Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Minnihlutinn í Hafnarfirði vill fá svör: „Svo virðist sem ráðuneytinu þyki þetta léttvægt mál“

Minnihlutinn í Hafnarfirði vill fá svör: „Svo virðist sem ráðuneytinu þyki þetta léttvægt mál“
Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar

Eins og Mannlíf greindi frá í gær er málið sem varðar sölu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar á hlut sínum í HS Veitum enn ekki útkljáð.

Minni­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar hefur beitt sér af krafti gegn söl­unni og telja hana ein­fald­lega ólög­lega. Eins og greint var frá í gær þá telur minni­hlut­inn „afgreiðslu máls­ins ekki hafa verið í sam­ræmi við ákvæði sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011 og máls­með­ferðin því ólög­leg og ákvörðun um sölu ógild­an­leg.“

Minni­hlut­inn í Hafn­ar­firði er orð­inn óþreyju­fullur að fá svar við erindi sínu sem það sendi sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu og telur það skyldu ráðu­neyt­is­ins „að bregð­ast við þess­ari ábend­ingu með því að hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu skv. 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga, enda er um alvar­legt brot á lög­unum að ræða sem varðar mjög mik­il­væga hags­muni bæj­ar­búa í sveit­ar­fé­lag­inu.“

Í apríl síð­ast­liðnum sendi minni­hlut­inn bréf til ráðu­neyt­is­ins þar sem kemur fram að „þann 5. nóv­em­ber 2020 sendu und­ir­rituð erindi til ráðu­neyt­is­ins þar sem vakin var athygli á vinnu­brögðum sem meiri­hluti Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks við­hafði við ákvarð­ana­töku varð­andi sölu á hlut Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar í fyr­ir­tæk­inu HS veitum hf.“

Enn fremur að „við teljum það skyldu ráðu­neyt­is­ins að bregð­ast við þess­ari ábend­ingu með því að hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu skv. 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga, enda er um alvar­legt brot á lög­unum að ræða sem varðar mjög mik­il­væga hags­muni bæj­ar­búa í sveit­ar­fé­lag­inu. Nú eru liðnir rúmir 5 mán­uðir síðan erindið var sent og engin svör hafa borist við því, né heldur hefur orðið vart við að nokk­urri rann­sókn hafi verið beint að þeim sem stóðu fyrir söl­unni á HS veitum. Svo virð­ist sem ráðu­neyt­inu þyki þetta létt­vægt mál sem ekki er þörf á að sinna, en málið er svo sann­ar­lega ekki létt­vægt.“

Er minni­hlut­inn því ósáttur við að afgreiðsla máls­ins taki svo langan tíma í ráðu­neyt­inu, og vill fá svör um þetta mik­il­væga mál:

„Það varðar mjög mik­il­væga fjár­hags­lega hags­muni sveit­ar­fé­lags­ins. Um er að ræða gríð­ar­lega mik­il­væga inn­viði sveit­ar­fé­lags­ins sem skipta miklu máli fyrir hvern ein­asta bæj­ar­búa. Það að farið sé fram­hjá eðli­legum og lög­bundnum máls­með­ferð­ar­reglum við ráð­stöfun slíkra verð­mæta er mjög alvar­legur hlutur. Því hljótum við að gera kröfu um að mál­inu verði sinnt og að ráðu­neytið ræki það eft­ir­lits­hlut­verk sem því er falið sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum.“

Minni­hlut­inn bendir á að það sé „ákvæði um máls­hraða í 9. gr. stjórn­sýslu­laga. Þar er í fyrsta lagi kveðið á um að ákvarð­anir í málum skulu teknar svo fljótt sem unnt er. Í öðru lagi er kveðið á um að leita skuli umsagna við fyrsta hent­ug­leika, en svo virð­ist sem ekki hafi enn verið leitað umsagna um þetta mál, a.m.k. hefur ekk­ert slíkt erindi verið lagt fram í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. Í þriðja lagi er skylt að til­kynna skuli ef fyr­ir­sjá­an­legt er að afgreiðsla muni tefj­ast, en engin slík til­kynn­ing hefur borist. Það virð­ist því sem ráðu­neytið hafi ekki gætt að lög­bundnum reglum varð­andi máls­hraða. Óskað er eftir upp­lýs­ingum um stöðu máls­ins og skýr­ingum á töfum, að öðrum kosti verður ekki hjá því kom­ist að leita til Umboðs­manns Alþingis og kvarta yfir broti á máls­hraða­reglu stjórn­sýslu­laga.“

Hér má sjá bréf minni­hlut­ans í Hafn­ar­firði:

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið Sölv­hóls­götu 7 101 Reykja­vík Hafn­ar­firði 12. april 2021 Erindi varð­andi sölu Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar á hlut sínum í HS veitum hf.

Þann 5. nóv­em­ber 2020 sendu und­ir­rituð erindi til ráðu­neyt­is­ins þar sem vakin var athygli á vinnu­brögðum sem meiri­hluti Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks við­hafði við ákvarð­ana­töku varð­andi sölu á hlut Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar í fyr­ir­tæk­inu HS veitum hf. Eins og nánar kom fram í nefndu bréfi teljum við afgreiðslu máls­ins ekki hafa verið í sam­ræmi við ákvæði sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011 og máls­með­ferðin því ólög­leg og ákvörðun um sölu ógild­an­leg. Við teljum það skyldu ráðu­neyt­is­ins að bregð­ast við þess­ari ábend­ingu með því að hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu skv. 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga, enda er um alvar­legt brot á lög­unum að ræða sem varðar mjög mik­il­væga hags­muni bæj­ar­búa í sveit­ar­fé­lag­inu. Nú eru liðnir rúmir 5 mán­uðir síðan erindið var sent og engin svör hafa borist við því, né heldur hefur orðið vart við að nokk­urri rann­sókn hafi verið beint að þeim sem stóðu fyrir söl­unni á HS veitum. Svo virð­ist sem ráðu­neyt­inu þyki þetta létt­vægt mál sem ekki er þörf á að sinna, en málið er svo sann­ar­lega ekki létt­vægt. Það varðar mjög mik­il­væga fjár­hags­lega hags­muni sveit­ar­fé­lags­ins. Um er að ræða gríð­ar­lega mik­il­væga inn­viði sveit­ar­fé­lags­ins sem skipta miklu máli fyrir hvern ein­asta bæj­ar­búa. Það að farið sé fram­hjá eðli­legum og lög­bundnum máls­með­ferð­ar­reglum við ráð­stöfun slíkra verð­mæta er mjög alvar­legur hlutur. Því hljótum við að gera kröfu um að mál­inu verði sinnt og að ráðu­neytið ræki það eft­ir­lits­hlut­verk sem því er falið sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum.

Bent er á ákvæði um máls­hraða í 9. gr. stjórn­sýslu­laga. Þar er í fyrsta lagi kveðið á um að ákvarð­anir í málum skulu teknar svo fljótt sem unnt er. Í öðru lagi er kveðið á um að leyta skuli umsagna við fyrsta hent­ug­leika, en svo virð­ist sem ekki hafi enn verið leitað umsagna um þetta mál, a.m.k. hefur ekk­ert slíkt erindi verið lagt fram í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. Í þriðja lagi er skylt að til­kynna skuli ef fyr­ir­sjá­an­legt er að afgreiðsla muni tefj­ast, en engin slík til­kynn­ing hefur borist. Það virð­ist því sem ráðu­neytið hafi ekki gætt að lög­bundnum reglum varð­andi máls­hraða. Óskað er eftir upp­lýs­ingum um stöðu máls­ins og skýr­ingum á töfum eigi síðar en 19. apríl nk. Að öðrum kosti verður ekki hjá því kom­ist að leita til Umboðs­manns Alþingis og kvarta yfir broti á máls­hraða­reglu stjórn­sýslu­laga. Kær kveðja Jón Ingi Hákon­ar­son bæj­ar­full­trúi Við­reisnar Guðlaug Svala Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­full­trúi Bæj­ar­list­ans Sigurður Þ. Ragn­ars­son, bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins Frið­þjófur Helgi Karlsson, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar Árni Rúnar Þor­valds­son, vara­bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ