Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Íslendingar langt á eftir Evrópuþjóðum – „Pikkföst í því að staðsteypa allt mögulegt og ómögulegt.“

Mynd/Envato Elements
Mynd/Envato Elements Mynd: Valery Voennyy

„Það eru ekki til neinar nýjar rann­sóknir á þessu en það eru þó til gamlar rann­sóknir frá Háskóla Íslands sem sýna að efnis­notkun í íslenskum mann­virkjum er langt yfir Evrópu-meðal­tölum,“ sagði  Magnús Rannver Rafnsson, verk­fræðingur, í útvarps­þættinum Sprengis­andi í gær. Hlutfalls­lega, segir hann Íslendinga heims­meistara, þegar kemur að steypu­notkun en að hans mati er þjóðin ein sú versta þegar kemur að umhverfis­sóðum.

„Það er ekkert langt síðan að þýskir vísinda­menn bentu á að ef við höldum svona áfram í mann­virkjagerð þá erum við ekkert að horfa á 1,5 gráðu hlýnun heldur meira svona 7 til 8 gráðu hlýnun,“ sagði Magnús en um 40% af gróðurhúsa­loft­tegundum, sem skapa hnattræna hlýnun, er vegna mann­virkja­gerðar. Segir hann því losun af hálfu mann­virkja­gerðar miklu stærra og meira vandamál heldur en losun af völdum umferðar.

Þegar kemur að húsbyggingum, nota Íslendingar mikið meiri steypu en flestar aðrar þjóðir í Evrópu. Auk þess noti þeir steypuna á annan hátt. „Þjóðir forsteypa sín mannvirki meira og minna í hagnýtum verksmiðju þar sem er hægt að ná fram hagkvæmni, gæðum og hraða en við notum lítið af bygginga­einingum og stað­steypum mikið,’’ segir hann og bætti því við að við, Íslendingar, „erum alveg pikkföst í því að stað­steypa allt mögulegt og ómögulegt.“ Lítill tími sé gefinn fyrir nýsköpun og hönnun og þar með séu Íslendingar fastir í gömlum aðferðum. Segir Magnús Norður­landaþjóðir vera langt á undan okkur þegar kemur að því. Að lokum telur hann nauðsynlegt að reyna að breyta bæði aðferðum og efnivið, til þess að sporna við hlýnun jarðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá