Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Tvö ný mótmælaverk L&Ó og Töfrateymisins risin í Hafnarfirði: „Við eigum nýja stjórnarskrá!“

Annað verkið.
Annað verkið. Mynd: Björgvin Gunnarsson

Tvenn ný mótmæla­verk hafa verið sett upp í Hafnar­firði og ekki enn verið tekin niður. Á verkunum eru slagorð er varða nýja stjórnar­skrá Íslands.

Myndlistar­tvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson standa fyrir verkunum í samstarfi við Töfra­teymið. Fyrr á árinu var sagt frá því í Mannlífi að verk eftir þau hafi verið tekið niður að beiðni Sjálfstæðis­konunnar Rósu Guðbjarts­dóttur, bæjar­stjóra Hafnar­fjarðar. Verkið hékk utan á menningar- og lista­miðstöðinni Hafnar­borg og kallaði eftir nýrri stjórnar­skrá. Annað verkanna stendur fyrir ofan undirgöng við Sólvangsveg en hitt er við bragga­rústunum við enda Herjólfs­götunnar.

Sjá einnig: Meiri ritskoðun í Hafnar­firði en Kúbu – Sjálfstæðis­kona lét fjarlæga listaverk

Þau Libia Castro og Ólafur Ólafsson voru valin myndlistar­menn ársins á Íslensku myndlistar­verð­laununum 25. febrúar á þessu ári. Töfra­teymið er hópur ólíkra tónskálda, innlendra og erlendra, tónlistar­fólks, samtaka, aðgerðar­sinna og almennra borgara. Sjá nánar hér.

Nú verður spennandi að sjá hversu lengi þessi verk fá að vera uppi en þetta yrði ekki í fyrsta skiptið sem listaverk tengt nýrri stjórnar­skrá yrði ritskoðað af yfir­völdum. Það vakti mikla athygli þegar stjórn­völd háþrýsti­þvoðu vegg­listaverk þar sem stóð: „Hvar er nýja stjórnar­skráin?“ á sínum tíma en endaði sú ritskoðun í Áramóta­skaupinu.

Annað verkið.
Und­ir­skrift Töfrateym­is­ins
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá