Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hvað segir tunglmerki þitt um þig?

Hvað segir tunglmerki þitt um þig?

Það merki sem tunglið er statt í þegar við fæð­umst er afar mik­il­vægt í stjörnu­speki.

Tunglið stendur fyrir innra sjálf okkar, til­finn­ingar og þrár. Það segir til um hvar og hvernig okkur líður best. Það segir mikið um til­finn­inga­líf okkar, þæg­ind­ara­mma og það hvenær við finnum fyrir öryggi.

Tunglið táknar inn­sæi okkar og hefur inn­hverfa orku. Það er innra barn okkar og gefur til kynna hvar við erum við­kvæm. Tungl­merki okkar getur sagt til um hvernig við erum þegar við erum algjör­lega ber­skjölduð og eng­inn annar í kringum okkur. Þegar allir varn­ar­veggir falla.

Tunglið er hjartað á móti huga sól­ar­innar – það er órök­rænt. Sumir virð­ast stjórn­ast jafn­vel meira af tungli en sól, en það á sér­stak­lega við ef tunglið er í vatns­merki (Krabba, Sporð­dreka eða Fiskum), eða ef það er í sterkri sam­stöðu við aðra mik­il­væga punkta í stjörnu­korti við­kom­andi.

En hvað segir tungl­merkið þitt um þig?

Hrútur

Fólk sem er með tungl í merki Hrútsins er óþol­in­mæðin, ákefðin og hvat­vísin upp­máluð. Það lifir í augna­blikum og leið­ist mjög að bíða. Til­finn­inga­við­brögð þess geta verið sterk, en að sama skapi jafnar það sig yfir­leitt hratt.

Ein­stak­lingar með tungl í Hrúti eru ástríðu­fullir og stjórn­ast oft af ýktum til­finn­ingum og löng­unum. Vilji þeir eitt­hvað verða þeir að fá það strax og þeim leið­ist að nálg­ast til­finn­inga­mál eins og kettir í kringum heitan graut. Þeir kunna það hrein­lega ekki. Allt þarf að vera uppi á borð­inu.

Tungl­hrútar eru stundum sagðir dálítið barna­legir. Það er þó aðal­lega vegna þess að sterkar stað­setn­ingar Hrúts í stjörnu­kortum fólks gerir það að verkum að það er yfir­leitt í sterkri teng­ingu við sitt innra barn. Þeim hugn­ast ekki felu­leikur og þeir segja alltaf það sem þeir meina – oft án þess að hugsa það til enda. Þeir geta verið við­kvæmir og eiga það til að taka hlutum afar per­sónu­lega. Sjálfs­traust þeirra stendur ekki alltaf eins styrkum fótum og það lítur út fyrir að gera og skapið getur verið sveiflu­kennt.

Fólk með Hrúta­tungl er mjög sjálf­stætt og á það til að vera dálítið villt og óstýri­látt. Það er frum­legt og ber með sér mik­inn kraft. Það þarf að vera á ferð og flugi til þess að líða vel. Það er traust, stendur styrkum fótum við hlið sinna nán­ustu og er til­búið til að berj­ast fyrir þá sem þeim þykir vænt um með kjafti og klóm.

Það er mik­il­vægt fyrir þessa ein­stak­linga að þeirra nán­asta fólk kunni að meta hrein­skilni þeirra, hvat­vísi og ein­lægni. Þeir geta átt fal­leg sam­bönd við vini og maka sem leyfa þeim að vera þeir sjálfir, veita þeim frelsi og skilja villi­barnið í þeim.

Naut

Fólk sem hefur tungl í Nauti er jarð­tengt og þráir öryggi og jafn­vægi. Það vill að heim­ili þess sé griða­staður þar sem hægt er að taka því rólega og kúpla sig út úr hraða sam­fé­lags­ins. Öll skiln­ing­ar­vit þessa fólks eru virk og nýtt til hins ýtrasta – það elskar að njóta lífs­ins og lystisemda þess.

Þessir ein­stak­lingar hafa gjarnan næmt feg­urð­ar­skyn og vilja hvort tveggja að heim­ili þeirra sé fal­legt og nota­legt. Þeir eru traustir og standa við það sem þeir segja.

Nauta­tungl eru þrjósk og það er ekki snið­ugt að reyna að ýta þeim út í óvissu eða eitt­hvað sem þau eru ekki sátt við. Þeim getur verið hætt við að fest­ast í hjól­förum og þau streit­ast oft á móti breyt­ingum.

Það skiptir þau máli að búa ekki við skort – þau verða að eiga nóg í sig og á til þess að vera alveg róleg. Þetta fólk fer því yfir­leitt nokkuð vel með pen­inga.

Fólki með tungl í Nauti getur reynst erfitt að eiga við átök og óstýri­látar til­finn­ingar. Reyndar er þeim þvert um geð að bera til­finn­ingar sínar á torg og það er þeim erfitt að leyfa öðrum að sjá sig gráta. Þessir ein­stak­lingar eru samt hlýir og yfir­leitt frekar róm­an­tískir. Það er mýkt og feg­urð yfir þessu fólki og það hefur róandi nær­veru. Flestum þykir gott að vera í kringum það. Það er þessu fólki sér­lega mik­il­vægt að þeirra nán­ustu segi þeim ávallt sann­leik­ann og séu trausts þeirra verðir. Makar þeirra verða að vera þeim trúir – það getur verið afar erfitt að eiga við særð Nauta­tungl og enn erf­ið­ara fyrir þau sjálf að takast á við sárs­auk­ann.

Þetta eru ein­stak­lega trygg­lyndir vinir og makar. Nauta­tungl end­ast gjarnan lengi í sam­böndum og vin­átta þeirra getur enst ævina á enda – ef þau eru ekki svikin.

Tvíburi

Fólk sem hefur tunglið sitt í Tvíbura er mjög frjálst í anda. Það þarf á fjöl­breyti­leika að halda og líkar stöðnun afar illa. Þetta er lif­andi fólk sem elskar að læra og upp­lifa eitt­hvað nýtt. Þetta fólk er for­vitið og áhuga­vert og á auð­velt með að heilla aðra.

Þessir ein­stak­lingar kunna vel við að nota tíma sinn til að læra nýja hluti eða kafa djúpt ofan í hugð­ar­efni sín. Þetta eru rann­sak­endur að eðl­is­fari. Það getur verið dálítil ofvirkni í Tví­bura­tunglum – þau eru gjarnan á fleygi­ferð, eiga erfitt með að staldra við og hugur þeirra er á sífelldum snún­ingi. Þeim getur verið hætt við miklum áhyggjum og óró­leika. Heima fyrir geta þau verið dálítið skap­stygg og upp­stökk, þrátt fyrir að virð­ast upp­full af gleði og húmor út á við. Það hefur oft­ast með innri óróa og upp­safn­aða orku að gera.

Fólk með Tví­bura­tungl þarf yfir­leitt mikla örvun í dag­legu lífi. Þeim leið­ist afar auð­veld­lega og regla getur reynst þeim þrautin þyngri. Heima fyrir fær það oft útrás með fram­kvæmdum og stórum breyt­ingum. Ákvarð­anir og að halda sig við hluti er yfir­leitt ekki sterka hlið þeirra og þetta fólk á það til að vera sveiflu­kennt og rót­laust í afstöðu og ákvörð­unum. Á móti er það ein­stak­lega opið fyrir nýjum hug­myndum og skoð­unum ann­arra.

Fólki með tungl í Tvíbura getur reynst erfitt að tjá og skilja til­finn­ingar sínar, sem og að takast á við til­finn­ingar sinna nán­ustu.

Þetta er félags­lynt fólk sem líkar vel að vera í miklum sam­skiptum við aðra. Þessir ein­stak­lingar eru gjarnan mjög klárir og þurfa sína vits­muna­legu örvun – til að mynda með líf­legum rök­ræðum. Fólk sem á í róm­an­tísku sam­bandi við þá verður að vera til­búið til að takast á um hin ýmsu mál­efni, en Tví­bura­tunglum gengur ekki vel að eiga í nánu sam­bandi við fólk sem er fast fyrir og ekki til í að skoða mál frá öllum hliðum.

Krabbi

Tungl í merki Krabbans er mjög nátt­úru­leg tungl­staða. Það er vegna þess að Krabbinn stjórn­ast af tungl­inu, sem þýðir meðal ann­ars það að stjörnu­merkið tekur til sín sterk áhrif frá tungl­inu og ein­kennum þess.

Þetta er afskap­lega til­finn­inga­rík staða og fólk með tungl í Krabba ber þess sann­ar­lega merki. Þetta fólk er til­finn­inga­næmt, hlýtt og býr yfir ríku inn­sæi. Það er yfir­leitt frið­sælt og kærir sig síður um átök. Það þráir öryggi og nánd í nánum sam­skiptum. Þetta fólk er afar næmt á til­finn­ingar ann­arra og býr yfir miklum skiln­ingi og ástúð. Á móti eru ein­stak­lingar með tungl í Krabba auð­særðir og taka hluti afar per­sónu­lega. Þetta er því hör­undsárt fólk sem á það til að hörfa inn í skel ef þeir upp­lifa ógn.

Fólk með Krabbatungl er traust og gefur enda­laust af sér til þeirra sem þeim þykir vænt um. Þeim er stundum tekið sem sjálf­sögðum hlut. Ef það ger­ist ítrekað eða of lengi geta til­finn­ingar og hegðun fólks með þetta tungl orðið myrk og það orðið stjórn­samt og lang­rækið. Þetta fólk á líka sér­lega erfitt með að gleyma, sér­stak­lega sár­indum og því sem aðrir gera á þeirra hlut. Það á oftar en ekki erfitt með að horfa hlut­lægt á mál og þeim getur reynst erfitt að láta ekki til­finn­ingar sínar og skap hlaupa með sig í gönur.

Ein­stak­lingar með tungl í Krabba búa yfir mik­illi til­finn­inga­greind og þrá að fara á dýpt­ina í sam­skiptum – yfir­borðs­kennd sam­skipti eru þeim þvert um geð.

Heimilið er þessu fólki mik­il­vægt og það eyðir dágóðum tíma í hreiðri sínu, sem þeim þykir skipta öllu máli að sé nota­legt og öruggt. Það vill alla jafna frekar eiga indælt kvöld heima fyrir, frekar en að fara út að skemmta sér í hópi fólks. Orka þess er við­kvæm og orku­bú­skap­ur­inn tæm­ist auð­veld­lega í miklu áreiti. Þetta fólk hefur oft skemmti­legt og óvenju­legt skop­skyn, sem flestir kunna að meta.

Ljón

Fólk með tungl í Ljóni er gjarnan skap­andi og hug­mynda­ríkt. Það er traust og í þeirra huga er afar mik­il­vægt að passa upp á þá sem þeim þykir vænt um.

Ein­stak­lingar með tungl í Ljóni eru ekki endi­lega úthverfir per­sónu­leikar öllum stundum, en innst inni vilja þeir leika aðal­hlut­verkið og fá athygli. Þetta getur átt vel við í róm­an­tískum sam­böndum og í heim­il­is­líf­inu. Börn með Ljóna­tungl eru ekki endi­lega alltaf á útopnu en þau þurfa á athygli, hrósi og félags­skap að halda. Eins og með Ljóna­sólir og rísandi Ljón þarf þetta fólk að fá að hrista makk­ann sinn og láta dást að sér. Þetta eru oft góðir leið­togar sem eiga auð­velt með að heilla aðra með sér. Réttlæti er þeim mik­il­vægt.

Þetta fólk hefur sterka til­hneig­ingu til að vera þrjóskt og stjórn­samt. Í vina­hópum eru þetta yfir­leitt ein­stak­ling­arnir sem taka stjórn­ina og skipu­leggja. Þeir vilja skemmta öðrum og verða stundum dálitlir trúðar – en þeir búa yfir góðu og lif­andi skop­skyni. Þessir ein­stak­lingar eru afar stoltir og bregð­ast illa við sé stolt þeirra sært á ein­hvern hátt. Þeim er mjög annt um almenn­ings­á­lit.

Fólk með tungl í Ljóni getur verið dálítið dramat­ískt. Ef þau móðg­ast, reið­ast eða verða sár geta við­brögðin orðið á pari við ástríðu­fullan og ýktan leik­þátt.

Þetta fólk er traust og heið­ar­legt. Þeim er líka mjög annt um að aðrir komi fram við það af heið­ar­leika og eiga afar erfitt með ósann­indi og brot á trausti.

Meyja

Þeir sem hafa tungl í merki Meyj­unnar eru jarð­bundnir ein­stak­lingar sem búa yfir ákveðnu jafn­vægi út á við. Þeim er mjög annt um röð og reglu og hafa þörf fyrir að hafa stjórn á aðstæðum. Þetta fólk kann yfir­leitt vel við að sinna hinum ýmsu verk­efnum, sér­stak­lega smá­at­riðum sem krefj­ast nákvæmni, því af nákvæmni á það nóg.

Tungl­meyjur eru hjálp­samar og fá mikið út úr því að aðstoða aðra – sér­stak­lega sína nán­ustu. Það eru fá verk­efni sem ekki væri hægt að biðja þær um aðstoð með. Þær gera ávallt sitt allra besta. Þær bregð­ast hins vegar illa við sé þeim tekið sem sjálf­sögðum hlut. Það ger­ist rólega, en þær verða með tím­anum óánægðar, pirraðar og geta farið að nöldra ótæpi­lega og setja út á aðra.

Finni þær hins vegar að þær séu metnar að verð­leikum líður þeim vel.

Fólk með tungl í Meyju getur brugð­ist illa við álagi og streitu. Það hefur með­fædda til­hneig­ingu til mik­illa áhyggja og ofhugs­unar. Þar af leið­andi líður þeim best með lífið í jafn­vægi og róleg­heitum. Þetta fólk þekkir gjarnan sín mörk og forð­ast helst pressu og of mikið áreiti. Það er yfir­leitt í afar sterkum tengslum við lík­ama sinn og and­lega heilsu. Fólk með tungl í Meyju er að eðl­is­fari kvíðið og getur verið kvart­gjarnt. Þeim líkar afar illa þegar skipu­lag og fyrir fram ákveðnir hlutir ganga ekki eftir og þeim hugn­ast ekki fólk sem koll­varpar áætl­unum og ákvörð­unum stöðugt. Það er oft með slæmt sjálfs­traust og gagn­rýnir sjálft sig allt of harka­lega.

Það er mik­il­vægt fyrir þetta fólk að búa við öryggi, reglu og það skiptir miklu máli að þeim finn­ist það gera gagn. Það sýnir umhyggju og ást í gegnum litlu hlut­ina – þeim er yfir­leitt ekki tamt að vera með stórar róm­an­tískar yfir­lýs­ingar eða að sýna ástríðu innan um fjölda fólks.

Vog

Fólk með Vog­ar­tungl er yfir­leitt list­rænt, heill­andi og frið­sælt fólk. Það á auð­velt með félags­leg sam­skipti og býr yfir miklum hæfi­leikum í sam­skiptum. Þetta geta verið góðir sátta­semj­arar, því það á auð­velt með að setja sig í spor ann­arra og skoða mál frá öllum hliðum.

Það skiptir þetta fólk miklu máli að eiga fal­legt og huggu­legt heim­ili. Það vill gjarnan eiga fal­lega hluti og hefur gott auga fyrir hönnun.

Ein­stak­lingar með tungl í Vog hafa mikla þörf fyrir náin sam­bönd. Þeim finnst þeir stundum ekki full­komn­aðir nema þeir séu í lang­tíma ást­ar­sam­bandi. Þetta getur gert það að verkum að fólk með Vog­ar­tungl sæki í sam­bönd frá ungum aldri og sé lítið sem ekk­ert ein­hleypt í gegnum lífið. Sé það ekki var­kárt getur það orsakað það að þetta fólk týni sjálfu sér, verði með­virkt og gleymi að hlúa að sjálfu sér og eigin hugð­ar­efnum. Þeim getur hætt við að sam­ein­ast maka sínum um of.

Þessi ásókn Vog­ar­tungla í lang­tíma sam­bönd hefur að gera með þrá þeirra fyrir sam­veru, sam­skipti og nánd. Þau elska að skipt­ast á hug­myndum og skoð­unum, fara yfir mál frá öllum hliðum og eiga skemmti­legar rök­ræður. Þeim er eðl­is­lægt að koma auga á galla og hafa mikla þörf fyrir að laga það sem þeim þykir vera að, sér­stak­lega þegar kemur að sam­böndum. Þau þrá jafn­vægi umfram allt.

Fólk með tungl í Vog býr yfir miklum sjarma, fágun og geta verið dálitlir daðr­arar. Þetta fólk er yfir­leitt félags­lynt. Það þarf á mik­illi vits­muna­legri örvun að halda og blómstrar í líf­legum rök­ræðum, enda er þetta klárt og hugs­andi fólk sem fer vel með hið tal­aða orð. Vog­ar­tungl eru rann­sak­andi, for­vitin og grein­andi frá nátt­úr­unnar hendi.

Sporðdreki

Fólk sem hefur tungl í Sporð­dreka býr yfir djúpu inn­sæi og er dálítið dul­ar­fullt. Það er mik­il­vægt fyrir þessa ein­stak­linga að fara á dýpt­ina í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur, sem og í sam­skiptum við aðra. Þeir eru mjög ástríðu­fullir og leita sífellt í til­finn­inga­lega ákefð og dýpt.

Tungldrekar eru tor­tryggnir að eðl­is­fari og sé traust þeirra brotið er afar erfitt að vinna það til baka. Þeir gleyma engu og séu þeir særðir finna þeir til með hverri taug. Þeir eiga oft erfitt með að fyr­ir­gefa.

Það er stundum dálítið myrkur yfir þessum ein­stak­lingum og þeir þurfa að fara var­lega ef myrkrið á ekki að gleypa þá. Þeir verða að muna eftir og sjá alla ljósu liti lífs­ins.

Þetta eru gjarnan djúp­vitrir ein­stak­lingar og dálitlir ein­farar. Innsæi þeirra er ein­stakt – það getur virst sem þeir sjái í gegnum þá sem þeir eiga í sam­skiptum við og viti öll þeirra leynd­ar­mál. Af leynd­ar­málum eiga tungldrekar enda nóg – sínum eigin sem og ann­arra. Þeir eru ein­stak­lega traustir og geta varð­veitt hluti innra með sér og farið með trún­að­ar­mál í gröf­ina.

Fólki með tungl í Sporð­dreka farn­ast ein­göngu vel í róm­an­tískum sam­böndum þar sem maki þeirra hleypir þeim full­kom­lega að sér og leyfir þeim að sjá allar sínar dýpstu hugs­anir og þrár. Það þarf að hafa fullt leyfi til að kryfja maka sinn og sjá þeirra myrk­ustu hliðar. Þörfin fyrir að vita allt er mjög sterk og til þess að finna fyrir öryggi verður það að upp­lifa full­kom­inn heið­ar­leika.

End­ur­fæð­ing er ákveðið ein­kunn­ar­orð þeirra sem hafa tunglið sitt í merki Sporð­drek­ans. Þeir þurfa á því að halda að breyt­ast, end­ur­fæð­ast, end­ur­skapa – líkt og fugl­inn Fönix. Það verður að ríkja til­finn­inga­leg spenna í lífi þeirra og þeim er í blóð borið að hrista upp í hlutum í leit að ákefð og upp­skera oft tölu­verða drama­tík í lífi sínu og miklar sveiflur.

Tungldrekum farn­ast best ef þeir nota sinn mikla mátt og yfir­skil­vit­legt inn­sæi til góðra verka – til að hjálpa bæði sjálfum sér og öðrum.

Bogmaður

Fólk með tungl í Bogmanni þráir frelsi umfram allt. Þetta er almennt glatt fólk og létt í lundu. Það er félags­lynt og til þess að líða vel þarf það að ferð­ast, kynn­ast nýju fólki og vera sem mest á ferð og flugi.

Þetta eru ein­stak­lega jákvæðir og bjart­sýnir ein­stak­lingar sem sjá heim­inn í skærum litum. Þeir eru fróð­leiks­fúsir og þurfa sífellt að vera að læra eitt­hvað nýtt. Helst vilja þeir svo geta átt lit­ríkar rök­ræður um það sem þeir hafa lært – en þeim er þó mik­il­vægt að eiga síð­asta orðið og geta verið dálítið upp­fullir af sjálfum sér. Þeir eru sann­færðir um að hafa ávallt rétt fyrir sér. Þeir eiga það til að vera dálítið kæru­lausir og stund­vísi er sann­ar­lega ekki þeirra sterka hlið. Það er oft dálít­ill athygl­is­brestur í þeim.

Fólki með tungl í Bogmanni er það þvert um geð að fest­ast í hjól­förum – þetta er ekki mikil reglu­fólk og það þarf á breyt­ingum að halda til að þríf­ast. Það er gott fyrir þetta fólk að skipta reglu­lega um umhverfi til að hlaða batt­er­íin. Stöðnun er afar skað­leg lífsanda þeirra.

Tungl­bog­menn búa yfir ein­stakri aðlög­un­ar­hæfni. Þeir eru hvat­vísir, leið­ist að skipu­leggja sig fram í tím­ann og kunna best við að lifa í núinu. Skyndi­á­kvarð­anir eru þeirra ær og kýr. Þeir elska að víkka út sjón­deild­ar­hring sinn og eru öðrum oft mik­ill inn­blástur. Þeir eru opnir fyrir nýjum hug­myndum og kunna vel við að storka gömlum við­horfum og því sem þeir töldu sig áður vita.

Steingeit

Þeir sem hafa tungl í Stein­geit eru traustir og stöðugir. Þeir koma fyrir sem sterkir ein­stak­lingar og eru sér­lega hæfir og vinnu­samir í hverju því sem þeir taka sér fyrir hendur.

Mann­eskjur með þessa tungl­stöðu geta virst dálítið kaldar. Það er vegna þess að þær hafa almennt mikla stjórn á til­finn­ingum sínum, eru nokkuð lok­aðar og hleypa fólki alls ekki hratt að sér. Til­finn­ingar þeirra geta verið sterkar og sveiflu­kenndar undir niðri, en á yfir­borð­inu er allt kyrfi­lega skrúfað og fest saman. Þær nota oft kald­hæðni sem ákveð­inn skjöld.

Þetta er jarð­bundið fólk sem þrífst best í öryggi og reglu. Það getur verið dálítið íhalds­samt, en það er þó ekki algilt. Fólk með þessa tungl­stöðu er ein­stak­lega traust og þarf sjálft á traustum sam­böndum að halda, hvort sem um ræðir vini eða maka. Sveiflu­kennt fólk sem ber ofsa­fengnar til­finn­ingar á torg getur hrætt ein­stak­linga með tungl í Stein­geit.

Þessir ein­stak­lingar hafa mikla þörf fyrir virð­ingu. Þeir eru sínir eigin verstu gagn­rýnendur og eru oft afar harðir við sjálfa sig. Það skiptir þá miklu máli að standa sig og skara fram úr en stundum sjá þeir ekk­ert nema mis­tökin og litlu gall­ana. Þeim ferst best ef þeir temja sér sjálfsmildi og læra að meta sjálfa sig að verð­leikum.

Það er fal­legt þegar fólk með tungl í Stein­geit finnur sér lífs­föru­naut sem sann­ar­lega kann að meta það, hrósar því af ein­lægni og minnir það á eigin kosti.

Fólk með tungl í Stein­geit þarf að leyfa sér að slaka á endrum og sinnum, opna sig og hleypa öðrum að sér.

Vatnsberi

Þeir sem hafa Vatns­bera sem tungl­merki eru oft óvenju­legir og standa utan við hið hefð­bundna form. Þeir hafa gríð­ar­legan áhuga á fólki og fylgj­ast af athygli með mann­legri hegðun. Þeim er eðl­is­lægt að greina fólk, aðstæður og atferli. Þeim finnst heim­ur­inn for­vitni­legur og eru afar fróð­leiks­fúsir.

Fólk með tungl í Vatns­bera er yfir­leitt fram­sækið og frjáls­lynt. Komi það úr íhalds­samri fjöl­skyldu er mjög lík­legt að það hafi farið í upp­reisn gegn henni. Þetta er sjálf­stætt fólk sem þarf á frelsi og and­rými að halda. Það myndar sér sínar eigin skoð­anir, hvort sem þær fara á móti sam­fé­lags­lega sam­þykktum hug­myndum eða ekki. Það hefur ákveðna þörf fyrir að vera „öðru­vísi“ og upp­lifir sig stundum sem hálf­gerðar geim­verur.

Ein­stak­lingar með tungl í Vatns­bera hafa mik­inn vilja­styrk og eru ákveðnir. Þeir standa ávallt fast á sínu og geta verið sér­lega þrjóskir. Þeim finnst þeir oft yfir „nei­kvæðar“ til­finn­ingar hafnir og hafa stundum mikið fyrir því að neita sér um þær. Þeim er illa við til­finn­ingar á borð við afbrýði­semi og ótta. Þetta getur orðið til þess að þeir bæla niður til­finn­ingar og skamm­ast sín fyrir þær. Þeir geta í fram­hald­inu orðið aftengdir og átt erfitt með til­finn­inga­lega nánd. Það getur líka verið erfitt fyrir fólkið í kring um þá að finna fyrir dóm­hörku þeirra gagn­vart erf­iðum til­finn­ingum.

Tungl­vatns­berar sækja oft í ýmiss konar mann­úð­ar­störf og líður mjög vel á þeim vett­vangi. Þeir eru rétt­látir og góðir við fólk sem þarf á því að halda. Jafn­rétti er þeim afar mik­il­vægt og þeir vilja engan skilja útundan. Þeir eru trygg­lyndir og áreið­an­legir.

Fólk með tungl í Vatns­bera þarf alltaf að fá að vera það sjálft og á mjög erfitt með það þegar per­sóna þess er gagn­rýnd. Það er frum­legt, skap­andi og ein­stak­lega ófyr­ir­sjá­an­legt að eðl­is­fari.

Fiskar

Fólk með tungl í Fiskum er dreym­andi og býr yfir ríku inn­sæi og sam­kennd. Það gefur mikið af sér til ann­arra og er upp­fullt af ást og hlýju.

Öll skynjun þessa fólks er mjög sterk og það getur yfir­leitt lesið aðra auð­veld­lega. Það er þeim líka eðl­is­lægt að setja sig í spor ann­ars fólk og skilja eðli þeirra og hegðun. Tungl­fiskar hafa mik­inn áhuga á fólki.

Ein­stak­lingar með tungl í Fiskum skynja oft til­finn­ingar ann­arra mjög sterkt og vegna ríkrar sam­kenndar þeirra og vilja til að hjálpa öðrum geta þeir týnt sjálfum sér og drukknað í þján­ingum ann­ars fólks. Það er afar mik­il­vægt fyrir þá að læra að setja mörk og draga örlítið skýr­ari línu á milli sín og ann­arra. Annars getur orka þeirra þurrkast upp og þeir orðið daprir eða jafn­vel þung­lyndir.

Fólk með tungl í Fiskum er um margt óhefð­bundið og öðrum þykir það oft dálítið sér­stakt. Þetta er draum­óra­fólk sem á það til að vera utan við sig og týna sér í hinu ósýni­lega og ýmiss konar drauma­heimum. Það treystir á inn­sæi sitt og það sem það finnur fyrir. Þetta fólk þarf á and­rými og ein­veru að halda til að hlaða batt­er­íin fyrir sam­skipti og hið dag­lega líf. Það hefur mikla þörf fyrir frelsi og leið­ist að vera í of föstum skorðum.

Tungl­fiskar eru afskap­lega til­finn­inga­ríkir og hafa fal­legt hjarta­lag. Þeim er afar annt um aðra og verða auð­veld­lega snortnir. Sumum þykir þeir of við­kvæmir – en við­kvæmni er hluti af þeirra eðli og ekki eitt­hvað sem ætti að skamma þá fyrir. Þeir geta þó lent í því að fólk nýti sér við­kvæmni þeirra, sam­kennd og mýkt. Það er best fyrir þá sjálfa að læra að greina á milli ein­lægni og véla­bragða, en það gera þeir oft­ast með tím­anum.

Fólk með tungl í Fiskum er oft mjög list­rænt og skap­andi. Það, auk sam­kenndar þeirra og inn­sæis, gerir það oft að öfl­ugum og áhuga­verðum lista­mönnum. Oft virð­ast ham­ingju­söm­ustu Tungl­fisk­arnir hafa valið sér starfs­vett­vang á sviði list­greina á borð við skrif, tón­list­ar­sköpun og leik­list.

Stjörnu­spek­ina, ásamt ótal spenn­andi greinum og við­tölum, er að finna í nýjasta helg­ar­blaði Mannlífs. Þú getur flett blað­inu hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ