Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Thelma sakar tvo landsþekkta menn um kynferðisofbeldi: „Röddin hans var inni í íbúðinni minni“

Thelma sakar tvo landsþekkta menn um kynferðisofbeldi: „Röddin hans var inni í íbúðinni minni“

„Við erum oft ósjálfrátt búin að mynda okkur skoðun á þjóð­þekktum ein­stak­lingum, þegar það koma upp mál líkt og kyn­ferð­is­brota­mál þá er oft erfitt fyrir fólk að kyngja því að það hafi átt sér stað,“ segir Thelma Dögg Guð­mund­sen, áhrifa­valdur og förð­un­ar­fræð­ingur.

Thelma sakar þjóð­þekktan íþrótta­f­rétta­mann um nauðgun og yfir­mann vef­mið­ils um kyn­ferð­is­legt áreiti á vinnu­stað. Thelma birti nýverið frá­sögn á Instagram-síðu sinni og sagði þar frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hún hefur orðið fyrir, en þar segir hún um tvö atvik vera að ræða. Báðir ger­endur eru lands­fólki vel kunn­ugt að sögn Thelmu en hún nafn­greinir hvor­ugan.

Í við­tali við Mannlíf segir Thelma að ástæða þess sé til að fólk geti lesið á milli lín­anna í þeim málum. Þá full­yrðir hún að báðir ein­stak­lingar hafi reynst
stikk­frí og sam­þykktir innan þjóð­fé­lags­ins. „Þessu við­horfi þurfum við að breyta því það er engin viss upp­skrift hvernig ofbeld­is­maður er,“ segir hún. „Við erum aldrei búin með umræður um kyn­ferð­is­brot og það er aldrei of oft rætt þá hluti.“

„Hann myndi sjá til þess, hann hótaði mér því“

Frásögn Thelmu vakti mikla athygli á Instagram-síðu hennar og víðar, en birt­ing hennar kemur í kjöl­farið á magn­andi umræðu um kyn­ferð­is­brot ein­stak­linga sem eru þjóð­þekktir. Kveðst Thelma vera orðin þreytt á þeirri þöggun sem ríkir innan sam­fé­lags­ins hvað kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart konum varðar. Segir hún það vera óásætt­an­legt að þekkt fólk sem beitir ofbeldi kom­ist upp með hluti slíkt og spila eftir eigin reglum.

„Það að vera þjóð­þekktur ein­stak­lingur og vera með viss völd, yfir stúlkum til dæmis, er ógeðs­legt og við verðum að sýna fram á það að svona kúgun og valda­græðgi á ekki að við­gang­ast. Því það er raunin, það er það sem er að ger­ast í þjóð­fé­lag­inu þrátt fyrir að við sjáum það ekki alltaf.

Ég er orðin svo
ofboðs­lega þreytt á því að sé búið að setja upp ster­eótýpu á því
hvernig nauð­gari er“.

Margir hverjir hafa fagnað frá­sögn Thelmu á Instagram, hrósað og segir hún að margir fylgj­endur hennar hafa sagt henni frá sinni eigin reynslu þar sem valda­miklir og frægir ein­stak­lingar hafa kom­ist upp með að beita þeim ein­stak­lingum kyn­ferð­is­of­beldi. „Ég átt­aði mig ekki á því fyrr en mikið seinna hvað þetta hafði rosa­leg áhrif á mig, og hvað þetta hafði mjög lengi áhrif á mig,“ segir Thelma.

„Ég lenti í tvisvar í kyn­ferð­is­of­beldi, ann­ars vegar nauðgun og síðan
kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað. Mér var talin trú um að ég gæti
aldrei sagt neinum frá, né til­kynnt það, að ég yrði aldrei neitt ef ég myndi láta vita af því sem gerð­ist. Hann myndi sjá til þess, hann hót­aði mér því“.

„En hann er mjög flottur gaur“

Thelma rifjar upp fyrra atvikið og segir að við­kom­andi ger­andi sé
sjón­varps- og íþrótta­f­rétta­maður. „Á þessum tíma sá ég ekki fram á að
ég gæti á ein­hvern hátt tjáð mig um þetta, að mínar sak­ar­giftir yrðu gagn­rýndar og þagg­aðar niður ef svo yrði. Ég var ekki með þessa háu rödd sem ég er með í dag. Mér fannst ég ekki eiga neinn séns, engan séns á móti honum,“ segir hún og tekur fram að víða hafi heyrst gegnum tengsla­net að fólk hafi komið mann­inum til varnar.

„Ég heyrði fólk segja oft: „Þessi gaur?“. En hann er mjög flottur gaur, hann lítur nú ágæt­lega út, kemur vel fram og er í góðu starfi. Það er nákvæm­lega þetta, það er búið að setja stimp­il­inn að nauð­garar geti ekki verið þannig,“
segir Thelma.

„Þegar ég lít til baka þá var ég svo ótrú­lega lítil fannst mér og hélt að ég ætti aldrei séns í að fara á móti ger­anda mínum sem hefði tengsl og væri í vinnu hjá Rík­is­út­varp­inu. Það var aldrei séns fyrir mig að segja að þarna væri vondur maður. Hann tikkar í öll boxin út á við að vera frá­bær gaur, það trúði eng­inn þessu upp á hann.“

Thelma segir umræddan ein­stak­ling aldrei hafa horfið eftir að ofbeldið átti sér stað, var það sökum frægð­ar­innar.

„Hann var enn heima hjá mér eftir að hafa brotið á mér, í stof­unni minni þegar frétt­irnar voru sýndar.
Hann birt­ist í sjón­varp­inu mínu án þess að ég hafði val um það. Hann var í sjón­varp­inu mínu. Röddin hans var inni í íbúð­inni minni.

Hann lýsti leikjum þegar lands­liðið í fót­bólta fór á stór­mót. Á meðan nán­ast öll þjóðin horfði á leik­ina þá gat ég ekki ímyndað mér að hlusta á mann­inn sem nauðg­aði mér lýsa leikjum í 90 mín­útur“.

Þrátt fyrir að tím­inn hafi læknað ýmis sár segir Thelma að svona minn­ingar hverfa aldrei.
„Maður lærir síðan að lifa með þessu. Í dag er þetta mun minni trig­ger en þetta var, en auð­vitað hefur þetta alltaf áhrif á mann.

Ég myndi samt vilja geta stjórnað því sjálf að það þessi ein­stak­lingur birt­ist svona inn á mínu heim­ili, þó það sé í stafærnu formi. Það er málið með þjóð­þekkta Íslend­inga, þeir eru alltaf sjá­an­legir. Það er mik­ill trig­ger fyrir mann að sjá ofbeld­is­mann­inn í sjón­varpi eða á áber­andi stöðum eins og á net­inu aftur og aftur. Það á við um báða mína ofbeld­is­menn.“

„Ég passa upp á þig”

Þegar seinna atvikið átti sér stað starf­aði Thelma hjá vef­miðli. Segir hún að mörg merkin um þáver­andi yfir­mann og eig­anda mið­ils­ins fóru að verða grun­sam­leg.

„Hann tók mig á ein­stak­lings­fundi og var oft telja mér trú um það að mínir
yfir­menn, sem voru hans und­ir­menn, voru ekki sáttir með mína vinnu, en hann myndi passa upp á mig. Þetta er ekk­ert mál, Thelma. „Ég passa upp á þig“. Þetta heyrði ég oft frá honum.”

Að hennar sögn fór þá yfir­maður hennar og eig­andi vef­mið­ils­ins að senda ítrek­aða tölvu­pósta, yfir­leitt seint að kvöldi til, sem Thelmu þótti óvið­eig­andi. Þá und­ir­strikar hún að þetta hafi leitt til kvíða á vinnu­staðnum. „Hann var alltaf smám saman að gera lítið úr mér og gerði mig meira óör­ugga í starfi með sinni fram­komu gagn­vart mér. Síðan kemur að starfs­manna­hitt­ingi og við erum heima hjá einni sem vann á sama vef­miðli. Maðurinn króar mig af og þar byrjar þetta kyn­ferð­is­lega áreiti,“ segir hún og lýsir ein­stak­lingnum:

„Hann hefur verið í póli­tík, með mikil völd. Hann stjórn­aði því hvort ég fengi launin mín greidd eða ekki. Hann vissi nákvæm­lega hvar hann taldi sig hafa mig. Þetta átti sér stað í 45 mín­útur og ég var alveg frosin. Hann sagði orð­rétt að ef ég myndi ekki ríða honum, þá ætl­aði hann ekki að
passa lengur upp á mig. Það er ekk­ert annað en bein hótun og auð­vitað ólög­legt og óðgeðs­legt, hann sagði líka að hann myndi sjá til þess að ef ég myndi ekki sofa hjá honum, myndi ég aldrei verða neitt. Ég myndi aldrei aftur vinna hjá fjöl­miðli. Hann myndi sjá til þess að yrði ekk­ert úr mér. Eftir þetta kvöld mætti ég aldrei aftur til vinnu hjá vef­miðl­inum.“

Spurð að því hvort hún ætli að sækja umrædda menn til saka segir Thelma að hún sé ekki komin svo langt en úti­lokar ekk­ert.

Thelma Dögg Gud­mund­sen:
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina