Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Erik frá Luleå – Leitin að týnda drykkjufélaganum

Erik frá Luleå – Leitin að týnda drykkjufélaganum
Hvað myndi Hemmi Gunn gera? Við Tobbi í þýskum bjór­garði. Mynd: óþekktur eldri borgari á myndavél blaðamanns

Árið 2000 ferð­að­ist ég um Evrópu ásamt tveimur vinum mínum, þeim Tobba og Kára. Við fórum til níu landa á fimm vikum og not­uðum til þess svo­kall­aðan Interrail-passa sem við keyptum af ferða­fé­lagi fyrir stúd­enta. Ég var tví­tugur, en vinir mínir 22 ára.

Og það sem það var nú gaman. Við höfðum það fyrir sið að í hvert skipti sem við lentum í vand­ræðum þá spurðum við okkur: „Hvað myndi Hemmi Gunn gera?“ Og lausnin var und­an­tekn­ing­ar­laust að fá sér bjór. Og við það minnk­uðu vand­ræðin til muna.

Hvað myndi Hemmi Gunn gera? Við Tobbi í þýskum bjór­garði. Óþekktur eldri borg­ari með mynda­vél pistla­höf­undar

Við byrj­uðum ferð­ina í Danmörku, en leidd­ist hún og vildum fara austar sem fyrst. Þegar við vorum komnir til Prag í Tékk­landi ákváðum við að staldra þar við í nokkra daga, slíkt var verð­lagið á bjór og mat að við gátum lifað eins og kóngar. Sem við gerðum í fimm daga. Á öðrum degi þar í borg kom að okkur ungur, síð­hærður drengur með enn­is­band á höfði, í stíl við Axl Rose, söngv­ara Guns & Roses. Við vorum með sænskt tóbak í vör­unum, snus kallað, og því tók dreng­ur­inn eftir. „Are ju from Sweden?“ spurði hann með þykkum sænskum hreim. Við neit­uðum því, en sögð­umst vera frá Íslandi. Þá benti hann á var­irnar á okkur skjálf­andi: „Du ju hef snus?“ Á þessum tíma var slíkt tóbak ólög­legt í Evrópu, en dreng­ur­inn, sem sagð­ist heita Erik og vera frá Luleå í Svíþjóð, hafði verið að ferð­ast einn um álf­una í mánuð án þess að fá snus og var kom­inn með frá­hvarfsein­kenni.

Við deildum snus­inu að sjálf­sögðu með þessum nýja vini okkar. Ég og Erik tengd­umst strax miklum böndum því við vorum á svip­uðum aldri, hann var 18 ára. Einnig hlust­aði hann á Meat Loaf líkt og ég, en þá þótti það hall­æris­legt en í dag þykir það nokkuð fínt, svona af því að karl­inn er lát­inn. Og hann var með sítt hár, ég hafði verið með sítt hár nokkrum árum áður og reyndar nokkrum árum síðar aftur. Og svo var hann bara fjári skemmti­legur.

Ég hugsi fyrir utan hring­leika­húsið í Róm

Erik frá Luleå hékk með okkur alla dag­ana í Prag, þar til við héldum áfram ferða­lagi okkar. Eitt atvik stendur upp úr í Prag, en það er þegar við vin­irnir þrír ásamt Erik, stungum af á bar án þess að borga fyrir nokkra bjóra. Þetta gerðum við ekki af því að bjór­inn var svo dýr því í heild skuld­uðum við um 120 krónur á mann. Nei, við gerðum þetta af því að okkur vant­aði sögur úr ferð­inni. Það nennir eng­inn að heyra hversu grænt grasið var sem bannað var að stíga á nálægt skakka turn­inum í Pisa eða hversu heitt var í Grikk­landi. En sög­una um fjóra vit­leys­inga sem eltir voru langa leið af reiðum bar­þjónum eftir að þeir hlupu út af bar án þess að borga vilja allir heyra. Í hlaup­unum varð Erik frá Luleå við­skila við okkur hina og sáum við hann ekki aftur fyrr en dag­inn eftir. Hann hafði verið það hræddur að hann hljóp út fyrir borg­ar­mörkin og svo aftur til baka og var ekki kom­inn í mið­bæ­inn aftur fyrr en upp undir morgun.

Eitt af heimsku­pör­unum í ferð­inni.

En síðan skildi leiðir. Ég tók sjálf­sagt niður Hotmail-tölvu­póst­fang hans en týndi svo mið­anum, en lengi vel leit­aði ég Eriks frá Luleå, svona annað slagið. Til dæmis ári seinna þegar ég vann á tjald­stæð­inu á Egils­stöðum og stór ung­menna­hópur frá Luleå tjald­aði þar. Þá gekk ég um svæðið og spurði hvort þau þekktu nokkuð Erik. Þau gerðu það ekki.

Árið 2017 datt mér sú snilld­ar­hug­mynd í hug að ger­ast með­limur í sölu­grúppu á Facebook fyrir íbúa Luleå. Og svo sagði ég sög­una þar af Erik frá Luleå og heimsku­pörum okkar í Prag árið 2000 og aug­lýsti eftir honum. Næsta dag fékk ég skila­boð frá sænskri blaða­konu sem sem vildi fjalla um þessa leit mína að sænskum drykkju­fé­laga. Ég sagði henni alla sól­ar­sög­una og sendi henni ljós­myndir úr ferð­inni, en þó átti ég enga mynd af honum Erik. Og fréttin birt­ist í vef­út­gáfu blaðs frá Luleå, en það nær um stórt svæði Norður-Sví­þjóðar. Og viti menn! Erik fannst og það sem skrítn­ara var, hann var vinur manns sem vann með blaða­kon­unni.

Ungi mað­ur­inn og hafið

Ég sem sagt komst að því að Erik frá Luleå heitir fullu nafni Erik Tollin og býr enn í Luleå. Ég sendi á hann vina­beiðni á Facebook sem hann sam­þykkti og við byrjum að spjalla. Hann var orð­inn verk­efna­stjóri í bygg­inga­brans­anum og kom­inn með konu og tvö fal­leg börn. Ég var vand­ræða­lega ánægður með að hafa loks­ins fundið Erik frá Luleå eftir öll þessi ár. Og við erum orðnir vinir á Facebook. En síðan höfum við ekki átt orða­stað. Og hana nú!

Lesa má glæ­nýtt blað Mannlífs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ