Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Yfirlýsing frá Pírötum: „Fordæmir það hatur og þann rasisma sem Lenya Rún hefur orðið fyrir“

Lenya Rún
Lenya Rún

Píratar segja að vara­þingmaður þeirra, Lenya Rún Taha Karim hafi allt frá upphafi stjórnmála­ferils hennar, hafi hún mætt óvægnum áróðri og rasisma. Það fordæma Píratar.

Fyrir stundu birtu Píratar yfir­lýsingu sem snéri að því hatri og þeim rasisma sem Lenya Rún hefur þurft að sæta síðan hún hóf þátttöku í stjórn­málum á Íslandi. Segja Píratar að það sé mikilvægt í lýðræðis­ríki að „allir þjóð­félagshópar hafi rödd og að Alþingi endur­spegli sem best þverskurð af samfélaginu sem það þjónarendurspegli sem best þverskurð af samfélaginu sem það þjónarendurspegli sem best þverskurð af samfélaginu sem það þjónar.“ Segja þeir ennfremur í yfir­lýsingunni að „hvers kyns rasismi, haturs­orðræða og mismunun gagnvart fólki með erlendan bakgrunn er til þess fallinn að grafa undan lýðræðinu og má ekki viðgangast átölu­laust.“

Þessu fordæma Píratar og segja Lenyu Rún rétt­kjörinn vara­þingmaður á Alþingi og að hún sé mikilvæg rödd ungs fólks með erlendan bakgrunn. Ennfremur hvetja Píratar allar stjórnmála­hreyfingar til þess að „fordæma haturs­orðræðu og rasisma í pólitískri umræðu.“ Þá biðlar þing­flokkurinn einnig til fjölmiðla að sýna ábyrgð í sínum frétta­flutningi um haturs­full ummæli með „hliðsjón af þeim skaða sem gagnrýnis­laus dreifing slíkra ummæla getur haft í för með sér.“

Hér fyrir neðan má sjá yfir­lýsinguna í heild sinni:

„Píratar sem stjórnmálaafl er stolt af því að vera hreyfing fólks með gríðar­lega fjöl­breyttan bakgrunn sem allt á það sameiginlegt að vilja gera samfélagið og heiminn betri. Þessi fjöl­breytileiki endur­speglaðist í framboðs­listum hreyfingarinnar í Alþingis­kosningum í september síðastliðnum.

Á tímabili stefndi í að fram­bjóðandi Pírata Lenya Rún Taha Karim næði kjöri sem þingmaður, yngst allra Íslendinga. Svo fór því miður ekki, en þing­flokkur Pírata mun njóta liðstyrks hennar sem vara­þingmanns á kjör­tímabilinu. Allt frá upphafi stjórnmála­ferils Lenyu hefur hún þurft að mæta óvægnum áróðri og rasisma fyrir það eitt að taka þátt í stjórn­málum. Í lýðræðis­ríki er mikilvægt að allir þjóð­félagshópar hafi rödd og að Alþingi endur­spegli sem best þverskurð af samfélaginu sem það þjónar. Hvers kyns rasismi, haturs­orðræða og mismunun gagnvart fólki með erlendan bakgrunn er til þess fallinn að grafa undan lýðræðinu og má ekki viðgangast átölu­laust.Þing­flokkur Pírata fordæmir það hatur og þann rasisma sem Lenya Rún hefur orðið fyrir, líkt og þing­flokkurinn fordæmir hverskyns haturs­orðræðu.Lenya Rún er rétt­kjörin vara­þingmaður á Alþingi og mikilvæg rödd ungs fólks og fólks með erlendan bakgrunn. Allt frá kjöri sínu hefur hún þurft að sitja undir rætnum persónu­árásum, rasisma og haturs­orðræðu vegna uppruna síns. Sumir fjöl­miðlar hafa jafnvel gengið svo langt að gera sér mat úr þeirri haturs­fullu orðræðu sem Lenya Rún hefur orðið fyrir án þess að gera nokkra athugasemd við rasismann sem í henni felst.Þing­flokkur Pírata hvetur stjórnmála­hreyfingar á Íslandi til þess að fordæma alla haturs­orðræðu og rasisma í pólitískri umræðu. Þá biðlar þing­flokkurinn til fjölmiðla að sýna ábyrgð í frétta­flutningi um haturs­full ummæli með hliðsjón af þeim skaða sem gagnrýnis­laus dreifing slíkra ummæla getur haft í för með sér. Loks lýsir þing­flokkurinn yfir fullum stuðningi við Lenyu Rún og harmar það misrétti sem hún hefur þurft að þola á sínum stutta en öfluga stjórn­málaferli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá