Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Okkur var aldrei boðin ein einasta pilla“ – Fóru á kraftlyftingamót með sviðasultu og harðfisk

„Okkur var aldrei boðin ein einasta pilla“ – Fóru á kraftlyftingamót með sviðasultu og harðfisk
Mynd/skjá­skot tima­rit.is

Í nóv­em­ber árið 1981 hafði sænskur kraft­lyft­inga­maður það á orði að allt hefði verið mor­andi í lyfjum á heims­meist­ara­mót­inu í kraft­lyft­ingum í Kalkútta. Á mót­inu kepptu tveir Íslend­ingar, þeir Skúli Ósk­ars­son og Jón Páll Sig­mars­son. Sá sænski var hand­tek­inn við kom­una á Arlanda-flut­völl í Stokk­hólmi eftir að toll­verðir fundu yfir eitt þús­und „ana­bole-ster­oider“-pillur í fórum hans.

Fóru með sviðasultu og harðfisk í nesti

Heims­meist­ara­mótið í kraft­lyft­ingum var haldið Í Kalkútta á Indlandi dag­ana 4. til 8. nóv­em­ber árið 1981. Það vakti athygli að kraft­lyft­inga­menn­irnir sem fóru út fyrir Íslands hönd, þeir Jón Páll Sig­mars­son og Skúli Ósk­ars­son, fóru með allan mat með­ferðis frá Íslandi, sem borða átti meðan á mót­inu stæði. Sagt var frá því í Morg­un­blað­inu að flug­freyj­unum í flug­vél­inni á leið milli Bombey og Kalkútta hafi þótt kyn­legt að sjá þá Jón Pál og Skúla gæða sér á sviða­sultu og harð­fisk í stað þeirra ind­versku kræs­inga sem boðið var upp á í flug­vél­inni.

Þeim félögum gekk vel á mót­inu; Skúli vann til brons­verð­launa í sínum flokki en Jón Páll hlaut silfur.

Sagði allt hafa flotið í pillum

Sænski kraft­lyft­inga­mað­ur­inn Ray Yvander hafði nokkrum árum fyrr keppt á Norð­ur­landa­mót­inu í kraft­lyft­ingum á Íslandi. Þegar töfl­urnar fund­ust í far­angri hans ját­aði hann að þær væru í hans eigu, en lyfin voru ekki aðeins á bann­lista toll­varða heldur einnig hjá íþrótta­hreyf­ing­unni um allan heim. Yvander skyldi því sæta þungum sektum og að minnsta kosti tveggja ára banni frá þátt­töku í íþrótta­mótum.

Stuttu síðar ræddi Yvander við sænska blaða­menn og sagði að allt hefði verið fljót­andi í pillum á heims­meist­ara­mót­inu í Kalkútta. Sagði hann bæði hafa verið um horm­óna­lyf og örvandi lyf að ræða, sem hann sagði afar auð­velt hafa verið fyrir hvern þann sem vildi að nálg­ast; „[…] auð­velt að ná í þær þar fyrir þá sem vildu.“

Þvertók fyrir pilluflóð

Þegar þessi ummæli Yvander voru birt vildu íslenskir fjöl­miðlar að vonum vita hvort þeir Skúli og Jón Páll könn­uð­ust við þessar frá­sagnir hans. „Okkur var aldrei boðin ein ein­asta pilla þarna svo ég veit ekki hvað Svíinn er að fara með þessu,“ sagði Skúli. Hann sagð­ist jafn­framt ekki hafa orðið var við neitt „pilluát“ eða lyfja­sölu á mót­inu.

Í frétt Dag­blaðs­ins&Vísis um málið kemur fram að þeir Skúli og Jón Páll hafi báðir verið teknir í lyfja­próf þegar þeir höfðu lokið keppni á mót­inu. Þeir hafi báðir verið „alveg hreinir“. Það sama hafi ekki átt við um alla aðra kepp­endur. Þannig hafi tveir menn, annar Japani og hinn Banda­ríkja­maður, verið dæmdir úr keppni vegna lyfja­notk­unar og verð­laun þeirra tekin af þeim. Báðir höfðu menn­irnir neitt horm­óna­lyfja. Þetta komst upp þegar lyfja­próf voru fram­kvæmd á fimm efstu mönnum hvers flokks.

Mynd/skjá­skot tima­rit.is
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi