Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Átakanleg lífsreynslusaga: „Hann hafði borgað fyrir að fá að nauðga mér“

Átakanleg lífsreynslusaga: „Hann hafði borgað fyrir að fá að nauðga mér“
Súlu­dans­ari – Mynd úr mynda­banka

„Ég var 18 ára gömul þegar ég sótt­ist eftir vinnu sem var í huga mínum mjög spenn­andi og eft­ir­sókn­ar­verð. Ég hafði farið á nekt­ar­stað og upp­lifað kon­urnar sem unnu þar sem sterkar og ósigr­andi og vildi verða eins og þær. Ég kem af brotnu heim­ili og var þol­andi kyn­ferð­is­of­beldis og ein­eltis þannig að það var kannski ekk­ert skrítið þótt ég hrif­ist af þessum ótrú­lega flottu konum sem voru klæddar eins og drottn­ingar, með blásið hár og seið­andi augna­ráð. Ég hafði aldrei séð svona konur áður og í mínum huga virt­ust þær ósigr­andi.

Þær gengu milli borð­anna á staðnum og menn­irnir slóg­ust um að tala við þær, þeir ýttu að þeim kampa­víni og pen­ingum og það eina sem þær gerðu var að tala við þá og þær virt­ust njóta þess. Svo stigu þær á svið og döns­uðu kyn­þokka­fullt, sveiflandi hár­inu og katt­liðugar gerðu þær hinar fal­leg­ustu æfingar á járn­súlu. Ég hafði bara aldrei séð neitt þessu líkt og þar með var það ákveðið! Ég skyldi sækja um vinnu og verða nákvæm­lega eins og þessar gyðjur. Ég sótti um og fékk vinn­una. Grét eftir fyrsta skiptið.

Dagur eitt: ég steig á svið, fór úr föt­unum – tón­listin í botni– graðir karlar á kollum við sviðið, fyrsti 500-kall­inn kom fljúg­andi en ég var jafn nakin á svið­inu þrátt fyrir hann. Svo kom næsti og næsti og næsti. Lagið klárað­ist, ég tók upppen­ing­ana – fór niður í bún­ings-her­bergi nakin og brast í grát. Þetta var alls ekki eins glam­úrös og ég taldi, en það versta var búið, áleit ég, næsta skipti yrði ekki eins ömur­legt – og það stóðst. Ég varð góð í þessu, svo góð að ég var beðin um end­ur­greiðslu í eitt skiptið eftir að einn karl­inn hafði eytt of miklu í mig og átti ekki fyrir jóla­gjöfum handa börn­unum sínum. Það kom mér ekki við og hann hélt heim á leið með hnút í mag­anum en ég var með hnút á vesk­inu svo seðl­arnir myndi ekki fjúka úr því.

Ég varð eins­konar seleb þarna inni og fékk til mín fastakúnna sem elsk­uðu að sjá mig dansa fyrir sig, bæði á sviði sem og í einka­her­berg­inu, sumir vildu að ég bað­aði mig í sturtu­klef­anum sem var í einu her­berg­inu – aðrir vildu að ég dans­aði á þeim og nudd­aði mér fram og aftur, upp og niður, aðrir voru með eitt­hvað skrýtið kínk fyrir mat og svo mætti lengi telja. Þarna upp­lifði ég í fyrsta sinn frelsi og að ég væri að slá eign minni á eigin lík­ama eftir ára­langt ofbeldi þar sem ég átti ekki lík­ama minn. Ég upp­lifði að ég réði hvað ég gerði og hvernig, og elskaði að upp­lifa að karl­mað­ur­inn væri undir mér og hann væri valda­laus í mínu rými. Þarna inni á staðnum mynd­að­ist sterkur vina­hópur þar sem dj-inn, dyra­verð­irnir og dans­ar­arnir héngu saman og þetta varð hálf­gerð para­dís fyrir litlu brotnu mig – þarna var ég örugg, eða hvað?

Hlustaði ekki á inn­sæið. Ég var send til að dansa í einka­sam­kvæmi sem var ekki svo óal­gengt og það var góður pen­ingur í því svo við gerðum það með glöðu geði, en and­rúms­loftið var ein­hvern veg­inn öðru­vísi þegar þetta var bókað á mig, ég fann það í bein­unum að það var eitt­hvað skrýtið. Ég ákvað að hlusta ekki á inn­sæið heldur fór ég ásamt einum af dyra­vörð­unum, á ónefndan veit­inga­stað í borg­inni. Þar beið hann, karl­hel­vítið. Hann hafði borgað fyrir að fá að nauðga mér.“ Lestu átak­an­lega líf­reynslu­sögu í heild sinni í helg­ar­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ