Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Yngsti fangi landsins“: Sviptur reynslulausn og situr áfram í fangelsi – Grunaður um skotárás

„Yngsti fangi landsins“: Sviptur reynslulausn og situr áfram í fangelsi – Grunaður um skotárás
Hrannar Fossberg Við­ars­son. Mynd/skjá­skot. Vísir

Hrannar Fossberg Við­ars­son, var úrskurð­aður í dag af Lands­rétti að afplána eft­ir­stöðvar refs­ingar af dómi sem hann hlaut í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur árið 2018, en honum var veitt reynslu­lausn árið eftir. DV fjall­aði um málið.

Hrannar er grun­aður um skotárás á par í Graf­ar­holti aðfara­nótt fimmtu­dags­ins 10. febr­úar síð­ast­lið­ins. Félagi Hrannars var einnig hand­tek­inn, en Hrannar er sá sem grun­aður er um að hafa skotið á parið. Verkn­að­ur­inn er tal­inn hafa verið út af afbrýði­semi en sam­kvæmt úrskurð­inum voru Hrannar og konan áður par.

Áverkar hennar voru lífs­hættu­legir, en byssu­skot Hrannars hæfði kon­una í kvið­inn og mað­ur­inn fékk skot í læri. Konan þurfti að gang­ast undir aðgerð til að fjar­lægja byssu­kúl­una úr lík­ama hennar.

Samkvæmt úrskurð­inum ját­aði hinn mað­ur­inn að hafa ekið Hrannari á vett­vang. Þegar komið var að heim­il­inu í Graf­ar­holti urðu menn­irnir varir við fyrr­ver­andi unn­ustu Hrannars. Hrannar hafi þá kallað til kon­unnar og hafi þá skotið úr byssu í átt að par­inu.

Púð­ur­leifa­rann­sóknir lög­reglu eru sagðar styðja við fram­burð félaga Hrannars en þær gefa til kynna að skotið hafi verið út um far­þega­glugga bíls­ins en Hrannar sagt í far­þega­sæt­inu frammi í, félagi hans sat hins vegar undir stýri.

Fékk þann vafasama heiður að vera yngsti fangi landsins

Hrannar hefur rætt um í fjöl­miðlum erf­iða ævi, en hann á langan brota­feril að baki. Hann leidd­ist ungur út í neyslu og kom að lok­uðum dyrum í kerf­inu þegar hann reyndi að leita sér hjálpar. Þegar hann var sextán ára gam­all hlaut hann skil­orðs­bund­inn dóm fyrir til­raun til mann­dráps og stór­fellda lík­ams­áras en hann var aðeins 15 ára gam­all þegar brotin áttu sér stað.

Í des­em­ber 2017 var hann titl­aður á Vísi yngsti fangi lands­ins en þá var hann vistaður í síbrota­gæslu á Hólms­heiði aðeins 18 ára að aldri. Þar hafði Hrannar orð á því að fang­elsið væri besta með­ferð­ar­úr­ræði sem hann hafði kom­ist í kynni við en lítið væri við að vera varð­andi vinnu og að hann hafi ekki fengið nein svör við til­raunum sínum til að skrá sig í fram­halds­skóla­nám.

Í febr­úar 2018 greindi Hrannar frá því þegar í við­tali við DV þegar hann var þá nýorð­inn 19 ára gam­all að hafi verið dæmdur í fimm ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir marg­vís­leg brot – meðal ann­ars  fyrir brot á vopna-, fíkni­efna-, og umferð­ar­lögum auk hót­ana um ofbeldi.  Þungur dómur Hrannars helg­að­ist af því að með afbrot­unum hafði hann rofið hinn skil­orðs­bunda dóm sem hann hlaut tveimur árum fyrr.

Hrannar hefur setið í gæslu­varð­haldi frá 11. febr­úar vegna skotárás­ar­innar í Graf­ar­holti. Rannsókn Graf­ar­holts­máls­ins er sögð vera á loka­stigi en Hrannar er að verða búinn að afplána leyfi­legan hámarks­tíma gæslu­varð­halds.

HÉR er hægt að lesa úrskurð­inn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi