Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Veðbankar spá Systrum ekki upp úr riðlinum enn um sinn – Úkraínu spáð sigri

Veðbankar spá Systrum ekki upp úr riðlinum enn um sinn – Úkraínu spáð sigri
Hópurinn á æfingu. Mynd: EBU

Þrátt fyrir gott gengi systr­anna Siggu, Betu og Elínar, jú og bróður þeirra, Eyþórs, á æfingum í Tórínó er gengi þeirra í veð­bönkum ekki eins gott – að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Þeim er ekki spáð upp úr riðl­inum annað kvöld en eins og spek­úlantar þekkja getur slíkt tekið snöggum breyt­ingum eftir lif­andi flutn­ing á svið­inu. Úkraínu er áfram spáð sigri.

Veð­bankar sem teknir eru saman á síð­unni Eurovisionworld hafa hingað til ekki spáð Systrum ofar­lega, þótt þær hafi klifrað upp list­ann eftir fyrstu æfing­una á stóra svið­inu. Þar þóttu þær (og Eyþór, sem af ein­hverjum ástæðum verður alltaf útundan) standa sig með stakri prýði, enda fag­mann­eskjur fram í fing­ur­góma á sviði tón­listar og söngs.

Eins og sakir standa er þeim þó ekki spáð upp úr sínum riðli í fyrri und­ankeppn­inni, sem er á dag­skrá annað kvöld, þann 10. maí. Á þeim lista Eurovisionworld verma þær 13. sætið, með 38 pró­sent líkur á að kom­ast áfram í aðal­keppn­ina.

Þau lönd sem þykja lík­leg­ust til að kom­ast upp úr sama riðli eru Úkraína, Grikk­land, Noregur, Holland, Armenía, Portúgal, Albanía, Moldavía, Lettland og Sviss.

Úkraína með yfirgnæfandi líkur

Úkraínu hefur und­an­farið verið spáð sigri af veð­bönkum og er engin breyt­ing þar á þegar síðan er skoðuð í dag. Þegar kemur að líkum á að hafna í einu af fimm efstu sæt­unum eru það Úkraína, Ítalía, Svíþjóð, Bretland og Spánn sem er spáð bestu gengi. Þegar stuðlar fyrir sig­ur­veg­ara eru skoð­aðir er Úkraína með yfir­gnæf­andi líkur á sigri, eða 49 pró­sent. Þar á eftir koma Bretland og Ítalía með 10 pró­sent vinn­ings­líkur. Atriði Sví­þjóðar er talið hafa 9 pró­sent vinn­ings­líkur og Spánn 4 pró­sent.

Hægt er að skoða ýmsa lista á síð­unni en einn þeirra inni­heldur ein­göngu Norð­ur­löndin og raðar þeim upp í sæti eftir líkum. Þar er Svíþjóð með tölu­verða yfir­burði og vermir efsta sætið. Noregur er í öðru sæti, Finnland í því þriðja, Ísland í fjórða sæti og Danmörk í botns­æt­inu.

Gott gengi á æfingum og í fjölmiðlum

Eins og áður sagði þykja Systur hafa staðið sig afar vel á æfingum og hafa horfur þeirra orðið betri eftir það. Auk þess kemur hóp­ur­inn afar vel fyrir í fjöl­miðlum þar ytra og á blaða­manna­fundum. Syst­urnar hafa mikið talað fyrir mál­efnum hinsegin sam­fé­lags­ins og trans­fólks, auk þess að beina athygli að stríð­inu í Úkraínu og sýna þjóð­inni stuðn­ing. Þau áherslu­mál hafa fengið góðan hljóm­grunn.

Íslenski hóp­ur­inn hefur nú allur fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu út úr seinna Covid-19 próf­inu sínu og því ljóst að hann mun stíga á svið í fyrri und­ankeppn­inni. Frammi­staða þeirra þar gæti hæg­lega snúið lík­unum þeim í vil. Þess ber að geta að ýmsir spek­úlantar töldu hækkun sem bætt var inn í lagið gera mikið fyrir það í flutn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð