Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Miðhiminn – starfsvettvangur, metnaður og orðspor

Miðhiminn – starfsvettvangur, metnaður og orðspor

Mið­him­inn (Medium Coeli, MC) er ás í stjörnu­kort­inu sem stað­settur er fremst í tíunda hús­inu. Í stjörnu­speki er þetta mik­il­vægur punktur í hverju stjörnu­korti sem getur sagt nokkuð til um það hvert lífs­hlaup þess sem um ræðir verður. Mið­him­inn­inn er með sterk tengsl við starfs­vett­vang og það hvernig við kjósum að marka spor okkar í sam­fé­lag­inu. Hann sýnir okkur hvert metn­aður okkar bein­ist, hvað það er sem við viljum skilja eftir okkur og hvaða orð­spori við sækj­umst eftir. Mið­him­inn­inn sýnir hvernig ein­stak­ling­ur­inn horfir á heim­inn út fyrir sjálfan sig, hvernig hann nálg­ast fag­leg sam­bönd og getur gefið sterka vís­bend­ingu um það í hvaða störfum ein­stak­ling­ur­inn finnur mesta lífs­fyll­ingu og hvar hann er lík­legur til þess að ná árangri.

Til þess að finna út hvar mið­him­inn þinn er þarftu að vita nákvæman fæð­ing­ar­tíma. Þú getur slegið hann inn á síðum á borð við Cafe Astrology.

Hrúturinn

Með mið­him­inn í Hrúti er við­kom­andi lík­legur til að þurfa spennu og hraða í þeim störfum sem hann tekur sér fyrir hendur. Það þarf að vera rými fyrir sköpun og hvat­vísi. Þessi ein­stak­lingur hefur gaman af því að vera á ferð og flugi og fer illa að vera hlekkj­aður við skrif­borð á til­breyt­ing­ar­lausri skrif­stofu. Best væri að hann fengi að fara á hinn og þennan vett­vang­inn og upp­lifa til­breyt­ingu eins og hægt er.

Mann­eskja með mið­himin í Hrúti getur verið fær leið­togi í þeim verk­efnum sem vekja áhuga hennar. Reyndar er ekki ólík­legt að það henti henni betur að vinna sjálf­stætt eða stofna sitt eigið fyr­ir­tæki og þannig vera sinn eigin yfir­maður, frekar en að vinna undir ein­hverjum öðrum.

Það er ekki óal­gengt að fólk með mið­himin í Hrúti verði ein­hvers konar frum­kvöð­ull. Þetta er afskap­lega hug­mynda­ríkt fólk og orku­mikið. Því ferst þannig yfir­leitt vel úr hendi að byrja ný verk­efni og hrinda hug­myndum í fram­kvæmd.

Hvatvísi þess­ara ein­stak­linga gerir þeim kleift að taka áhættu sem er oft algjör­lega þess virði, en stundum getur hvat­vísin þó komið þeim í vand­ræði. Eins góðir og þeir eru í að byrja á nýjum verk­efnum getur það líka reynst þeim þrautin þyngri að fylgja þeim eftir og klára málin. Þessir ein­stak­lingar eru líka bráðir og geta styggt fólkið í kringum sig með skapofsa. Það er mik­il­vægt fyrir fólk með þennan mið­himin að læra að kjarna sig, greina á milli hug­rekkis og fífldirfsku og halda still­ingu gagn­vart fólki í kringum sig. Hug­leiðsla getur hjálpað þeim heil­mikið, sem og að passa upp á að stunda reglu­bundna hreyf­ingu til að losa um orku.

Nautið

Þeir sem eru með mið­himin í Nauti eru lík­legir til að leita eftir ákveðnum stöð­ug­leika í störfum sínum. Afkoma skiptir þá miklu máli og því er of mikil óvissa ekki holl fyrir þá. Það er lík­legt að þeir reyni allt hvað þeir geta til að koma sér í þá stöðu að þurfa ekki að hafa áhyggjur af pen­ingum. Þeir gera líka ákveðnar þæg­inda­kröfur og eru ekki til í að lifa „hvernig sem er“. Heimilið er þeim mik­il­vægt og því er ekki ólík­legt að þetta fólk reyni snemma að festa kaup á eigin fast­eign. Glæsi­leiki umlykur þetta fólk og það býr yfir djúpum sköp­un­ar­krafti.

Fólk með mið­himin í Nauti er metn­að­ar­gjarnt og vinnur öll sín verk­efni vand­lega. Það kann þó ekki vel við að þurfa að gera hlut­ina of hratt og vill fá að taka sér tíma og fara djúpt ofan í saumana á við­fangs­efnum sínum. Þetta fólk nær mark­miðum sínum yfir­leitt og gerir það með glans, en þarf stundum að fá að taka sér tíma í það. Fyrir þessa ein­stak­linga er stöð­ug­leiki og öryggi í vinnu og afkomu lyk­ill­inn að kvíða- og áhyggju­leysi.

Sem starfs­maður er ein­stak­lingur með mið­himin í Nauti traustur og áreið­an­legur. Það er ákveðið öryggi sem skín af þeim og sem yfir­menn vekja þeir traust fólks­ins sem starfar með þeim. Fólki finnst það yfir­leitt í góðum höndum í kringum þessa ein­stak­linga.

Þessar mann­eskjur geta verið afar þrjóskar og það er stundum erfitt fyrir þær að vera sveigj­an­legar eftir að þær hafa einu sinni gert upp hug sinn. Þeim hættir til þess að fest­ast í hjól­förum og geta verið ansi vanafastar.

Tvíburarnir

Fólk með mið­himin í Tví­burunum þarf á tölu­verðri til­breyt­ingu að halda þegar kemur að verk­efnum og störfum. Það hentar því vel að starfa með öðrum í miklum félags­legum sam­skiptum. Þetta fólk þarf að geta talað, rök­rætt og kastað hlutum á milli. Það er heill­andi og getur verið dálitlir daðr­arar. Daðrið nota þeir stundum til að koma sér áfram.

Sá sem er með mið­himin í Tví­burunum er ekki við eina fjöl­ina felldur og er lík­lega gjarn á að skipta um skoðun og snúa hlutum á alla mögu­lega kanta. Hann þarf því að vera í vinnu sem gerir honum kleift að gera nákvæm­lega það, eða skipta af og til um starfs­vett­vang. Hann verður að vera nán­ast á stans­lausri hreyf­ingu og of vana­föst verk­efni í of langan tíma geta gert hann eirð­ar­lausan. Það þarf að vera ákveðin spenna og nóg af óvæntum upp­á­komum. Það er ágætt ef starf hans getur á ein­hvern hátt leyft honum að fara á milli staða og vinna á hinum og þessum vett­vangi.

Þessi ein­stak­lingur getur verið lið­tækur sátta­semj­ari – hann á auð­velt með að skilja mis­mun­andi hliðar út frá vit­rænu sjón­ar­horni og hjálpa fólki að mæt­ast á miðri leið. Það er fínt fyrir hann að fá að spreyta sig á ein­hverju slíku.

Það er ekki óal­gengt að mann­eskja með mið­himin í Tví­burunum finni sig í starfi blaða­manns eða ef til vill í spenn­andi starfi innan aug­lýs­inga- og mark­aðs­geirans.

Það sem fólk með mið­himin í Tví­burunum þarf að hafa í huga er að vera ekki of hvat­víst öllum stundum. Sömu­leiðis á þetta fólk oft erfitt með að taka ákvarð­anir eða taka afstöðu og standa með henni. Þetta getur vakið upp van­traust ann­arra. Því þarf þetta fólk að gæta þess að fría sig ekki ábyrgð og hafa í huga að sumt er þess eðlis að það kallar á sterka afstöðu.

Krabbinn

Þegar mið­him­inn er í Krabb­anum er fólk lík­legra en ekki til að finna sig í störfum þar sem það getur hjálpað öðrum með ein­hverjum hætti. Þetta eru næmir ein­stak­lingar sem fá mikið út úr ýmiss konar heilandi athöfnum. Þeir eru góðir í að lesa aðra og skynja líðan þeirra. Þetta er náð­ar­gáfa sem getur komið þeim ansi langt í störfum sem hafa með ein­hvers konar heilun eða hjálp að gera. Þar sem þeir eru hvort tveggja næmir á líðan ann­arra og nær­gætnir, þá ferst þeim oft vel úr hendi að fá fólk til að tjá sig og segja þeim per­sónu­lega hluti. Þannig eru þeir oft góðir sál­fræð­ingar eða með­ferð­ar­að­ilar. Sömu­leiðis eru þeir yfir­leitt öfl­ugir heil­arar, kjósi þeir að fara slíka leið.

Sem yfir­menn eru þessir ein­stak­lingar sér­stak­lega skiln­ings­ríkir og búa yfir ríkri sam­kennd. Það er gott fyrir sam­starfs­fólk og und­ir­menn að leita til þeirra og þeir þykja oft sann­gjarnir. Orð­sporið verður yfir­leitt gott. Ofur­kraftur þess­ara ein­stak­linga er í raun að vera í eins góðri teng­ingu við til­finn­inga­hlið sína og raun ber vitni. Það þýðir að þeir eru ólík­legri en aðrir til að loka á til­finn­ingar eða hólfa líðan sína niður. Fólk sem gerir það á nefni­lega á hættu að lenda í kulnun. Sá sem er með mið­himin í Krabb­anum tekur frekar eftir því þegar hallar á til­finn­ingar hans og líðan og er fljótur að finna á hverju hann þarf að halda.

Það er almennt gott að vera í kringum þetta fólk og frá því stafar hlýja. Sam­starfs­fólk sækir sér gjarnan stuðn­ing til þess. Það er lítið á útopnu og kýs frekar að stjórna undir yfir­borð­inu. Þetta fólk getur verið lúm­skt og ber metnað sinn ekki utan á sér. Það fellur ekki inn í hug­mynd um stóran og sterkan leið­toga, en getur þrátt fyrir það haft mun meiri stjórn á umhverfi sínu og fólki en nokkurn grunar.

Það sem þessir ein­stak­lingar þurfa að passa er að taka ekki allt inn á sig. Þeir geta verið ansi hör­undsárir, en sár ann­arra geta líka farið að hafa djúp­stæð áhrif á þá ef þeir taka enda­laust við án þess að brynja sig á ein­hvern hátt.

Ljónið

Sá sem hefur mið­himin sinn í Ljóninu er umfram allt leið­togi – það hrein­lega stafar af honum öryggi, stjórn og styrkur. Hann kann yfir­leitt vel við sig í sviðs­ljós­inu, en er samt sem áður góður í að láta aðra finna til mik­il­vægis. Þannig drag­ast aðrir að honum og líður vel í kringum hann.

Fólk með þennan mið­himin er afar ástríðu­fullt. Ef það er ástríðu­fullt fyrir ein­hverju fær ekk­ert það stöðvað.

Auk þess að búa yfir mik­illi leið­toga­færni er þetta skap­andi fólk. Vegna þess hve ófeimið það er, og að mörgu leyti hrifið af sviðs­ljós­inu, er ekki óal­gengt að fólk með mið­himin í Ljóninu sæki í greinar eins og leik­list eða tón­list. Greinar þar sem það getur staðið á sviði og gefið tján­ingu sinni lausan taum­inn. Þessir ein­stak­lingar eru afar metn­að­ar­gjarnir. Þeir geta þó stundum misst sjónar á mark­miðum sínum þegar þeim bjóð­ast við­ur­kenn­ingar eða aðdáun ein­hvers staðar á leið­inni. Þeir eru virki­lega flinkir í að tala fyrir framan stóran hóp af fólki og hrífa aðra auð­veld­lega með sér. Þeir eru afar sann­fær­andi. Þeim er mik­il­vægt að hafa í huga mik­il­vægi þess að ígrunda vel það sem þeir ætla að segja, til að koma í veg fyrir óþarfa drama. Þeir eiga það nefni­lega til að vera full hrein­skilnir og tala áður en þeir hugsa.

Þrjóska og stolt liggur í ljóns­ins eðli, og mið­him­inn er engin und­an­tekn­ing þar á. Þetta fólk þarf stundum að minna sig á að það sjálft er ekki upp­haf og endir alls – og að ekki dugar að taka öllu per­sónu­lega.

Meyjan

Fólk með mið­himin í Meyjunni ferst allt skipu­lag vel úr hendi og er snill­ingar í verk­efna­stjórnun. Þetta fólk á auð­velt með að ná yfir­sýn í flóknum verk­efnum og fái það tæki­færi til þess getur það skinið skært í stjórn­unar- og ábyrgð­ar­stöðum. Það væri ósk­andi að í öllum sam­starfs­verk­efnum væri einn aðili með þennan mið­himin – þá gengi allt tölu­vert betur fyrir sig. Þessir ein­stak­lingar virð­ast líka ein­hvern veg­inn geta hlaðið á sig enda­lausum verk­efnum, að því er virð­ist án þess að blása úr nös. Þeir eru afar færir í að halda mörgum boltum á lofti í einu og þola ekki að sitja auðum höndum. Þeir setja hins vegar mikla pressu á sjálfa sig og eru oft með mikla full­komn­un­ar­áráttu. Í þeirra augum er eins og ekk­ert sé nokkurn tíma nógu gott. Þessi hugs­un­ar­háttur getur valdið þeim kvíða og lágu sjálfs­mati.

Þetta fólk á það líka til að beina ofur­ná­kvæmni sinni og gagn­rýni að fólk­inu í kringum sig og sam­starfs­fólki sínu. Þannig getur mörgum virst ómögu­legt að mæta kröfum þess og sumum getur þótt það dálítil vél­menni.

Fólk með mið­himin í Meyjunni elskar að fást við hluti sem krefj­ast nákvæmni þess og vök­uls auga. Meyjan hefur almennt áhuga, inn­sæi, sem og hæfi­leika þegar kemur að hlutum sem tengj­ast lík­am­anum. Þannig ferst þeim oft vel að starfa við eitt­hvað sem teng­ist heilsu, íþróttum, nær­ingu eða lækn­ingu. Fólk með þennan mið­himin kann oft stór­vel við sig innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og ófáir í þeim hópi enda jafn­vel sem skurð­læknir.

Vogin

Mann­eskjur sem hafa mið­him­in­inn sinn í merki Vog­ar­innar eru yfir­leitt mjög list­rænar. Þær eru líka fág­aðar og hafa næmt feg­urð­ar­skyn. Fáist þær við ein­hvers konar listir geta þær yfir­leitt lyft flestum slíkum verk­efnum á næsta plan með list­fengi sínu og næmni. Það er eins og þær geti alltaf veifað töfra­sprota sínum og gert hluti betri en þeir voru fyrir.

Þær eru félags­lyndar og búa líka yfir mik­illi færni í félags­legum sam­skiptum. Þær elska að vinna með öðrum og vilja hafa tæki­færi til þess að kasta hug­myndum á milli. Þannig kom­ast þær í sitt mest skap­andi form.

Ein­stak­lingar með mið­himin í Voginni eru ein­stak­lega góðir í að skilja ólíkar skoð­anir og upp­lifun fólks og að setja sig í spor ann­arra. Þetta gerir þá að færum diplómötum og kjósi þeir slíkan starfs­vett­vang geta þeir oft­ast náð langt og notið sín vel. Þeir eru líka með afar sterka rétt­læt­is­kennd og sækja í að hjálpa öðrum. Þetta er fólk sem þolir ekki ójafn­vægi, bæði í sam­skiptum sem og í heim­inum almennt. Stundum finnur það sinn vett­vang innan lög­fræði, af mann­úð­ar­á­stæðum sem og fyrir til­stilli rétt­læt­is­kennd­ar­innar sem er þeim alltaf eins og kompás.

Þessu fólki fylgir yfir­leitt ákveðin mýkt og hlýja sem hefur róandi áhrif á aðra sem starfa með því eða í kringum það. Allt sem hefur með fólk, sam­skipti og hlustun að gera er þeim í blóð borið.

Þessum mann­eskjum er afar annt um orð­spor sitt og hvernig þær koma fyrir. Þeim er langt í frá sama um hvað öðrum finnst um þær. Þetta getur stundum gengið of langt og verið þeim til trafala. Þá fara þær að velta sér um of upp úr áliti ann­arra og verða sem lamaðar, eiga erfitt með að taka ákvarð­anir, standa með skoð­unum sínum og geta orðið með­virkar. Óákveðni fylgir þeim líka gjarnan og áhuga­svið þeirra getur stundum orðið svo breitt að þær eiga erfitt með að festa sig í ein­hverju – þeim finnst þær geta gert svo margt og að það sé ómögu­legt að velja eitt­hvað eitt. Þannig eru þær stundum með full­mörg járn í eld­inum í einu og geta verið svo­lítil fiðr­ildi.

Mann­úð­ar­störf, lög­fræði, sem og störf sem diplómatar eiga vel við þessar mann­eskjur. Ekki síður hinar ýmsu list­greinar, eins og tón­list, leik­list, rit­störf og dans.

Sporðdrekinn

Ein­stak­lingur með mið­himin í Sporð­drek­anum er afar kröft­ugur og ástríðu­fullur í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur, enda velur hann sér aldrei að sökkva sér í við­fangs­efni nema þau virki­lega kveiki í honum. Hann elskar allt sem teng­ist ein­hvers konar rann­sókn­ar­vinnu; hann vill skilja alla mögu­lega hluti og ávallt kom­ast á dýpt­ina. Honum farn­ast oft vel sem ein­hvers konar rann­sókn­ar­lög­regla, rann­sókn­ar­blaða­maður eða hrein­lega njósn­ari.

Það sem ein­kennir þessa ein­stak­linga sér­stak­lega er dýptin; það virð­ist aldrei grunnt á neinu og ef þeir hafa áhuga á ein­hverju þá fer það alla leið. Þeir eru líka sér­lega færir í að lesa fólk og næmir á mann­legt eðli. Þeir heill­ast oft af myrkum hliðum lífs­ins. Geð­lækn­ingar gætu bæði farist þeim vel úr hendi og kveikt áhuga þeirra, en sömu­leiðis verða þessir ein­stak­lingar oft lista­menn sem fást við við­fangs­efni sem eru á ein­hvern hátt tabú.

Sá sem er með mið­himin í Sporð­drek­anum elskar að gera alls kyns upp­götv­anir. Hann nýtur þess að taka hluti í sundur og setja þá aftur saman. Manns­hug­ur­inn heillar mjög, sem og geð­veiki og allt sem getur talist furðu­legt eða öðru­vísi í hinu mann­lega eðli.

Þessi ein­stak­lingur getur verið svo ákafur að það breyt­ist hrein­lega í þrá­hyggju. Hann er líka afar þrjóskur í eðli sínu. Það er erfitt að beygja hann og hann mun ekki alltaf hlusta á til­lögur ann­arra. Hann þarf að æfa sig í að vinna í sátt og sam­lyndi við annað fólk, þá farn­ast honum best. Hann getur orðið svo­lítið hungr­aður í ein­hvers konar völd, ef hann fer ekki var­lega og jarð­tengir sig. Völd fyrir honum hafa þó allt með hug­ann, stjórnun og stöðu að gera – ekki pen­inga.

Bogmaðurinn

Mann­eskja með mið­himin í Bog­mann­inum er bjart­sýn í eðli sínu og nálg­ast við­fangs­efni sín og störf á þann hátt. Hún er opin, bæði fyrir fólki og upp­lifun, og er á sífelldri hreyf­ingu. Kyrr­staða er ekki til í orða­bók hennar. Hún elskar að upp­götva sífellt eitt­hvað nýtt og læra.

Þetta er hinn ákafi, áhuga­sami nem­andi. Hann kann vel við sig þegar hann fæst við eitt­hvað sem er í stöðugri þróun. Það er mjög gott ef starf hans getur inni­haldið ferða­lög, því hann elskar að heim­sækja og upp­götva nýja staði og menn­ingu. Hann lærir best með upp­lifun.

Hann á afar gott með að fá fólk með sér í lið og er fær í að hjálpa öðrum að skilja hluti og kveikja áhuga þeirra. Þessir eig­in­leikar gera hann að ein­stak­lega góðum kenn­ara. Hann er í eðli sínu rann­sak­andi; vís­indi og kenn­ingar heilla hann gjarnan.

Sá sem er með mið­himin í Bog­mann­inum er afar félags­lyndur. Hann kann vel við að vera í kringum fólk og eiga lif­andi sam­skipti og rök­ræður.

Það býr mik­ill sprengi­kraftur í þessum ein­stak­lingum og þeir eiga gott með að byrja á nýjum verk­efnum og setja í þau ógrynni af orku. Þeir eiga það hins vegar til að ætla sér of mikið í einu og eiga stundum erfitt með að klára og fylgja verk­efnum eftir. Þessir ein­stak­lingar eru oft dálítið óstund­vísir og geta verið kæru­lausir. Þeir eru merki­lega þrjóskir og ef þeir eru reittir til reiði sýna þeir oft óvænt stórt skap sitt og geta reiðst ansi hratt og farið geyst í skapofsa sínum. Það er mik­il­vægt að þeir læri að temja sitt eigið egó.

Steingeitin

Þetta er lík­lega vinnu­samasta stað­setn­ing mið­him­ins­ins af þeim öllum. Metn­að­ar­girni litar allt sem mann­eskja með mið­himin í Stein­geit­inni tekur sér fyrir hendur. Hún er yfir­leitt með háleit mark­mið og ætlar sér langt. Einhvern veg­inn virð­ist hún alltaf ná mark­miðum sínum, stórum sem smáum.

Hún er afskap­lega með­vituð um hið ver­ald­lega og vill ákveðin þæg­indi og öryggi í líf­inu. Hún er þó alls ekki hrifin af miklu glimmer og glamúr – allt slíkt finnst henni yfir­leitt óþarfi. Gæði skipta hana hins vegar miklu máli. Hún er lík­leg til að safna að sér hinum og þessum stöðu­táknum, á borð við vand­aðar hönn­un­ar­flíkur, góða bíla og slíkt.

Þessi mann­eskja er afar flink í við­skiptum og sér­lega sleip þegar kemur að pen­ingum. Hún gæti auð­veld­lega náð langt á fjár­mála- og við­skipta­svið­inu. Hún hefur gott nef fyrir fjár­fest­ingum.

Mann­eskja með þennan mið­himin er oft með óvenju­legan og kald­hæð­inn húmor. Hún gæti auð­veld­lega gert sér mat úr því og sumar þeirra gera það sann­ar­lega, til dæmis á sviði uppi­stands eða skrifa; hvort sem er bækur, sjón­varp og kvik­myndir, eða leik­hús.

Það er þess­ari mann­eskju afar mik­il­vægt að eiga nóg og hún er skyn­söm þegar kemur að per­sónu­legum fjár­málum. Hún forð­ast skuldir eins og heitan eld­inn og ef hún fær pen­inga lán­aða, sem hún gerir þó helst ekki, þá borgar hún þá til baka um leið og hún á nokkurn mögu­leika á því, jafn­vel þótt hún þurfi að lifa á núðlum í mánuð á eftir.

Hún virð­ist stundum hafa allt skrifað hjá sér – hún gleymir engu. Stundum reyn­ist henni erfitt að treysta fólk­inu í kringum hana og hún tekur enn fleiri verk­efni að sér – svo það sé nú öruggt að ekk­ert klúðrist.

Hún sækir oft ósjálfrátt í valda­stöður. Það hentar henni betur að vera yfir öðrum en aðrir yfir henni. Hún kann vel við að stjórna, en er þó almennt skyn­söm í stjórnun sinni. Skugga­hlið hennar er að hún á það til að verða upp­tekin af völdum. Til þess að það ger­ist ekki þarf hún að muna að drekkja sér ekki í vinnu – það er nefni­lega afar mik­il­vægt fyrir þessa ein­stak­linga að halda jafn­vægi á milli vinnu og einka­lífs, þótt þeir virð­ist stundum hrein­lega lifa fyrir vinn­una. Þeir verða að muna að umkringja sig jarð­tengdu fólki sem þeir geta treyst og þykir gaman að vera í kringum. Enginn er svo ómissandi að hann geti ekki tekið sér frí.

Vatnsberinn

Það er þessum ein­stak­lingi eðl­is­lægt að horfa frekar út á við en inn á við. Sá sem hefur mið­himin í Vatns­ber­anum er heill­aður af mann­fólki, bygg­ingu sam­fé­lags­ins og sam­fé­lags­málum. Hann er for­vit­inn og hug­mynda­ríkur. Aðstæður þar sem hægt er að stúd­era annað fólk og sam­fé­lagið í heild henta honum vel.

Þessi mann­eskja er oft óvenju­leg í fasi og fram­komu og þarf að fá sitt pláss til að tjá sig á ósvik­inn hátt. Hún hugsar nán­ast alltaf út fyrir kass­ann. Það sem henni líkar verst af öllu er að vera þröngvað í fyr­ir­fram ákveðið mót.

Frelsi er þessu fólki mjög mik­il­vægt, í öllum skiln­ingi. Það er til að mynda næsta víst að til­breyt­ing­ar­laust starf, þar sem það er gróið við sama skrif­borðs­stól­inn dag eftir dag, er því ekki að skapi. Starfs­vett­vangur sem teng­ist sam­fé­lagi, mann­úð­ar­störfum eða aktí­visma á ein­hvern hátt hentar þessu fólki oft mjög vel. Vísindi eða tækni geta líka heillað það.

Þessir ein­stak­lingar eiga oft auð­velt með að halda utan um stað­reyndir og tölur. Þeir eru þannig lið­tækir í rann­sókn­ar­vinnu og öflun gagna – og þykir afar áhuga­vert að rýna í þau, svo lengi sem þau tengj­ast ein­hverju sem þeim þykir skipta máli. Þeir eiga auð­velt með að aftengja sig til­finn­inga­lega og nálg­ast hlut­ina frekar út frá hug­lægu sjón­ar­horni.

Það er þeim í blóð borið að vilja bæta heim­inn og þeim er yfir­leitt mjög annt um nátt­úr­una og dýr.

Þetta eru þrjósku­púkar og þver­hausar sem geta verið merki­lega ósveigj­an­legir í skoð­unum sínum, miðað við hversu víð­sýnir þeir eru. Öðrum getur virst þeir kaldir, vegna fram­an­greinds hæfi­leika í til­finn­inga­legri afteng­ingu – en þeim er nokk sama.

Fiskarnir

Fólk með mið­himin í Fiskunum er upp­fullt af list­fengi og næmni. Það á mjög auð­velt með að setja sig í spor ann­arra. Þetta er draum­óra­fólk sem lætur sig vanda­mál heims­ins varða og vill bæta allt og fegra.

Þessir ein­stak­lingar eru hálf­gerð kamelljón sem sveifl­ast með því umhverfi sem þeir eru staddir í hverju sinni. Þeir búa þannig sömu­leiðis yfir ríkri aðlög­un­ar­hæfni, sem kemur þeim oft­ast mjög vel þegar þeir fær­ast á milli verk­efna og starfa.

Það er alls ekki óal­gengt að fólk með mið­himin í Fiskunum sé lista­menn og það nær oft langt á því sviði. Það hefur að gera með óbilandi ímynd­un­ar­afl og sköp­un­ar­gáfu þeirra, sem og aðlög­un­ar­hæfni og næmni á upp­lifun, sögur og til­finn­ingar ann­arra. Það er ekki óal­gengt að leik­list verði fyrir val­inu. Þetta fólk virð­ist oft fest­ast í dagdraumum og því finnst það oft hrein­lega fá hug­myndir úr annarri vídd.

Oftast er þetta hlýtt og óhefð­bundið fólk sem hefur þörf fyrir að hjálpa öðrum. Þessir ein­stak­lingar hafa djúpa skynjun og næmt auga á feg­urð og sækj­ast eftir því að fegra lífið með öllum ráðum. Stundum er eins og þeir sjái heim­inn með rós­rauðum gler­augum, en það er ekki síst varn­ar­við­bragð – þeir verða ansi daprir ef þeir leyfa sér að finna og sjá allt sem þeim finnst vera í ólagi.

Fjöl­breytt störf sem krefj­ast ekki nákvæm­lega þess sama dag frá degi henta þessum ein­stak­lingum best. Þeir eiga það til að vera dálitlir sveim­hugar og geta gleymt sér í höfð­inu á sjálfum sér. Þeir geta líka verið nokkuð óskipu­lagðir og upp­fullir af ein­hvers konar athygl­is­bresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar