Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jakob Möller hættur hjá VSV eftir 52 ára starf: „Ég var alla vega ekki rekinn, svo mikið er víst“

Jakob Möller hættur hjá VSV eftir 52 ára starf: „Ég var alla vega ekki rekinn, svo mikið er víst“
Jakob Möller Mynd: vsv.is

„Ég ákvað í vetur að láta staðar numið núna í sumar og stend við það. Nú er komið að þeim tíma­mótum og ég ætla að byrja á því að taka mér gott frí,“ segir Jakob Möller sem er hættur hjá VSV og Fisk­iðj­unni í Vest­manna­eyjum eftir 52 ára starf.

Á heima­síðu Vinnslu­stöðv­ar­innar birt­ist við­tal við Jakob Möller í til­efni þess að hann er að hætta hjá fyr­ir­tæk­inu eftir 52 ára far­sælt starf. Hér er brot úr við­tal­inu.

„Föst vinna verður að baki en ég úti­loka ekki að láta sjá mig hér aftur tíma­bundið í vinnugalla. Ef Vinnslu­stöð­ina sár­vantar mann til að hlaupa í skarðið í loðnu og mak­ríl á næsta ári þá mæti ég. Auðvitað! Enda er alltaf gaman á ver­tíð.“

Jakob Möller er Hafn­firð­ingur að upp­runa. Hann kom hingað til Eyja fyrst sem peyi að sum­ar­lagi 10 ára gam­all og flutti svo alveg með móður sinni árið 1969, 16 ára gam­all. Þá varð hann fljót­lega sum­ar­starfs­maður í Vinnslu­stöð­inni.

Eftir gos, 1974, varð Jakob fast­ráð­inn starfs­maður Vinnu­stöðv­ar­innar og hefur unnið þar allar götur síðan þá ef frá er skil­inn skammur tími í Fisk­iðj­unni. Þetta eru því orðin lið­lega 52 ár – heill starfs­aldur – og mest­allur tím­inn í sama fyr­ir­tæk­inu, Vinnslu­stöð­inni!

„Ég hef unnið í öllum deildum Vinnslu­stöðv­ar­innar í landi og verið þar verk­stjóri. Laust fyrir alda­mótin tók ég við starfi mót­töku­stjóra og bætti síðar við mig verk­stjórn í salt­fisk­vinnsl­unni. Þegar skipa­af­greiðsla var stofnuð á vegum Hafn­ar­eyrar, dótt­ur­fé­lags VSV, varð ég verk­stjóri þar en áfram á launa­skrá hjá Vinnslu­stöð­inni.

Vinnu­dag­arnir eru alltaf langir og oftar en ekki hef ég unnið líka um helgar. Enginn end­ist þannig ára­tugum saman nema hafa gaman af því sem hann gerir og að vera á vinnu­stað þar sem við­kom­andi líður vel. Hvoru tveggja á við mig og hvers vegna hefði ég þá átt að flytja mig um set á vinnu­mark­aði?“

Þjóðhátíð um helgina? Nei!

Þegar nú Jakob vaknar og fer á kreik að morgni sunnu­dags­ins 31. júlí 2022 hlýtur til­finn­ingin að verða sér­stök því þá rennur upp síð­asti vinnu­dag­ur­inn hans.

– Þú verður sem sagt fjarri góðu gamni í Herj­ólfs­dal um helg­ina. Ætlarðu ekki að mæta á þjóð­há­tíð?

„Nei! Vinnslu­stöðin heldur áfram að veiða og vinna mak­ríl hvað svo sem þjóð­há­tíð líður og síð­asta vaktin mín er á sunnu­dag­inn. Ég skila mínu þá eins og hingað til. Síðan kveð ég bara og held heim á leið.“

– Svo vill til að einmitt á sunnu­dag­inn kemur stíga rokk­ar­arnir í Rolling Stones á svið í Stokk­hólmi, allir í fram­lín­unni komnir langt fram á efri ár. Jag­ger­inn varð 79 ára á þriðju­dag­inn var. Hann er tíu árum eldri en þú og ham­ast enn …

„Hann eld­ist vel, karl­inn, en hefur tæp­lega þurft að púla mikið lík­am­lega um dag­ana.  Vakt­irnar mínar voru yfir­leitt frá því klukkan sex á morgn­ana til fimm síð­degis en ég lét það nán­ast aldrei duga og bætti jafn­vel við nokkrum klukku­tímum.

Í jan­úar 2023 verð ég sjö­tugur og hefði getað unnið hér lengur en ákvað sjálfur að segja stopp. Ég var alla vega ekki rek­inn, svo mikið er víst!

Jagger má ham­ast á svið­inu áfram mín vegna og það fram á níræð­is­ald­ur­inn en ég ætla að tóna niður til­ver­una.“

Hægt er að lesa allt við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil