Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tilkynnt ofbeldisbrot á höfuðborgarsvæðinu í október fleiri en á sama tíma síðustu þrjú ár

Tilkynnt ofbeldisbrot á höfuðborgarsvæðinu í október fleiri en á sama tíma síðustu þrjú ár
Mynd teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: KEREM YUCEL

Skráð hegn­ing­ar­laga­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á mán­að­ar­grund­velli voru færri í októ­ber sam­an­borið við sept­em­ber­mánuð. Til­kynn­ingum um þjófn­aði fjölg­aði milli ára. Til­kynntum ofbeld­is­brotum hefur sömu­leiðis fjölgað á milli ára og sama má segja um til­kynn­ingar um akstur undir áhrifum áfengis eða ann­arra fíkni­efna.

Í októ­ber voru 857 hegn­ing­ar­laga­brot skráð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta kemur fram í mán­að­ar­skýrslu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í færslu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að til­kynn­ingum um þjófn­aði hafi fjölgað á milli mán­aða, en til­kynn­ingum um inn­brot hafi hins­vegar fækkað örlítið.

„Það sem af er ári hafa borist um níu pró­sent fleiri til­kynn­ingar um þjófn­aði en bár­ust að með­al­tali á sama tíma­bili sl. þrjú ár á undan,“ segir í færslu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot voru 130 tals­ins í októ­ber­mán­uði og voru þær tölu­vert fleiri en í sept­em­ber.

„Ekki hafa borist jafn margar til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot síðan í mars 2021. Álíka margar til­kynn­ingar bár­ust um heim­il­is­of­beldi í októ­ber og í sept­em­ber en alls voru skráðar 58 til­kynn­ingar í októ­ber. Það sem af er ári hafa borist um 10 pró­sent fleiri til­kynn­ingar sam­an­borið við með­al­fjölda sama tíma­bils síð­ustu þrjú ár á undan,“ segir í færsl­unni.

Beiðnum um leit að börnum og ung­mennum fækk­aði á milli mán­aða og voru ell­efu tals­ins í októ­ber.

Í færslu lög­regl­unnar segir einnig:

„Til­kynn­ingum um eigna­spjöll fjölg­aði lít­il­lega á milli mán­aða á meðan til­kynn­ingum um nytja­stuld á vél­knúnum öku­tækjum fækk­aði tölu­vert.

Skráðum fíkni­efna­brotum fjölg­aði á milli mán­aða en ekk­ert stór­fellt fíkni­efna­brot var skráð í októ­ber. Til­kynn­ingum þar sem öku­maður var grun­aður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkni­efna fjölg­aði á milli mán­aða sem og til­kynn­ingum þar sem öku­maður var grun­aður um ölvun við akstur. Ekki hafa borist jafn margar til­kynn­ingar þar sem öku­maður er grun­aður um ölvun við akstur síðan í októ­ber 2019.“

Um 27 pró­sent færri umferð­ar­laga­brot voru skráð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í októ­ber en að með­al­tali á sama tíma síð­ustu þrjú ár. Skráð umferð­ar­laga­brot voru 792 tals­ins í síð­ast­liðnum mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð