Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kristján Loftsson bjartsýnn sölu hvalkjöts „Værum ekkert að þessu nema að geta losnað við þetta“

Kristján Loftsson eigand Hvals hf er ávallt spenntur fyrir hvalveiðum og hefur sótt um leyfi
Kristján Loftsson eig­and Hvals hf er ávallt spenntur fyrir hval­veiðum og hefur sótt um leyfi Mynd: © Bloomberg via Getty Images

„Ef ég hef ekki þetta leyfi til hval­vinnslu frá þá get ég ekki farið til veiða. Það er bara svo einfalt,“ sagði Kristján Loftsson, framkvæmda­stjóri Hvals hf um ummæli Matvæla­stofunnar en hún taldi  að deilur milli þeirra við Hval hf hafi ekki verið aðal­ástæða þess að ekki hafi verið haldið til hvalveiða síðan árið 2018. Deilurnar sem um ræðir hafa staðið yfir í nokkur ár en sagði Kristján að hann hafi staðið í tölvupóst­samskiptum við MAST þar sem hann hafi þurft að svara ótal spurningum.

Freydís Dana Sigurðar­dóttir, starfs­maður Matvæla­stofnunnar sagði í viðtali við Mannlíf í vikunni að Kristján hafi fengið fullgilt starfs­leyfi í haust.
„Við lítum svo á að ástæðan fyrir því að hann hafi ekki getað veitt hafi ekki verið vegna deilna við okkur, við getum ekki sagt það. Hins vegar er hann kominn núna með fullgilt starfs­leyfi síðan í haust.“

Kristján sagði leyfið vera lykil­atriði þegar kemur að veiðunum.

„Eins og ég hef skilið þetta kerfi, sem MAST hefur sett upp, þá er forsemda vinnslu matvæla að hafa starfs­leyfi frá MAST. Ef svo er ekki, eins og lesa má úr svari Freydísar Dönu Sigurðar­dóttur, starfs­manns MAST, þá eru það mjög góð og gleðileg tíðindi að fyrirtæki þurfi ekki starfs­leyfi frá MAST.“ Aðspurður hvort það væri markaður fyrir hval­kjötið sagði hann svo vera.

„Við værum ekkert að þessu nema að við gætum losnað við þetta og fengið fyrir þetta sæmilegt verð en þetta fer allt eftir genginu,“ en kjötið fer að mestu leyti til Japans

„Kvótinn er 161 hvalur plús  20 prósent í viðbót frá fyrra ári. Eins og þetta hefur verið undan­farin ár hefur þetta verið kannski 150 – 160 hvalir en svo fer þetta eftir veðri.“

Bætti Kristján því við að MAST hafi dýralækni til þess að fylgjast með því þegar gert er að hvölunum en hafi þrátt fyrir það aldrei verið haft samband við hann.

„Það er dýra­læknir sem kemur þarna til okkar þegar hver einasti hvalur kemur inn og þegar verið er að skera hann. Það er maður sem að þeir tilefna á okkar kostnað sem að keyrir til okkar og hann er búinn að vera þarna frá 2009 og þekkir þessa vinnslu alveg út og inn hjá okkur,“ sagði hann og bætti við að hann hafi hringt í dýra­lækninn áður en  hann sendi inn stjórnsýslu­kæruna til þess að athuga hvort MAST hefði rætt við hann vegna þessa máls.

„Þeir höfðu aldrei hringt í hann eitt einasta símtal,“ sagði Kristján að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá