Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Faðir hinnar níu ára Oliviu sendi frá sér yfirlýsingu: „Dauði hennar má ekki vera til einskis“

Faðir hinnar níu ára Oliviu sendi frá sér yfirlýsingu: „Dauði hennar má ekki vera til einskis“
Olivia með föður sínum

Faðir hinnar níu ára gömlu Oliviu Pratt-Korbel sem skotin var til bana á heim­ili sínu í Liverpool, minnt­ist hennar nýlega en hann sagði hana „mjög bjartan neista sem elskaði að hlæja“.

Olivia lést af skotsárum eftir að móðir hennar reyndi að stöðva inn­göngu byssu­manns er hann elti annan mann inn á heim­ili þeirra mæðgna í Liverpool að kvöldi dags þann 22. ágúst síð­ast­lið­inn.

Sjá einnig: Morðingi Olivu litlu mögu­lega fund­inn – Lög­reglan hand­tók 36 ára mann eftir vopn­aða aðgerð

Faðir hennar, John Francis Pratt segir að dauði hennar megi ekki vera til einskis um leið og hann hvetur fólk að koma fram með upp­lýs­ingar. Lög­reglan hand­tók 34 ára karl­mann, grun­aðan um morðið á sunnu­dag­inn. Er hann enn í gæslu­varð­haldi.

Lög­reglan í Merseyside-hverf­inu fékk 36 klukku­stundir til við­bótar á mánu­dags­kvöld, til að halda áfram yfir­heyrslu yfir þeim grun­aða en hann var einnig hand­tek­inn vegna gruns um morð­til­raun. Þá gilti fram­leng­ingin einnig um yfir­heyrslur yfir tvo aðra karl­menn, 29 ára og 41 en þeir eru taldir hafa aðstoðað hinn grun­aða. Einnig er enn verið að yfir­heyra fjórða mann­inn sem einnig er grun­aður um að aðstoða þann grun­aða.

Í yfir­lýs­ingu frá fjöl­skyldu Oliviu, sagði faðir hennar: „Orð geta ekki lýst þeim sárs­auka sem við finnum eftir að Olivia var svo grimmi­lega tekin frá okkur. Þeir sem bera ábyrgð á því verða að skilja hvað þeir gerðu.“ Lýsti hann dóttur sinni sem „mjög bjartan neista sem vissi vel hvað hún vildi“ og að hún hafi „elskað að hlæja og fá aðra til að hlæja“.

„Hún gat verið mik­ill stríðnis­púki og hún elskaði að stríða frænkum sínum, sér­stak­lega þeim sem eru eldri en hún,“ sagði hann enn­fremur og bætti við: „Og ef þær tóku því illa, hló hún bara og sagði „ekki gleyma að ég er litla frænka ykkar“.“

Faðir Oliviu þakk­aði þeim sem hafa lagt lög­regl­unni lið í rann­sókn máls­ins en biðl­aði til almenn­ings að ef ein­hver er með frek­ari upp­lýs­ingar um málið, að koma þeim til lög­regl­unnar.

„Við vitum að flest fólk í Merseyside er góð­hjartað fólk og við þurfum öll að hjálp­ast að,“ sagði hann aukreitis í yfir­lýs­ing­unni og bætti við: „Við viljum ekki að annað barn láti lífið í svo hrika­legum aðstæðum og við viljum ekki sjá aðra fjöl­skyldu þjást eins og við erum að þjást núna. Dauði Oliviu má ekki vera til einskis og við viljum hjálpa fólki að finn­ast það öruggt og tryggja öryggi þeirra. Það getur aðeins gerst ef við stöndum saman og tryggjum það að götur okkar og sam­fé­lag er laust við byssur og fólk sem notar byssur.“

Jarð­ar­för Oliviu fer fram þann 15. sept­em­ber í St. Margaret Mary´s kirkj­unni í Dovecot. Fjöl­skylda hennar hefur beðið fólk að mæta í ein­hverju bleiku í jarð­ar­för­ina.

BBC sagði frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta