Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Elísabet Ormslev var í eitruðu sambandi við eldri mann: „Ætlarðu ekki örugglega í fóstureyðingu?“

Elísabet Ormslev söngkona greindi frá eitruðu sambandi sínu við þekktan tónlistar­mann á Twitter. sambandið hófst þegar hún var aðeins 16 ára gömul en maðurinn var þá 38 ára.

Að sögn Elísabetar tók hana tíu ár að losna algjör­lega undan sambandinu sem einkenndi ofbeldi og umsátur. Maðurinn notfærði sér ungan aldur Elísabetar sem auðveldaði honum að ná á henni valdi. „Ég hafði aldrei átt kærasta og þráði ekkert heitar en að eignast einn slíkan og vera elskuð,“ segir Elísabet í Twitter færslunni. Hún hafði enga reynslu á samböndum, enda bara barn, og treysti algjör­lega á að hann vissi betur en að hennar sögn hélt hann henni í heljar­greipum í enda­lausum „haltu mér, slepptu mér“ vítahring.

Elísabet flosnaði upp úr námi í Verslunar­skóla Íslands þrátt fyrir fram­úrskarandi árangur í grunn­skóla þar sem hún útskrifaðist með 9,3 í meðal­einkunn en hún byrjaði að skrópa í skóla til að geta hitt manninn.

Maðurinn byrjaði aftur með fyrr­verandi konunni sinni en sleppti þó ekki takinu á Elísabetu heldur sannfærði hana um að það væri eðlilegt að þau hittust bara á meðan konan var í vinnuni, hann hafði þá einnig sannfært hana um að hann mætti sofa hjá öðrum konum.

Elísabet segist hafa orðið háð leyni­makkinu, rifrildunum og síðan sáttunum. „Þetta varð eins og adrenalín­sprauta eða jafnvel heróín, eitrað og ávana­bindandi“

Mig langar ekki að passa hann og þegja meira

Hún fór í það hlutverk að passa hann, full­orðinn manninn, aðeins 16 ára, þetta mátti ekki komast upp.

Samband þeirra stóð yfir í tíu ár, þau hættu og byrjuðu aftur saman ítrekað. Elísabet segir frá því þegar hún varð ófrísk eftir hann í samtali við Frétta­blaðið, einu viðbrögðin sem hún fékk frá honum voru „Ætlarðu ekki örugglega í fóstur­eyðingu?“

Eftir að sambandinu lauk tóku við umsátur að hans hálfu sem, að hennar sögn, standa enn yfir. Hann keyrir framhjá heimili hennar en nýlega flutti hún með manni sínum, stjúpdóttur og tveggja ára syni, þegar hún sá hann fyrir utan nýja heimili þeirra segist hún hafa fengið nóg. „Mig langar ekki að passa hann og þegja meira.“

Mannlíf hefur reynt að fá viðbrögð mannsins sem Elísbet ræðir um en hann svarar ekki skila­boðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá