Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Vaknaði hálflamaður hægra megin“: Jón Kristinn Snæhólm um ástina, Sjálfstæðisflokkinn og Úkraínu

„Vaknaði hálflamaður hægra megin“: Jón Kristinn Snæhólm um ástina, Sjálfstæðisflokkinn og Úkraínu
Jón Kristinn Snæhólm

Jón Kristinn Snæhólm stjórn­mála­fræð­ingur ræðir við Reyni Trausta­son meðal ann­ars um stóru ást­ina í lífi sínu sem bjarg­aði vænt­an­lega lífi hans, hann talar um Pútín sem hann segir vera með tsar­komp­lexa og hann talar um Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem honum finnst að hafi þrengst og sé orð­inn „elí­tískur”.

„Ég varð virki­lega ást­fang­inn í fyrsta sinn á ævinni þegar ég kynnt­ist gam­alli æsku­vin­konu minni aftur, Erlu Snæhólm Axels­dóttur, og eigum við bráðum eins árs brúð­kaups­af­mæli. Hún er mennt­aður skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur og var að vinna á sjúkra­húsi á Mið-Englandi og ég fór til hennar 24. apríl 2020,“ segir Jón Kristinn Snæhólm og talar um hve súr­r­eal­ískt það hafi verið þegar hann var næstum því eini mað­ur­inn í Leifs­stöð og einn af þremur far­þegum í vél­inni út. Ástæðan: Covid-heims­far­ald­ur­inn. Það voru fáir bílar á þjóð­vegum í Bret­landi þegar hann var kom­inn út.

Erla og Jón Kristinn í sínu fín­asta pússi á brúð­kaups­deg­inum.
Ég kom heim í hjóla­stól í byrjun júní 2020.

„Ég fór að sofa aðfara­nótt 3. maí og vakn­aði hálf­lamaður hægra megin. Maður fær tappa vinstra megin og þá lam­ast maður hægra megin. Erla sá hvað var í gangi og hljóp inn á bað­her­bergi þar sem hún átti réttu lyfin til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu á tappa og jafn­vel dauða. Svo fór ég í rann­sóknir og þar var þetta stað­fest. Síðan hefur þetta verið end­ur­hæf­ing hjá sjúkra­þjálf­ara og sjálfsend­ur­hæf­ing.

Ég kom heim í hjóla­stól í byrjun júní 2020 og þeir sögðu að ég fengi hugs­an­lega inni á Grensás í nóv­em­ber það ár. Þannig að við fórum aftur út og vorum með okkar eigið pró­gramm.“

Jón Kristinn er spurður hvernig hann sé í dag og hann nefnir meðal ann­ars hægri fót­inn. „Ég er ekki að hlaupa neitt eða stökkva og jafn­væg­is­skynið er ekki alveg komið. Ég er líka það hepp­inn að ég er antisportisti. Ég hef aldrei verið með mikla hreyfi­þörf.“

Hjónin eiga lít­inn hund sem heitir Theodór Snæhólm. „Við förum út að labba með hann og það styrkir mig.“

Göngu­fé­lag­inn Theodór Snæhólm.

Rússland komið í ruslflokk

Seinni hluti vetrar hefur verið Úkra­ínu­mönnum erf­iður en Jón Kristinn þekkir Úkraínu og þangað hefur hann komið vegna fyr­ir­tækja­rekst­urs síns en hann rekur inn­flutn­ings­fyr­ir­tæki sem flytur meðal ann­ars inn eld­húsinn­rétt­ingar, hurðir og skápa frá Úkraínu. „Ef fer sem horfir að það verði þarna áfram­hald­andi ófriður við Rússa þá held ég að þetta fyr­ir­tæki muni verða í læstri hlið­ar­legu um nokkra tíð en þrátt fyrir þetta er ég að sinna spenn­andi verk­efnum.“

Á þessu nær Pútín að blása upp ein­hverja fas­ista­grýlu sem er ekki til staðar í Úkraínu.

Jón Kristinn seg­ist ekki hafa átt von á þess­ari inn­rás Rússa. „Ég átti von á alls konar póli­tískum og efna­hags­legum þving­unum af hendi Pútíns. Þessi nas­ista­grýla sem hann hefur náð að æsa upp gegn Úkraínu heima fyrir er ekki alveg til­búin þó svo að Zelenskí sé eins langt frá því að vera nas­isti frekar en ég og þú, enda gyð­ingur. Maður fann fyrir í Úkraínu ákveð­inni andúð á Rússum og það ágerð­ist mikið eftir 2014 eftir að Krím­skag­inn var inn­limaður,“ segir Jón Kristinn og bætir við að það sé mikil andúð á Rússum í öllum Austur-Evr­ópu­ríkj­unum sem voru undir Sov­ét­ríkj­unum og í Var­sjár­banda­lag­inu og bendir á Eystra­salts­ríkin. „Og í þess­ari andúð eru fasískir flokkar. Fasísk elem­ent. En ofboðs­lega lítið. Þetta er ekk­ert inni á þingi eða í sveit­ar­stjórnum. Þetta eru nýnas­ista­bullur sem eru einnig í Svíþjóð, Finn­landi, Noregi og Banda­ríkj­unum. Á þessu nær Pútín að blása upp ein­hverja fas­ista­grýlu sem er ekki til staðar í Úkraínu. Það sem er að Úkraínu er land­læg spill­ing í stjórn­kerf­inu; Zelenskí ætl­aði að upp­ræta þetta.“

Jón Kristinn segir að engin kona í Austur-Evrópu hafi heyrt um MeToo-bylt­ing­una. Hann nefnir líka lýð­rétt­indi hinsegin fólks. „Ég var að ræða við kunn­ingja minn í einni af mínum síð­ustu ferðum til Úkraínu. Ég vissi það en ég spurði hann hver væru rétt­indi homma, lesbía og trans­fólks. Hann sagði að það hafi verið gay pride-ganga í Kiev og að hann hafi tekið mynd. Svo sýndi hann mér mynd­ina í sím­anum og þá sáust tveir doberman-hundar standa yfir tveimur mönnum liggj­andi á göt­unni með gay-pride-fán­ann yfir sér. Þetta er gay pride fyrir þá.“

But Mr. Snæhólm, there are no homos­exu­als in Moscow.

Jón Kristinn minn­ist í þessu sam­bandi á heim­sókn til Moskvu en hann var á þeim tíma aðstoð­ar­maður Vil­hjálms Þ. Vil­hjálms­sonar, þáver­andi borg­ar­stjóra. Jón Kristinn fór á undan til Moskvu til að ræða við yfir­völd þar um hvað yrði rætt í heim­sókn borg­ar­stjór­ans. „Þeir vildu ræða orku­mál, almenn­ings­sam­göngur og flug­samn­ing milli Moskvu og Íslands. Við Kristín Árna­dóttir, núver­andi sendi­herra, sögð­umst hafa áhuga á að ræða mál­efni hinsegin fólks í Rúss­landi. Þá hall­aði utan­rík­is­ráð­herra Moskvu sér fram á borðið og sagði „but Mr. Snæhólm, there are no homos­exu­als in Moscow“. Firr­ingin er ennþá þarna.“

Jón Kristinn er spurður hvort hann geti ein­hvern veg­inn skilið það sem Pútín er að gera. Hvaða rök eru fyrir þessu? „Þau eru sögu­legs eðlis. Rússland hefur litið á umheim­inn sem óvin og með réttu, enda ráð­ist inn í þetta ríki frá sagna­ritun. Ég held að ef Pútín væri Lísa í Undra­landi þá myndi hann inn­lima Eistland, Lettland og Litháen og Pólland. Þetta er partur af hinu stóra rúss­neska keis­ara­dæmi. Pútín er með tsar­komp­lexa og hann sér sig sem þennan stóra, valda­mikla mann sem allir taka mark á í Evrópu. Hann las þetta því miður vit­laust. Hann gerir öll hern­að­ar­mis­tök sem er að finna í bók­inni, sem þýðir að þessi goð­sögn um rúss­neska björn­inn er hrunin. Hann er búinn að veikj­ast á alþjóða­vett­vangi og þá er hann kom­inn í rusl­flokk sem þjóð­ar­leið­togi. Heima fyrir heldur hann uppi fasískri ógn­ar­stjórn með því að stjórna öllum fjöl­miðlum; hann stjórnar umræð­unni og hann hefur allar bjarg­irnar í stjórn­kerf­inu í hendi sér, þar á meðal hernum og leyni­þjón­ust­unni. Meðan það er, er allt Rússland komið í rusl­flokk.“

Hægrið

Jón Kristinn Snæhólm er hægri­maður. Sjálf­stæð­is­maður. „Þetta hefur verið þroska­ferli hjá mér í Sjálf­stæð­is­flokknum. Ég byrj­aði að lesa um stjórn­mál 12-13 ára að aldri og þótti ég vera mjög skrýtið barn að vera að tjá mig um þetta í skól­anum. Það mark­að­ist af því að það voru mjög vinstrisinnuð elem­ent í minni fjöl­skyldu og svo hægrisinnuð. Halldór Snæhólm, langafi minn, var einn af stofn­endum Íslenska komm­ún­ista­flokks­ins á Akureyri 1930. Njörður afi minn yfir­rann­sókn­ar­lög­reglu­þjónn var mjög vinstri­s­inn­aður en sner­ist síðan frá komm­ún­isma í seinni heims­styrj­öld­inni þegar hann barð­ist með frjálsum Norð­mönnum og varð síðan mið-hægri­maður.

Svo voru það Haf­stein­arnir; móðir mín er Þórunn Hafstein. Pabbi hennar var Jón Kristinn Hafstein tann­læknir. „Jón Kristinn Snæhólm segir þá ætt vera hægri­s­inn­aða. Nefnir langafa sinn, Júlíus Hafstein, og Jóhann Hafstein sem varð for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra. „Svo byrj­aði maður að lesa sér til og heyrði þessar sögur og upp­lifun afanna beggja. Ég var mjög náinn þeim. Sótti mikið í afa mína. Það var tvennt sem kom út úr því. Þeir sögðu báðir að ég ætti ekki að verða komm­ún­isti eða vinstri­maður af því að það væri svo mik­ill óánægju­iðn­aður í þessu fólki.“

Drengnum var líka ráð­lagt að verða aldrei frí­múr­ari. Jón Kristinn Snæhólm varð hvorki komm­ún­isti, vinstri­maður né frí­múr­ari. Hann varð Sjálf­stæð­is­maður.

Breytti mér mjög mikið; úr hörðu hægri yfir í milt hægri. Umhyggju­samt hægri.

„Ég var vara­bæj­ar­full­trúi 1990 í Kópavogi og starf­aði með önd­veg­is­mönnum, Gunnari Birg­is­syni og Sigurði Geirdal, í tvö kjör­tíma­bil og lærði mikið. Síðar varð ég aðstoð­ar­maður Vil­hjálms Þ. Vil­hjálms­sonar borg­ar­stjóra,“ segir Jón Kristinn sem er sagn­fræð­ingur og alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur. „Það að starfa með Vil­hjálmi í þessi tvö ár breytti mér mjög mikið; úr hörðu hægri yfir í milt hægri. Umhyggju­samt hægri.“ Hann við­ur­kennir að hafa farið svo­lítið inn að miðj­unni. „Já, það má segja það og ég upp­götv­aði það að Ísland er land án öfga í stjórn­málum. Ísland vill þetta ekki, það sést kannski best núna í úrslitum bæjar- og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna að fólk sækir inn á miðj­una. Það finnur meiri hlýju og umhyggju þar.“

Mikil undiralda

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði 24,5% upp úr krafs­inu. Hvað er að ger­ast í flokknum? „Ég er með þá kenn­ingu að á und­an­förnum árum hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þrengst. Hann hefur gleymt upp­runa sínum,“ segir Jón Kristinn og seg­ist halda að flokk­ur­inn sé orð­inn „elí­tískur“. „Það er ekki pláss fyrir hinn almenna borg­ara í for­ystu­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Af hverju erum við að horfa upp á það að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að tapa fylgi? Það er vegna þess að ein­hvers staðar í þess­ari veg­ferð þá glat­aði hann upp­runa sínum. Ef stjórn­mála­flokkar glata upp­runa sínum þá glata þeir trausti og síðan fylgi og hverfa, en það er hægt að ná tökum á þessu.“

Þannig að for­ysta flokks­ins verður að fá end­ur­nýjað umboð eða ný for­ysta að koma fram.

Hverju þarf að breyta?

„Þetta er spurn­ing um að taka þessa umræðu um hvar við erum stödd og síðan þurfum við að finna út af hverju við erum þar. Ég er búinn að nefna eitt: Forysta flokks­ins og ásýnd hans er þröng. Hvað þarf að gera þá? Þá þarf að kalla til lands­fundar,“ segir Jón Kristinn og bætir við að for­ystan þurfi ann­að­hvort að horfast í augu við sjálfa sig og segja að okkar tími sé ein­fald­lega lið­inn, það þurfi nýtt fólk til að taka við flokknum, eða sjá hvað setur og sækja nýtt umboð til Sjálf­stæð­is­manna á lands­fundi. „Það liggur bara ljóst fyrir að það er það mikil und­ir­alda í flokknum, plús að það hefur ekki verið hald­inn lands­fundur hjá Sjálf­stæð­is­flokknum út af Covid síðan 2019, þannig að for­ysta flokks­ins verður að fá end­ur­nýjað umboð eða ný for­ysta að koma fram.“

Sjá má við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina