Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Aðför við spítalann: „Hópur manns ætlar að draga barnið út gegn vilja sínum og færa í hendur föður“

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

„Hópur manns stendur fyrir utan deild sjúkra­hússins og ætlar með öllum ráðum að draga barnið út gegn vilja sínum og færa í hendur föður sem það óttast og hefur eindregið hafnað samskiptum við. Barna­vernd Reykja­víkur, Sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu og lögreglan standa að þessari aðgerð. Lögmaður móður hefur reynt að skýra stöðu barnsins en engu tauti er komið við þessa aðila,“ segir í tilkynningu sem Líf án ofbeldis birti á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu. Staðfesti Guðmundur Pétur Guðmundsson, lögreglu­fulltrúi, í samtali við Mannlíf að lögregla væri á svæðinu, til aðstoðar Barna­verndar. Þá kemur fram í tilkynningunni að barnið vilji ekki búa hjá föður sínum og hafi ávallt reitt sig á umönnun móður.
„Með aðgerðinni ætla yfirvöld að knýja fram úrskurð um lögheimili barns hjá föður gegn vilja barnsins. Rökstuddur grunur er um lang­varandi andlegt og líkamlegt ofbeldi föðurins gagnvart börnunum og móður þeirra. Framkvæmd aðfarar í andstöðu við vilja barnsins er án undan­tekningar til þess fallin að skapa gríðarlegt tilfinningalegt álag fyrir barnið sem er langveikt og hefur ávallt reitt sig alfarið á umönnun móður sinnar. Mikil hætta er á að barnið hljóti óbætanlegan skaða af. Við fordæmum með öllu þetta skeytingar­leysi gagnvart hagsmunum barna með fyrir­hugaðri aðgerð og hrotta­lega framkomu stjórn­valda gagnvart þolendum ofbeldis.“

„Barnið er nógu þroskað til þess að tjá vilja sinn og það brýtur í bága við grundvallar­reglu barna­réttar, samkvæmt Barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna (12,gr.) og íslenskum barna­lögum um rétt barns til að tjá sig (43.gr.) að horfa framhjá honum. Hæstiréttur hefur staðfest, með tilliti til stjórnar­skrár­varins réttar barns til fjölskyldu­lífs (1. mgr. 71. gr.), að ætíð skuli meta hvað barni er fyrir bestu út frá hagsmunum barnsins og rétti þess til einkalífs og friðhelgi sem einnig er varinn af íslenskri stjórnar­skrá (3. mgr. 76. gr.).“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá