Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Karólína hefur misst svo marga: „Þarna stóð ég uppi ein með fullt hús af börnum“

Karólína hefur misst svo marga: „Þarna stóð ég uppi ein með fullt hús af börnum“
Mynd/Sorg­ar­mið­stöðin Karólína Helga Sím­on­ar­dóttir, stjórn­ar­for­maður Sorg­ar­mið­stöð­ar­innar

„Hver og einn missir er ávallt erf­iður, það er erfitt fyrir okkur sem höfum reynsl­una á bak­inu að hitta ein­hvern sem hefur nýlega misst og vitum hvað við­kom­andi á eftir að takast á við, hvernig lífið er og allar þær áskor­anir sem koma í kjöl­farið. Auðvitað er það líka ávinn­ing­ur­inn af þessu starfi okkar að sjá fólkið, sem kom til okkar brotið og beygt, ganga frá okkur hnar­reist og bros­andi með von í brjósti,“ segir Karólína Helga Sím­on­ar­dóttir, stjórn­ar­for­maður Sorg­ar­mið­stöðv­ar­innar, sem kom í ein­lægt við­tal.

Sorg­ar­mið­stöðin er félag sem rekið er alfarið á styrkjum
Karólína segir okkur að mörg verk­efni sem snúa að svona gras­rót­ar­fé­lagi geti tekið á og þau eru ómæld verk­efnin sem bíða sam­tak­anna á þess­ari litlu eyju en stóra sam­fé­lagi.

„Það er nú einu sinni þannig að við munum öll kynn­ast sorg og missi ein­hvern tím­ann yfir ævina og við viljum geta tekið á móti öllum syrgj­endum með opnum örmum, alltaf.“

Sorg­ar­mið­stöðin er félag sem rekið er alfarið á styrkjum og það reyn­ist oft þraut­inni þyngra að gera allt sem þau vilja og halda rekstr­inum áfram.

„Daginn sem við fáum samn­ing hjá ráðu­neyt­inu, getum við haldið rekstr­inum öruggum og andað léttar, það verður sá dagur sem við fögnum öll. Þá fyrst getur Sorg­ar­mið­stöð fengið að vaxa og dafna til þeirra verk­efna sem henni bíða.“

Sjálf hefur Karólína gengið í gegnum missi
„Ég hafði misst ömmu mína sem var alveg hreint ótrú­leg mann­eskja, ég held að ég sé ekki að ýkja en ég hugsa að hún hafi verið ansi oft við dauð­ans dyr og alltaf komið aftur, spræk og til­kynnt okkur að þetta hefði ekki verið hennar tími. En svo kom tím­inn hennar, hún lést á spít­al­anum, lét okkur vita að það væri hennar tími, lík­ami hennar væri þreyttur og hún södd líf­daga.

Það var svo fal­legt hvernig hún kall­aði okkur til sín, kvaddi mig í ein­lægni með kær­leik og hugg­un­ar­orðum um að dauð­inn væri ekki hræði­legur. Þetta var fal­legur dauði.

Mynd/Sorg­ar­mið­stöðin Karólína Helga Sím­on­ar­dóttir, stjórn­ar­for­maður Sorg­ar­mið­stöðv­ar­innar

En amma, ver­andi af gamla skól­anum, ætl­aði svo sann­ar­lega ekki að skilja afkom­endur sína eftir í skuld eða vand­ræðum með útför­ina. Hún var búin að taka frá pen­ing fyrir henni og skipu­leggja hana að mestu leyti, hvaða sálma hún vildi og hverjir hún vildi helst að myndu syngja. Þegar ást­vinur skilur óskir sínar eftir, þá er það mun auð­veld­ara fyrir þau sem eftir lifa, að vita að þau séu að upp­fylla hinstu óskir.

Að taka þessar ákvarð­anir um hinstu hvíld ást­vinar og vita lítið sem ekk­ert um óskir þeirra getur gert eft­ir­lif­andi ást­vinum erfitt fyrir.

Ég t.d. vissi að mað­ur­inn minn vildi ekki bálför, við höfðum rætt slíkar óskir, ég vissi líka að hann vildi vera líf­færa­gjafi og ég vissi líka að honum fannst fal­legt þegar það voru hvítir steinar við leg­stein­inn, þetta voru sam­töl sem við höfðum átt ein­hvern tím­ann. Þegar við áttum þau þá fannst okkur það svo langt frá raun­veru­leik­anum, en ég var þakk­lát fyrir að vita þetta allt þegar hann svo skyndi­lega dó frá okkur, með engan und­ir­bún­ings­tíma.

Maðurinn minn féll frá skyndi­lega, það situr enn í mér hvernig staðið er að því þegar fólk missir ást­vin svona skyndi­lega. Ég veit það fyrir víst, af reynsl­unni, að við sem missum ást­vin skyndi­lega höfum ekki aðgang að sama stuðn­ingi og þeir sem missa ást­vin inni á spít­ala eða eftir krabba­meins­veik­indi.

Þegar mér var til­kynnt and­látið þá hrundi heim­ur­inn, þarna stóð ég uppi ein með fullt hús af börnum og fékk þær fregnir að mað­ur­inn minn væri lát­inn. Það var tekin ákvörðun um að senda ekki lög­regl­una heim, því ég væri ein með börnin, en mamma kom og var sem betur fer hjá mér, þegar mér bár­ust fregn­irnar. En á móti þá stóð hún þarna með dóttur sína, sem hafði fengið hræði­legar fréttir og vissi ekk­ert hvað átti að gera. Hvað átti að gera? Eina sem henni datt í hug að gera var að hringja í Neyð­ar­lín­una og fá upp­lýs­ingar, en þeir í raun gátu ekki veitt henni neinar upp­lýs­ingar nema kannski um að fá prest til okkar.

Við erum ekk­ert sér­lega kirkju­rækið fólk en ég náði að glopra út úr mér nafni á presti í kirkj­unni okkar, sem ég minnt­ist alltaf með svo mik­illi hlýju. Ég hafði verið dug­leg að fara með krakk­ana í sunnu­daga­skól­ann og kynnst störfum prests­ins þar. Hún var kölluð út og leiddi okkur í gegnum þetta helsta.

Ég hef oft farið í gegnum þetta ferli í hug­anum og rætt þetta við nokkra sem ég þekki sem hafa misst maka skyndi­lega. Þau hafa flest öll sömu sögu. Það er eng­inn sem kemur heim til þín, sest niður með þér og fer yfir næstu skref. Það eru engin boð um félags­ráð­gjafa sem þekkir stöð­una. Þegar þú hefur fengið frétt­irnar þá stendur þú uppi ein og þarft að leita þér upp­lýs­inga.

Ég segi oft að það hafi verið „lán“ (kald­hæðni) að við vorum nýbúin að ganga í gegnum þetta, ég var komin með óþarf­lega mikla reynslu í að jarða eftir að við jörð­uðum tengdapabba árinu áður og pabba í jan­úar, en mað­ur­inn minn dó í apríl sama ár.

Mamma var nýbúin að ganga í gegnum allt þetta þegar pabbi dó. Pabbi hafði dáið inn á líkn­ar­deild­inni, þar fékk mamma fullt af upp­lýs­ingum um rétt sinn, hug­vekju og hvar hún gæti sóst eftir aðstoð eða stuðn­ingi í sorg­inni.“

Á meðan ég, unga ekkjan fékk enga þjón­ustu af viti nema það sem ég ork­aði að sækj­ast eftir sjálf og á þessum tíma er maður ekki endi­lega alveg með ork­una eða hrein­lega bara enga skýra hugsun.

Ekki góðar sögur af kerf­inu
„Mamma leiddi mig í gegnum allan þenna risa og flókna heim skrif­finnsk­unnar. Þetta skrif­finnsku-, ómann­lega kerfi er algjör­lega önnur umræða út af fyrir sig,“ segir Karólína hugsi.

Per­sónu­lega hefur henni þótt erf­ið­ast þegar til þeirra kemur fólk sem hefur ekki góðar sögur af kerf­inu, á kannski lítið stuðn­ings­net og ekki fengið mik­inn stuðn­ing.

Það er erfitt að horfa upp á það þegar sömu fjöl­skyld­urnar verða fyrir marg­földum missi á stuttum tíma. Það virð­ist svo oft vera þannig að sömu fjöl­skyld­urnar missa mikið á stuttum tíma.

Hræðast að geta ekki tekið á móti fleirum
Eins og staðan er hjá Sorg­ar­mið­stöð­inni í dag þá hræð­ast þau það þegar þau geta ekki tekið á móti fleirum vegna fjölda eft­ir­spurna. Þau eru í þannig verk­efnum að þau eiga ekki að þurfa að vísa neinum frá. Markmið stöðv­ar­innar er að styðja við alla þá sem til hennar leita. Þau vona að ríkið verði búið að sjá hag sinn í að styðja félagið og sjái ávinn­ing af starf­inu og mik­il­vægi þess fyrir allt sam­fé­lagið.

Sorg­ar­mið­stöð er sam­starfs­verk­efni fjög­urra gras­rót­ar­fé­laga á sviði sorg­ar­úr­vinnslu. Í dag og síð­ustu ára­tugi hafa starfað mörg góð félög á sviði sorg­ar­úr­vinnslu, en það hefur vantað einn vett­vang fyrir alla syrgj­endur til þess að leita eftir stuðn­ingi, sama hvernig eða hvenær þeir misstu ást­vin. Mark­miðið er að styðja við syrgj­endur og alla þá sem vinna að vel­ferð syrgj­enda, svo sem aðstand­endur, sam­starfs­fólk, fag­fólk eða aðra sem koma að. Starf­semi Sorg­ar­mið­stöðvar bygg­ist að mestu upp á jafn­ingja­stuðn­ingi, ráð­gjöf, upp­lýs­inga­þjón­ustu og fræðslu.

Sorg­ar­úr­vinnsla miðar að bættri lýð­heilsu með því að efla og styðja við and­lega, lík­am­lega og félags­lega heilsu fólks eftir ást­vina­missi.

Bera harm sinn í hljóði
Það hefur þekkst vel hér á Íslandi að fólk beri harm sinn í hljóði og ræði ekki mikið um þann nístandi sárs­auka sem kemur við að missa ást­vin. Í sam­fé­lag­inu virð­ist einnig ekki mikið verið rætt um þreyt­una og orku­leysið sem hellist yfir fólk í þessum aðstæðum eða það ferli að reyna fóta sig í nýjum veru­leika.

„Fólk átti að herða sig upp og halda áfram, auð­vitað er það að hluta til þannig að þó svo að heimur syrgj­and­ans hafi hrunið þá heldur líf allra ann­arra áfram og við þurfum að finna leið til að halda áfram að taka þátt í því. En til þess að geta tek­ist á við lífið og miss­inn á sama tíma þá þurfum við stuðn­ing. Við höfum líka séð hverja rann­sókn­ina á fætur annarri sem sýnir að ef ein­stak­lingur fær ekki að takast á við sorg­ina, gefur sér ekki tíma til þess, þá er hætta á að hann lendi á vegg. Sorgin er alltaf þarna í bak­pok­anum og bíður eftir að við gefum okkur tíma til þess að fara í gegnum hana, takast á við hana.“

Sorg­ar­mið­stöðin vill að sam­talið um dauð­ann hætti að vera svona mikið feimn­is­mál.

Því miður þá er það víst þannig að við deyjum öll ein­hvern tím­ann. Þau vilja að sam­fé­lagið gefi sér leyfi til að tala um dauð­ann áður en hann kemur og líka eftir að ást­vinur deyr. Það að leyfa okkur að tala um dauð­ann getur gert sorg­ina bæri­legri.

Missir og sorg
Í Sorg­ar­mið­stöð­inni er að finna yfir 30 ára reynslu á sviði sorgar og sorg­ar­úr­vinnslu. Þar er not­ast við jafn­ingja­stuðn­ing, þar sem ein­stak­lingur sem leitar til Sorg­ar­mið­stöðv­ar­innar hittir starfs­fólk sem ræðir um miss­inn, sorg­ina, jafn­vel aðdrag­and­ann eða annað.

„Við vitum að í sorg þá skiptir mestu máli að ein­hver vilji hlusta“

Syrgj­and­anum er boðið að hitta jafn­ingja. Jafningi er sá sem veitir stuðn­ing þeim sem eru í sömu eða svip­aðri stöðu og jafn­ingi hefur sjálfur verið í. Jafn­ing­inn er ein­hver sem er á svip­uðum aldri, með svip­aða reynslu og missi á bak­inu. Allir jafn­ingjar mið­stöðv­ar­innar hafa unnið vel úr þeim erf­iðu til­finn­ingum sem tengj­ast ást­vina­missi og hafa farið á nám­skeið hjá Sorg­ar­mið­stöð­inni og eru í stakk búnir til að vera öðrum til stuðn­ings og hug­hreyst­ingar. Ekki er um sál­fræð­inga eða fag­lega aðstoð að ræða heldur fer starfið fram á jafn­ingja­grunni.

„Við bjóðum fólki ávallt á erindi okkar fyrir þá sem hafa nýlega misst, það fjallar um þessa líðan og til­finn­ingar sem við upp­lifum við miss­inn, áfallið og stöð­una sem við erum í. Í fram­haldi af því er í boði að skrá sig í hóp­starf.“

Hópstörf Sorg­ar­mið­stöðv­ar­innar miða að því að hver og einn finni hóp sem hann passar í, maka­missir, barns­missir, að missa í sjálfs­vígi, að missa úr fíkn eða fleiri hópum. En það eru um fjórtán ólíkar teg­undir af hópum í gangi hverju sinni.

Hóp­starfið er lokað og hver og einn skráir sig í við­eig­andi hóp og skuld­bindur sig til þess að mæta einu sinni í viku í þær sex vikur sem hóp­starfið er í gangi.

Mark­miðið með hóp­starf­inu er að gefa syrgj­endum rými og vett­vang til að tjá líðan sína og veita þeim inn­sýn og skiln­ing í marg­vís­legum birt­ing­ar­myndum sorg­ar­ferl­is­ins.

Þegar fólk kynn­ist, þá mynd­ast oft hlý vin­áttu­tengsl í hópnum og þar er líka hlegið, því húmor­inn er afar mik­il­vægur og hjálp­legur í sorg­inni.

„Allt okkar starf bygg­ist á reynslu, reynslu þeirra sem hafa misst og gengið í gegnum sorg­ar­úr­vinnslu. Við notum líka marg­reynt og vel kannað amer­ískt módel í hóp­starfi okkar. En svo er verið að gera rann­sókn á hóp­starfi okkar og við von­umst eftir nið­ur­stöðum þeirra rann­sókna fljót­lega. Það er okkur mik­il­vægt að allt starf okkar sé sann­reynt og fag­legt enda er það sér­stak­lega mik­il­vægt fyrir þennan hóp ein­stak­linga, að tekið sé rétt á móti honum.“

Hvert sam­fé­lag vinnur í sínum missi á sinn hátt. Það er ýmis­legt sem Ísland er fram­ar­lega í, en þá er það að mestu bundið við sögu okkar sem erf­ist á milli kyn­slóða og miðar að því að harka af sér, segir Karólína.

„Við megum alveg horfa aftur til for­feðra okkar áður en dauð­inn varð svona stofn­ana­bund­inn, áður þá fékk fólk frekar að deyja heima. Valið var kannski ekki endi­lega mikið, en þá voru engar sjúkra­stofn­anir, en á sama tíma þá var dauð­inn hluti af hinu raun­veru­lega lífi og ekki svona ósnert­an­legur og óþægi­legur.“

Kynnst fal­legu starfi
Karólína vill ekki setja út á þær stofn­anir sem nú þegar eru til staðar í þessum mála­flokki, en hún hefur sjálf fengið að kynn­ast fal­legu starfi eins og hjá líkn­ar­deild­inni sem gerir sitt allra besta til þess að fjöl­skyldur geti verið saman og notið tím­ans með ást­vinum.

„En ég er viss um að mun fleiri en okkur grunar velja að deyja heima. Við erum von­andi að þok­ast nær þessu vali enn frekar með ýmiss konar heima­hjúkrun og heima­þjón­ustu. Við Íslend­ingar allir erum sem betur fer orðnir mun opn­ari fyrir sorg­ar­úr­vinnslu. Til okkar kemur fólk á öllum aldri með bæði nýja og gamla sorg sem það vill vinna úr. Bara á síð­asta ári voru yfir 1.000 ein­stak­lingar sem þáðu aðstoð hjá okkur, það var í miðjum Covid-far­aldr­inum sem geis­aði og mikil höft í gangi.“

Hópurinn sem hefur gleymst
Enginn hópur kemur meira en annar til þeirra, en fjöl­menn­ustu hóp­störfin tengj­ast maka­missi. Þessum hópum er skipt niður í þrennt eftir aldri. Svo eru stórir hópar fyrir þau sem hafa misst ást­vin í sjálfs­vígi, en einnig leita sífellt fleiri sem missa börn sér hjálpar, missa börn á með­göngu, eftir veik­indi eða skyndi­lega.

Sá hópur fólks sem hefur aðeins gleymst og vonir standa til að tekið verði betur og skýrar utan um er það fólk sem missir ást­vin í fíkn eða fíkni­dauða.

„Við erum að keyra stuðn­ings­hópa fyrir þann hóp, en ég veit að við getum gert betur til að mæta ást­vinum þess­ara ein­stak­linga. Við erum að vinna núna að fræðslu­er­indi fyrir þá sem missa ást­vin úr fíkn. Það er flókin sorg að takast á við og sam­tal sem er svo mik­il­vægt að fái að kom­ast upp á yfir­borðið, úrvinnsla sem er svo mik­il­væg fyrir alla.“

Okkur finnst erfitt að tala um dauð­ann en umræðan er sífellt að opn­ast meira.
Sorg­ar­mið­stöðin vill sjá flott sam­starf allra sem koma að þegar ein­stak­lingur deyr. Að Sorg­ar­mið­stöðin, lög­reglan, heil­brigð­is­yf­ir­völd, sjúkra­flutn­ing­ar­fólk, prestar og allar þær stéttir sem koma að þessum mála­flokki vinni saman að ferlum svo að fólki finn­ist ekki sem það sitji eitt í tóma­rúmi þegar ást­vinur deyr. Það séu skýrir ferlar fyrir alla sem koma að, ferlar sem grípa ást­vini strax.

Þau vilja líka sjá ríkið, rík­i­s­tjórn­ina og heil­brigð­is­kerfið við­ur­kenna mik­il­vægi sorg­ar­úr­vinnslu í geð­heil­brigð­is­málum og lýð­heilsu. Sorg er að sjálf­sögðu ekki sjúk­dómur og á alls ekki að skil­greina sem slíkt enda er þetta heil­brigð úrvinnsla á sökn­uði og ást til þess sem við misstum. En sé ekki unnið með sorg­ina, henni gefið rými á réttan hátt þá er hætta á að sá sem syrgi geti fest í sorg­inni og þurft djúpan áfalla­stuðn­ing, orðið óvirkur sam­fé­lags­þegn og jafn­vel þá enn „dýr­ari“ fyrir sam­fé­lagið.

Stuðn­ings­hópa­starf
Sorg­ar­mið­stöðin heldur úti stuðn­ings­hópa­starfi, ekki beint nám­skeiði heldur hópa­starfi fyrir syrgj­endur og eru nám­skeiðin/hópa­starfið fyrir alla ald­urs­hópa.

„Fyrir syrgj­endur eða þann sem misst hefur ást­vin þá er mik­il­vægt að hafa í huga að sorgin er krefj­andi og orku­frek, mik­il­vægt er að sýna sér og ást­vinum sínum mildi og muna að við erum aldrei ein.

Fyrir aðstand­endur þá minni ég á að það er betra að hafa sam­band frekar en ekki, lítil kveðja á Facebook, fal­legt kort eða smá hug­ul­semi gerir svo mikið fyrir þann sem missti. Við erum líka með mikið af góðum ráð­legg­ingum inni á heima­síðu okkar, sorg­armid­stod.is.“

Gjafmildi og traust fólk

„Náunga­kær­leikur er eitt­hvað sem heldur alltaf áfram, aftur og aftur að koma mér á óvart.

Líka gjaf­mildi og traust fólks til okkar. Við erum svo ótrú­lega þakk­lát öllum þeim sem leita til okkar hjá Sorg­ar­mið­stöð­inni og treysta okkur til þess að leiða þau í gegnum þessa erf­ið­ustu tíma lífs síns.“

Sorg­ar­mið­stöð er opin öllum þeim sem vilja leita stuðn­ings hjá okkur, fólki á öllum aldri og það skiptir ekki neinu máli hvort ást­vinur féll frá nýlega eða fyrir mörgum ára­tugum. Við erum hér fyrir þig, þegar þú vilt.

Ráðgjöf og fræðsla
Sorg­ar­mið­stöð fer með ráð­gjöf og fræðslu út í fyr­ir­tæki, stofn­anir og skóla­sam­fé­lagið við and­lát starfs­manns, nem­anda eða ann­arra. Beiðni um ráð­gjöf eða fræðslu þarf að ber­ast á [email protected] eða í síma 551-4141.

Í þess­ari bar­áttu þá hefur Sorg­ar­mið­stöðin leitað eftir því að sett væru í  frum­varpið lög um sorg­ar­leyfi með það mark­mið að færa ein­stak­lingum sem missa maka frá ungum börnum sam­bæri­lega rétt­ar­bót.Á síð­asta ári börð­ust þau fyrir sorg­ar­or­lofi sem varð að lokum að frum­varpi. Frum­varpið lýsir sér þannig að fyrir for­eldra sem hafa misst börn, er mark­miðið að gera fólki kleift að takast á við sorg­ina við barns­missi án þess að eiga líka á hættu að fjár­hag­ur­inn fari í rúst. Ef frum­varpið verður sam­þykkt til laga fæst stað­fest­ing á vægi sorg­ar­úr­vinnslu fyrir heilsu og vel­ferð aðstand­enda.

Karólína mælir með því að bæði syrgj­endur og ást­vinir líti á heim­síð­una eða setji sig í sam­band með sínar vanga­veltur.

Sorg­armid­stod.is eða [email protected]

Síma­númer: 551-4141

Smelltu hér til að lesa brak­andi og feskt helg­ar­blað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina