Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Thelma ítrekar ásakanir um kynferðsiofbeldi: „Var að spyrja hvort ég væri með kynsjúkdóma“

Thelma ítrekar ásakanir um kynferðsiofbeldi: „Var að spyrja hvort ég væri með kynsjúkdóma“

„Við erum oft ósjálfrátt búin að mynda okkur skoðun á þjóð­þekktum ein­stak­lingum, þegar það koma upp mál líkt og kyn­ferð­is­brota­mál þá er oft erfitt fyrir fólk að kyngja því að það hafi átt sér stað,“ segir Thelma Dögg Guð­mund­sen, áhrifa­valdur og förð­un­ar­fræð­ingur í sam­tali við Mannlíf á síð­asta ári.

Thelma sakar þjóð­þekktan íþrótta­f­rétta­mann um nauðgun og yfir­mann vef­mið­ils um kyn­ferð­is­legt áreiti á vinnu­stað. Thelma birti þá frá­sögn­ina á Instagram-síðu sinni og sagði þar frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hún hefur orðið fyrir, en þar segir hún um tvö atvik vera að ræða. Báðir ger­endur eru lands­fólki vel kunn­ugt að sögn Thelmu en hún nafn­greinir hvor­ugan.

Í við­tali við Mannlíf í maí á síð­asta ári segir Thelma að ástæða þess sé til að fólk geti lesið á milli lín­anna í þeim málum. Þá full­yrðir hún að báðir ein­stak­lingar hafi reynst
stikk­frí og sam­þykktir innan þjóð­fé­lags­ins. „Þessu við­horfi þurfum við að breyta því það er engin viss upp­skrift hvernig ofbeld­is­maður er,“ segir hún. „Við erum aldrei búin með umræður um kyn­ferð­is­brot og það er aldrei of oft rætt þá hluti.“

Thelma Dögg tjáði sig að nýju varð­andi sama mál í nýjasta hlað­varps­þætti Eddu Falak.

Thelma greinir frá því að árið 2014 hafi hún verið að starfa hjá vef­miðli þegar maður sem hafi verið eig­andi mið­ils­ins hafi orðið ágengur í sam­skiptum við hana og meðal ann­ars hótað henni að hann gæti gert út um feril hennar í fjöl­miðlum ef hún yrði ekki að óskum hans.

„Þegar ég byrj­aði þarna þá er staðan þannig að hann segir mér bara ein­fald­lega að ég sé ótrú­lega heppin að vera í þess­ari stöðu. Því þá var ég ekki búin með vissa menntum sem hent­aði þannig að hann væri að gefa mér rosa­lega mik­inn séns og hann væri að passa líka upp á mig. Hann væri að sjá til þess að ég væri þarna áfram,“ segir Thelma.

„Ég þurfi að fara í aðgerð ein­hvern tím­ann og hann var þá að spyrja hvort ég væri með kyn­sjúk­dóma og hvað þetta væri og af hverju ég væri að fara í aðgerð,“ segir Thelma. En henni hafi þótt þetta óvið­eig­andi.

Þyrfti að sofa hjá honum til að halda vinnunni

Síðan hafi verið mat­ar­boð fyrir vinnu­stað­inn. Þar hafi mað­ur­inn gengið fram af henni og sam­starfs­konu.

„Eftir að hann er búinn að telja mér trú um það að ég þyrfti að sofa hjá honum til að halda vinn­unni minni þá hélt hann bara áfram og hót­aði því að ég þyrfti að sofa hjá honum ef ég vildi ein­hvern tím­ann vinna aftur hjá fjöl­miðli – ef ég vildi vinna í sjón­varpi- og hann myndi sjá til þess að það yrði ekk­ert úr mér ef ég myndi ekki verða að hans óskum.“

Þessar sam­ræður hafi átt sér stað yfir um 45 mín­útna tíma­bil, en mað­ur­inn hafi króað hana af og hún átt erfitt með að koma sér undan.

„En þarna var ég ein­hvern veg­inn að reyna að koma upp orði og hann bað mig að hætta bara þessu kjaftæði og taka prikið úr rass­gat­inu á mér og alls­konar bara áfram­hald­andi. Bara ótrú­lega óvið­eig­andi og nið­ur­brjót­andi og bara kyn­ferð­is­leg áreitni sem átti sér stað þarna.“

Ekki á Tinder því hann hefði ekki undan

Hún hafi tekið orð hans nokkuð trú­an­leg þar sem mað­ur­inn á þessum tíma virt­ist mjög vel tengdur. Var bæði eig­andi af vef­miðli og með sjón­varps­þátt.

„Hann var með þátt á Stöð 2 á þessum tíma, og hann var búinn að svona ýja að því að ég mætti nú fara að kom­ast þar inn og það væri gaman ef ég myndi ná að vera þar, þetta var svona póli­tískur þáttur. Þannig í raun­inni var hann þarna að hræða mig algjör­lega frá a–ö.”

Maðurinn hafi einnig sagt við hana að hann væri valda­mik­ill, sér­stak­lega að hann hafði völd yfir konum og gæti fengið hvaða konu sem hann vildi.

„Og að hann þyrfti ekki að vera á Tinder eða ein­hverju appi því hann myndi ekki hafa undan og þyrfti að fá ein­hvern til að sjá um það fyrir sig.“

Þetta er gæinn sem borgar launin okkar

Samkvæmt frétt DV strauk hann á henni lærið og þá reyndi hún að kom­ast frá honum. Á sama tíma hafi hann líka áreitt sam­starfs­konu hennar og farið með hend­ina undir pilsið hjá henni og sagt álíka hluti og hann hafði sagt við Thelmu.

„Ég fer þarna inn á bað og hún með mér. Og við bara báðar í mjög miklu sjokki og erum að pæla hvað við ættum eig­in­lega að gera – þetta er gæinn sem borgar launin okkar og ræður því hvort við höldum okkar starfi eða ekki sko.“

Thelma hafi líka upp­lifað að aðrir í mat­ar­boð­inu sem gætu talist vitni væru með­virkir með mann­inum þar sem þau áttu einnig störf sín og afkomu undir honum komið.

Daginn eftir hafi Thelma haft sam­band við sam­starfs­konu sína varð­andi næstu skref. Þó að sú hafi rætt það í mat­ar­boð­inu að þær ættu að fara með málið lengra, hafði hún þarna skipt um skoðun því hún vildi ekki missa vinn­una. Thelma seg­ist alveg skilja það, en sjálf ákvað hún að segja starfi sínu lausu og var þá í erf­iðri stöðu þar sem hún var verk­taki og átti engan rétt á greiðslu í upp­sagn­ar­frest.

Átti engar minningar frá matarboðinu sökum áfengisóminnis

Fyrst hafði hún þó leitað til síns næsta yfir­manns en komst þá að því að umræddur maður hafi til­kynnt þeim að hann ætti engar minn­ingar frá mat­ar­boð­inu sökum áfeng­is­óminnis. Telur Thelma það ólík­legt þar sem mað­ur­inn hringdi ítrekað í hana áður en hann ræddi við yfir­mann hennar.

Eins hafi hún leitað til Blaða­manna­fé­lags­ins en félagið hafi ekki brugð­ist við.

Maðurinn hafi svo sent Thelmu skila­boð, sem má sjá hér að neðan, þar sem hann sagði hana ekk­ert eiga upp á sig að klaga.

Thelma segir að umræddur maður hafi svarað fyrir málið í kjöl­farið og beðist afsök­unar, þegar hún opn­aði sig um málið fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ