Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

McDonald’s á Íslandi: „Enn ein niðurlæging Íslands á alþjóðavettvangi“

McDonald’s á Íslandi: „Enn ein niðurlæging Íslands á alþjóðavettvangi“

Flestir muna þann dag þegar ham­borg­ara­stað­ur­inn frægi, McDonald’s, hvarf frá Íslandi fyrir fullt og allt. Kannski ekki allir, og ef til vill muna fæstir nákvæma dag­setn­ingu, en þó var þetta stór atburður fyrir sjálfs­mynd lít­illar, ótæpi­lega stoltrar þjóðar í miðju Atl­ants­hafi. Því miður var hann ekki til að styrkja sjálfs­mynd­ina, heldur þvert á móti. Í það minnsta ekki á þessum tíma, sem var þegar erf­iður fyrir þjóð­arsál­ina.

McDonald’s þekkja flestir neyt­endur, sama hvort þeir kunna að meta fjölda­fram­leidda borg­ar­ana eða ekki. Flestar stór­borgir státa af ótal slíkum stöðum. Veit­inga­stað­ur­inn á þó auð­vitað upp­runa sinn í Banda­ríkj­unum og ef til vill skal engan undra. Það var líka þar í landi sem maður nokkur tók sig til og borð­aði ein­ungis McDonald’s á hverjum degi í heilan mánuð. Hann er lík­lega ekki sá eini, en senni­lega sá eini sem hefur gert um það heim­ild­ar­mynd.

Sumir myndu segja að veit­inga­staðir McDonald’s séu ákveðið stöðu­tákn borga. Að margra mati tákn neyslu­hyggju; ákveð­innar sorp­menn­ingar – en stöðu­tákn engu að síður. Það var í það minnsta álit land­ans þegar veit­inga­stað­ur­inn víð­frægi hvarf á braut frá Íslandi í miðju efna­hags­hruni. Hvarf hans var tákn­rænt fyrir þetta tíma­bil í sögu Íslands.

Davíð Oddsson, Margaret Thatcher og Big Mac

Það var ákveðið stolt sem ein­kenndi umræð­una þegar fyrsti McDonald’s-stað­ur­inn var opn­aður á Íslandi, árið 1993. Það var sjálfur Davíð Oddsson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem opn­aði stað­inn með pompi og prakt, og fékk fyrsta Big Mac-inn.

„Þegar Davíð Odds­son opnar fyrsta McDon­ald‘s á Íslandi árið 1993 er hann að feta í fót­spor Mar­grétar Thatcher sem opn­aði stækk­aðan McDon­alds í Bret­landi ein­hverjum árum fyrr, og það var svo mikið stolt og gleði á Íslandi að við værum loks­ins að fá McDon­ald‘s,“ sagði Kristín Lofts­dóttir, pró­fessor í mann­fræði við Háskóla Íslands, í við­tali við Kjarnann árið 2019. Hún hafði þá nýverið gefið út bók­ina Crisis and Colon­i­a­lity at Europe’s Marg­ins: Creat­ing Exotic Iceland en hún bygg­ir á rann­sókn­ar­verk­efn­inu „Ís­lensk sjálfs­mynd í kreppu“ sem hún réðst í í kjöl­far efna­hags­hruns­ins á Íslandi.

Opnun McDonald’s hafði sann­ar­lega verið beðið með óþreyju á Íslandi, sem var 67. landið þar sem McDonald’s hóf starf­semi sína. Í frétt Morg­un­blaðs­ins frá 10. sept­em­ber 1993 er til­kynnt um opnun stað­ar­ins með orð­unum „McDonald’s opnar á Íslandi – áhersla lögð á þjón­ustu við fjöl­skyld­una“. Fyrsti veit­inga­stað­ur­inn var stað­settur á Suð­ur­lands­braut 56.

„Í hús­inu eru sæti fyrir 96 manns auk þess sem starfs­fólk við bíllúgu getur afgreitt um 150 bíla á klukku­stund. Opn­un­ar­tími McDonald’s er frá kl. 10 til 23.30 alla daga vik­unnar,“ sagði í grein Morg­un­blaðs­ins. Það var fyr­ir­tækið Lyst hf. sem var leyf­is­hafi McDonald’s á Íslandi.

Davíð Oddsson, sólg­inn í Bic Mac.

Allt hrá­efni var sagt fyrsta flokks á fyrsta McDonald’s-stað lands­ins. „McDonald’s á Íslandi notar ein­göngu sér­valið naut­gripa­kjöt frá Kjöt­bank­anum hf. í Hafn­ar­firði og í það fara engin auka­efni eða krydd. Í fisk­réttum er ein­göngu íslenskur fiskur frá IFPL, dótt­ur­fyr­ir­tæki Sölu­mið­stöðvar hrað­frysti­hús­anna í Grimsby, en IFPL fram­leiðir á annað þús­und tonn af fisk­réttum á ári fyrir alla veit­inga­staði McDonald’s á Bret­landseyjum. Kjúkling­arnir koma frá Reykja­garði í Rang­ár­valla­sýslu. Öll mjólk­ur­vara kemur frá Mjólk­ur­sam­söl­unni, gosið frá Víf­il­felli og græn­metið frá Ágæti. Ham­borg­ara­brauðin og allar umbúðir koma frá Bret­landi vegna þess að við­eig­andi tækja­kostur er ekki fyrir hendi á Íslandi,“ sagði í sömu grein í Morg­un­blað­inu. Það var því ljóst að hrá­efni væri ekki lélegt og kjötið sann­ar­lega ekki erlent, eins og gagn­rýn­is­raddir höfðu heyrst segja í aðdrag­anda opn­un­ar­innar.

Leynifélag eða sértrúarsöfnuður?

Í umfjöllun RÚV (Anna Marsibil Clausen) í til­efni af ára­tugs­af­mæli brott­hvarfs McDonald’s var rætt við Kjartan Örn Kjart­ans­son, mann­inn sem fyrstur keypti umboðið til Íslands. Hann var fram­kvæmda­stjóri Lyst hf. þegar stað­ur­inn opn­aði. Hann þurfti per­sónu­lega að vinna hörðum höndum til að hljóta leyf­is­veit­ing­una. Við lestur lýs­inga Kjartans fær les­andi á til­finn­ing­una að McDonald’s-keðjan sé ein­hvers­konar leyni­fé­lag, eða jafn­vel sér­trú­ar­söfn­uður.

Ferlið frá því Kjartan sótti um leyfið og þar til hann kom veit­inga­staðnum til Íslands tók í heild­ina um þrjú ár. Á fyrstu stig­unum þurfti Kjartan að eyða viku sem starfs­maður á McDonald’s-veit­inga­stað á Englandi. Þar var hann lægstur í gogg­un­ar­röð­inni og þurfti meðal ann­ars að þrífa ruslagáma, skúra gólf og skrúbba sal­erni. Þegar hann hafði upp­fyllt vinnu­skyldu sína í þess­ari stöðu var honum hleypt upp á næsta stig. Það var McDonald’s-háskól­inn í Manchester. Um skól­ann sagði Kjartan í sam­tali við RÚV:

Kjartan Örn Kjart­ans­son.

„Þessi skóli er bara allur rekst­ur­inn, mark­aðs­mál, gæði, hrá­efni, manna­hald,“ Námið var átta mán­uðir á lengd, svo fjöl­skylda Kjartans varð að flytja með honum út. Hann þurfti sjálfur að greiða allan kostnað og engin trygg­ing var fyrir hendi að hann myndi að lokum fá umboðið. Eins og þekkt er orðið fór þetta Kjartani í vil og hann hlaut umboð til að opna veit­inga­stað­inn vin­sæla hér á landi, með ýmsum skil­yrðum.

Kjartan sagði að þó leyfið hefði feng­ist hefði bar­átt­unni ekki verið lokið. Það mætti honum nefni­lega nokkur fyr­ir­staða þegar hingað heim var komið. Hann sagði að af ein­hverjum ástæðum hefðu „vinstri­menn“ ekki viljað stað­inn hingað.

„Þetta fór fyrir borg­ar­stjórn og sitj­andi meiri­hluta hjá Sjálf­stæð­is­flokknum fannst allt í lagi að þessi rekstur yrði á Íslandi og sam­þykkti þetta. Það gerði mér kleift að fá lóð,“ sagði Kjartan.

Eins og gefur að skilja var Kjartan því sigri hrós­andi þegar mark­mið hans loks­ins náð­ist.

Hreinlætis- og gæðakröfur á Íslandi ekki til fyrirmyndar

Margir muna eflaust eftir fyrsta McDonald’s-staðnum við Suð­ur­lands­braut, hvar veit­inga­stað­ur­inn Metro er nú til húsa. Sá staður átti reyndar að koma í stað­inn fyrir McDonald’s hér á landi þegar sá fyrr­nefndi hætti hér rekstri, en það eru skiptar skoð­anir á því hvort Metro jafn­ist á við goð­sögn­ina.

Allt þurfti að vera eftir stöng­ustu stöðlum á þessum fyrsta stað – stöðlum sem komu frá McDonald’s keðj­unni. Samkvæmt Kjartani reynd­ist það þrautin þyngri, því sumt í mat­væla­iðn­aði hér á landi var á þessum tíma ekki nógu gott að mati útsend­ara veit­inga­stað­ar­ins. Fátt stóðst kröfur þeirra, til að mynda hrein­lætis- og gæða­kröfur. Að end­ingu var það mat Kjartans að opnun McDonald’s hefði haft afar jákvæð áhrif á mat­væla­iðnað á Íslandi.

Að end­ingu opn­uðu þrír McDonald’s-staðir á Íslandi; á Suð­ur­lands­braut, á Smára­torgi og í Kringl­unni. Árið 2004, ell­efu árum eftir að fyrsti stað­ur­inn opn­aði við Suð­ur­lands­braut, ákvað Kjartan að selja veit­inga­stað­ina. Hann sagð­ist hafa verið búinn að keyra sig algjör­lega út í vinnu við stað­ina á þeim tíma­punkti. Jón Garðar Ögmunds­son keypti fyr­ir­tækið Lyst af Kjartani.

Ákvörðun tekin í miðri kreppu

Fimm árum eftir að Kjartan seldi stað­ina, árið 2009, lok­aði McDonald’s á Íslandi fyrir fullt og allt. Þetta var í miðri efna­hag­skreppu eftir banka­hrunið. Í til­kynn­ingu frá Lyst í októ­ber árið 2009 sagði:

„Lyst ehf. mun um mán­aða­mótin hætta sam­starfi við McDonald’s skyndi­bita­keðj­una, en fyr­ir­tækið rekur þrjá veit­inga­staði sam­kvæmt sér­leyfi frá McDonald’s. Rekstri stað­anna verður haldið áfram undir nafn­inu Metro.“

Ástæðan var sögð erfitt efna­hags­um­hverfi á Íslandi og hrun gengis íslensku krón­unnar mesti skað­vald­ur­inn. Síðustu ár rekst­urs McDonald’s á Íslandi varð fyr­ir­tækið að kaupa flest aðföng sín af erlendum birgjum, sem var langt því frá það sem Kjartan Örn Kjart­ans­son lagði upp með í upp­hafi. Þessar breyt­ingar voru kröfur frá höf­uð­stöðvum McDonald’s og sam­kvæmt þeirra stöðlum.

Þannig þurfti Lyst að kaupa flest hrá­efni í McDonald’s-rétt­ina, kjöt, ost, græn­meti og önnur aðföng, erlendis frá. Eftir geng­is­hrunið hækk­aði hrá­efn­is­kostn­aður veru­lega. Ekki bættu háir tollar á inn­fluttar búvörur stöð­una. Að end­ingu hafði hrá­efn­is­kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins tvö­fald­ast og rekst­ur­inn stóð ekki lengur undir sér.

Rekst­ur­inn hélt áfram undir sömu kenni­tölu þegar Metro opn­aði á sömu stöðum og höfðu hýst McDonald’s.

Frá upp­hafi mátti finna svip­aðan mat­seðil á Metro og á McDonald’s, þó deila megi um það hvort rétt­irnir séu sann­ar­lega eins. Enn eru staðir Metro opnir og í fullum gangi.

Sönnun fyrir því að Ísland væri þriðja flokks

Í bók mann­fræð­ings­ins Krist­ínar Lofts­dóttur, sem nefnd var hér að ofan, tekur Kristín dæmi um það hvernig saga McDonalds-ham­borg­ara­keðj­unnar á Íslandi end­ur­spegli stöðu okkar sem þjóðar í alþjóða­sam­heng­inu.

Um þetta sagði Kristín meðal ann­ars, á vef Háskóla Íslands: „Þegar Davíð Oddson, sem þá var for­set­is­ráð­herra, opn­aði McDonald‘s árið 1991 mátti sjá víða mik­inn fögnuð en mik­il­vægi stað­ar­ins á sínum tíma end­ur­spegl­ast auð­vitað líka í því að for­sæt­is­ráð­herra lands­ins opni skyndi­bita­stað. McDonald´s var lengi vel ein helsta tákn­mynd alþjóða­væð­ing­ar­innar og opnun hans á sér stað rétt á undan miklum breyt­ingum, þar sem nýfrjáls­hyggja er leið­ar­stef og landið verður hluti af alþjóð­legu mark­aðs- og fjár­mála­kerfi. Bent hefur verið á erlendis að í fátæk­ari löndum heims njóta alþjóð­leg vöru­merki eins og McDonald‘s ákveð­innar virð­ingar sem tákn­mynd fyrir inn­leið­ingu sam­fé­lags­ins í heild inn í alþjóð­ar­sam­fé­lagið. Þegar McDonald‘s lokar svo á Íslandi árið 2009 var lok­unin víða í sam­fé­lag­inu sett í sam­hengi við efna­hags­hrunið 2008 og sem slík túlkuð sem enn ein nið­ur­læg­ing Íslands á alþjóða­vett­vangi. Hér var næstum kom­inn sönnun fyrir því að Ísland væri á ein­hvern hátt „þriðja flokks“.“

Heim­ildir:

RÚV

Kjarninn

Vísir

Morg­un­blaðið

Háskóli Íslands

DV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ