hvað standi upp úr varð­andi fer­il­inn seg­ist hún hafa verið stolt þegar hún var gerð að fyr­ir­liða í lands­lið­inu á sínum tíma. Hún nefnir líka árið þegar hún þjálf­aði Þrótt.

„Við töp­uðum næstum því öllum leikjum en ég var samt ánægð með þá alla þetta tíma­bil. Ég segi stundum að það sé auð­velt að vinna en miklu erf­ið­ara að tapa. Ég er mjög stolt af þessu tíma­bili; fólki finnst þetta vera skrýtið af því að við töp­uðum og féllum úr efstu deild en ég og þessir leik­menn náðum að peppa okkur upp fyrir hvern ein­asta leik og gera okkar besta á heilu tíma­bili. Ég er stolt af því fyrir utan þá titla sem ég er auð­vitað mjög stolt af.“

Lífið er ekki bara fót­bolti og þar vinn­ast sigrar og leikir tap­ast. Vanda segir að ást­vina­missir sé það erf­ið­asta sem hún hefur upp­lifað og nefnir að for­eldrar hennar lét­ust með tveggja og hálfs árs milli­bili en hún var 44 ára þegar móðir hennar lést og svo dó faðir hennar tveimur og hálfu ári síðar. Hún og eig­in­maður hennar áttu þá ung börn og hún nefnir að þau hafi misst stuðn­ing­inn, ást­ina og kær­leik­ann. Þess má geta að tengda­for­eldrar hennar eru líka látnir. „Ég öfunda öll börn sem eiga ömmur og afa og við söknum þess mjög mikið.“

Hún talar um tæki­færi sem geta falist á áföllum. „Pabbi var í önd­un­ar­vél í mánuð á gjör­gæslu­deild. Þótt þetta væri nátt­úr­lega hörmu­legt, ömur­legt og sorg­legt þá hugs­uðum ég og bróðir minn með okkur að þarna gæti legið tæki­færi; eitt­hvað sem við gátum látið verða til góðs og við ákváðum að end­ur­nýja sam­band okkar sem þurfti á því að halda. Við fundum tæki­færi í þessu. Og ég hef reynt að kenna börn­unum mínum það að finna tæki­færi sem geta verið til góðs jafn­vel þótt eitt­hvað sé sorg­legt og leið­in­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ