Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hlutfall alvarlega slasaðra hátt: „Við þurfum að hafa hraðar hendur“

Hlutfall alvarlega slasaðra hátt: „Við þurfum að hafa hraðar hendur“
Mynd/skjá­skot. Sam­göngu­stofa

„Við þurfum að hafa hraðar hendur við að tryggja umferð­ar­ör­yggi allra þeirra sem kjósa að nota smá­far­ar­tæki. Tillögur starfs­hóps­ins eru því mik­il­vægt inn­legg í end­ur­skoðun umferð­ar­laga með til­liti til þessa nýja ferða­máta,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra.

Smá­far­ar­tækjum, aðal­lega raf­hlaupa­hjólum, hefur fjölgað ört á síð­ustu árum. Í loka­skýrslu starfs­hóps skýrslu varð­andi mála­flokk­inn segir að þæg­indi og aukin vit­und um umhverf­is­á­hrif umferðar stuðli að þessum vexti, en ávinn­ingur sam­fé­lags­ins felist m.a. í minni umferð­artöfum í þétt­býli og minni mengun frá umferð.

Kynntar eru sex til­lögur til úrbóta til að auka öryggi not­enda smá­far­ar­tækja og ann­arra veg­far­enda  um smá­far­ar­tæki.  Til­lög­urnar eru til þess gerðar að styðja við notkun fjöl­breyttra umhverf­is­vænna far­ar­skjóta með öruggum hætti.

Í skýrsl­unni er lagt til að skýr mörk verði sett varð­andi ölvun öku­manna, ald­urs­mörk öku­manna verði 13 ár og bannað verði að breyta hámarks­hraða öku­tækja. Þá er lagt til að umferð­ar­fræðsla verði með skýrum hætti hluti aðal­námskrár grunn­skóla. Skýrslan verður höfð til hlið­sjónar við und­ir­bún­ing frum­varps til breyt­inga á umferð­ar­lögum sem lagt verður fram á Alþingi næsta vetur.

Alvarleg slys algeng

Hópurinn athug­aði slysa­gögn sem leiddu í ljós að slys eru algeng.

Árið 2021 var hlut­fall þeirra sem voru á raf­hlaupa­hjóli meðal alvar­lega slas­aðra orðið 17% en akstur á raf­hlaupa­hjólum er innan við 1% af allri umferð. Þá kom í ljós að 40% þeirra sem slasast alvar­lega á raf­hlaupa­hjóli voru á ferð á milli kl. 23 og 04 á föstu­dags- og laug­ar­dags­kvöldum.

Margir þeirra reyn­ast einnig ölv­aðir við komu á slysa­deild Lands­spít­ala. Í könnun um akst­urs­hegðun kom í ljós að 40% ungra veg­far­enda (18-24 ára) hafa ekið tækjum undir áhrifum áfengis. Loks er algengt að börn undir 10 ára aldri komi á slysa­deild eftir óhöpp við akstur raf­hlaupa­hjóla.

Eft­ir­far­andi eru til­lögur hóps­ins til úrbóta:

  1. Nýr flokkur öku­tækja: Nýr öku­tækja­flokkur smá­far­ar­tækja verði inn­leiddur í umferð­ar­lög. Í reglu­gerð verði að finna nán­ari flokkun smá­far­ar­tækja eftir gerð og eig­in­leikum. Miðað verði við að smá­far­ar­tæki séu ekki hönnuð til hrað­ari akst­urs en 25 km/klst. Hjól sem eru yfir settum mörkum verði ekki leyfi­leg í umferð.
  2. Ölvun öku­manna: Sett verði hlut­læg við­mið sem feli það í sér að refsi­vert verði að stjórna smá­far­ar­tæki ef magn áfengis er meira en 0,5 ‰ í blóði öku­manna, eða 25 mg vín­anda í hverjum lítra lofts sem er sam­bæri­legt við mörk við akstur vél­knú­inna öku­tækja. Sektir vegna brota verði hækk­aðar í for­varn­ar­skyni og miðað við að ljúka málum á staðnum með greiðslu sektar, fremur en að hand­taka öku­menn og færa á lög­reglu­stöð til skýrslu­töku og blóð­rann­sóknar, ef hjá því verður kom­ist.
  3. Aldur öku­manna: Ald­urs­mörk öku­manna aflknú­inna smá­far­ar­tækja verði 13 ár en hjálma­skylda mið­ist við yngri en 16 ára.
  4. Almennt bann við því að breyta hámarks­hraða: Lagt verði bann við breyt­ingum á hraða­still­ingum aflknú­inna smá­far­ar­tækja, léttra bif­hjóla og raf­magns­reið­hjóla.
  5. Færni ung­menna í umferð: Í umferð­ar­lögum segir að umferð­ar­fræðsla skuli fara fram í leik-, grunn- og fram­halds­skólum og að ráð­herra sem fer með fræðslu­mál ákveði nán­ari til­högun fræðslu í aðal­námskrá. Til að tryggja fylgni við lög er lagt til að ráð­herra beiti sér fyrir því að umferð­ar­fræðsla verði hluti af aðal­náms­skrá.
  6. Akstur á götum: Ef til­lögur starfs­hóps­ins hvað varðar ölvun við akstur og ald­urs­mörk ganga eftir telur hóp­ur­inn að leyfa skuli akstur raf­knú­inna smá­far­ar­tækja í almennri umferð á vegum þar sem hámarks­hraði er 30 km/klst. eða lægri, enda getur veg­hald­ari lagt sér­stakt bann við umferð þeirra á ein­stökum vegum eða veg­köflum, sé ástæða til.

Nánar um starfshópinn

Í starfs­hópnum sátu full­trúar Vega­gerð­ar­innar, Sam­göngu­stofu, Reykja­vík­ur­borgar, Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ráðu­neyt­is­ins.

Skýrsla starfs­hóps­ins var unnin í sam­ráði við ýmsa hags­muna­að­ila og að loknu opnu sam­ráði á sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ