Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ánægður með Bocelli en óánægður með Tix: „Fékk ekki þá upplifun sem ég borgaði dýrum dómi fyrir“

„Andrea Bocelli er uppáhalds söngvari minn og ég greip tækifærið og keypti tvo platínum miða fyrir mig og kærustu mína sem kostuðu 71.800 krónur, og að auki keypti ég bílastæði fyrir 4490 krónur,“ segir Gísli Hvanndal í samtali við Mannlíf og bætir við:

Andrea Bocelli

„Málið snýst ekki um peninga, ég hefði keypt miðana þótt þeir hefðu verið dýrari. Málið er að ég og kærastan áttum að vera beint fyrir framan sviðið, í því hólfi, fjórðu röð út í enda hægra megin. Þegar við komum á svæðið þá var af einhverjum ástæðum okkar hólf til hliðar, næsta hólf við og allir í kringum okkur voru að sjálfsögðu mjög óánægðir þannig að ég talaði tvisvar við starfs­mann sem sagðist ætla að redda þessu en ekkert varð úr því.“

Gísli segir að „þannig ég fékk ekki alveg þá upplifun sem ég borgaði dýrum dómi fyrir, ég hefði viljað vera beint á móti stórkostlegasta tenór í heimi sem mig hefur dreymt um að vera á tónleikum með alla ævi, eins og ég borgaði fyrir. Tix hefur ekki svarað mér þrátt fyrir tölvupóst og símtal við ritara sem sagði að það yrði haft samband við mig.

Jóhanna Guðrún Jóns­dóttir. Mynd / Saga Sig

Að því sögðu voru tónleikarnir stórkost­legir og að sjá Jóhönnu Guðrúnu syngja lagið The Prayer með þessum merka manni var stórkostlegt og ég samgladdist henni svo mikið og nokkrum sinnum þegar kom að Andrea Bocelli að syngja þá leit Jóhanna Guðrún á hann og ég sá á svipnum henni að hún var að hugsa:

„Er þetta virkilega að gerast?“

Honum fannst „Jóhanna Guðrún stórkostleg eins og alltaf, og Andrea Bocelli tók öll sín bestu lög og var klappaður upp fjórum sinnum og endaði á Nessum Dorma; einfald­lega ótrúleg lífs­reynsla,“ segir Gísli og heldur áfram:

„En mér þykir miður að ég og kærastan fengum ekki okkar rétt borguðu sæti og þá upplifun sem við hefðum viljað fá í meiri nálægð við þennan einstaka tenór. Ég vona að Tix vandi sig betur í fram­tíðinni og sýni fólki síðan þá kurteisi að svara fyrir­spurnum. Við enduðum síðan á því að fara á tónleika á mánudeginum með Ólafi Arnalds í Háskólabíó en ég hafði aldrei heyrt tónlist hans. Það sem ég vil segja um hann er það að það eru engin orð til að lýsa hve stórkost­legur lista­maður og manneskja hann er; nema það að tónlist hans og persónu­leiki fer inn í mann innsta kjarna og er einstök upplifun og hann er tónlistar­maður á heims­mælikvarða eins og Andrea Bocelli; bara hvor á sínu sviði.

Ólafur Arnalds

Báðir þessir snillingar fá 5 stjörnur frá mér og konunni og ég mæli með nýjasta diski Ólafs Arnalds.

En að lokum þá þykir mér miður að utanhald um tónleika Andrea Bocelli hafi ekki verið betra og ég ekki fengið það sem ég borgaði fyrir. Langaði bara að benda á þetta með vinsemd,“ sagði Gísli að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá