Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Kristján óperusöngvari sagði Kastljóskonu rauða á brjóstunum og löðrungaði Gulla Helga

Kristján óperusöngvari sagði Kastljóskonu rauða á brjóstunum og löðrungaði Gulla Helga

Það gustaði um Kristján Jóhanns­son óperu­söngv­ara eftir að hann sagði Eyrúnu Magn­ús­dóttur, þáver­andi þátta­stjórn­anda Kast­ljóss­ins, vera rauða á brjóst­unum af æsingi. Fyrr um dag­inn hafði hann jafn­framt slegið sjón­varps­mann­inn Gulla Helga á Stöð 2 er söngv­ar­inn mætti í við­tal í Bítinu. „Þetta var hel­víti fast,“ sagði Gulli í við­tölum eftir þátt­inn með Krist­jáni.

Í bæði við­tölin mætti Kristján hald­andi að hann væri að fara að fá tæki­færi til að kynna nýút­komna hljóm­plötu sína. Sú varð aldeilis ekki raunin því Gulli og Eyrún höfði meiri áhuga á að krefja hann svara fyrir að þiggja laun fyrir að koma fram á styrkt­ar­tón­leikum fyrir lang­veik börn.

„Kristján laug“

Þegar Kristján mætti til Gulla Helga fékk hann að sjá for­síðu DV í fyrsta skipti í beinni útsend­ingu þar sem fyr­ir­sögnin var „Kristján laug“. Í blað­inu var óperu­söngv­ar­anum gefið að sök að þiggja him­inhá laun fyrir að koma fram á styrkt­ar­tón­leikum í Graf­ar­vogs­kirkju, þar sem mark­miðið var að safna fé til stuðn­ings barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans.

Fyrir utan Kristján komu þau fram á þeim tón­leikum þau Jóhann Friðgeir Valdi­mars­son og Sigrún Hjálmtýs­dóttir, betur þekkt sem Diddú. Og í DV sagði Sigmar Stein­gríms­son, for­maður Lions­klúbbs­ins Fjörg­ynar í Graf­ar­vogi, klúbbnum sem hélt styrkt­ar­tón­leik­ana: „Það fékk eng­inn þeirra tón­list­ar­manna sem kom fram á tón­leik­unum í Graf­ar­vogs­kirkju greitt.“ Það er, fyrir utan Kristján Jóhanns­son óperu­söngv­ara og allt ætl­aði um koll að keyra í sam­fé­lag­inu.

Sannur Ítali

Framkoma Krist­jáns óperu­söngv­ara í íslandi í bítið og Kast­ljósi varð fljót­lega á hvers manns vörum. Eins og áður sagði sló Kristján sjón­varps­mann­inn Gulla Helga og sagði brjóstin á Eyrúnu vera rauð af æsingi.

„Þú heilsar mér þegar ég kem inn og skellir þessu svo framan í mig,“ sagði Kristján við Gunnlaug Helgason þegar hann spurði hann út í for­síðu­frétt DV á mið­viku­dag­inn. Kristján varð mjög reiður og missti nán­ast stjórn á sér þegar hann sá for­síð­una. Gunn­laugur segir þau alls ekki hafa ætlað að koma svona aftan að Krist­jáni. Gáfu honum tæki­færi „Við hentum til hans björg­un­ar­hring sem hann ekki tók,“ segir Gunn­laugur sem ætl­aði að gefa Krist­jáni kost á að svara fyrir frétt DV með skyn­sam­legum rökum, bjóst við að hann hefði séð blaðið sem hann hafði ekki gert.

„Ég hálf vor­kenndi honum. Hann kom þessu mjög illa frá sér. Hann er orð­inn eins og sannur ítali, fljótur upp og fljótur niður aftur,“ sagði Gulli Helga sem sjaldan sagð­ist hafa lent í öðru eins.

Inga Lind Karls­dóttir stýrði Bítinu með Gulla á þessum tíma. Hún hafði þetta að segja um löðr­ung óperu­söngv­ar­ans. „Ég er alveg búin að ná mér enda sagði hann lítið annað við mig en hvað ég væri sæt og fín. Þetta var svo­lítið grodda­legt klapp sem hann gaf Gunn­laugi á vang­ann en svona er hann víst vanur að heilsa fólki,“ sagði Inga Lind.

Eyrún með rauðu brjóstin

Árið 2004 vildu hvorki Eyrún né Sigmar Guð­munds­son, stjórn­endur Kast­ljóss, tjá sig um hegðun Krist­jáns söngv­ara í Kast­ljós­inu. Heim­ilda­menn DV á sínum tíma sögðu þau hins vegar bæði hafa verið í sjokki eftir þátt­inn en þar greip Kristján fram í fyrir Eyrúnu, sem þá var að fara yfir kostn­að­ar­liði styrkt­ar­tón­leik­anna, og sagði Eyrúnu í Kast­ljós­inu vera með rauð brjóstin af æsingi. „Brjóstin á henni eru orðin rauð, svo upp­trekkt er konan,“ sagði Kristján við Eyrúnu.

Í Kast­ljós­þætt­inum hélt Kristján allan tím­ann á nýút­kominni plötu sinni sem hann harm­aði að kæmi út við þessar aðstæður. „Þetta er ekki mjög æski­legt and­rúms­loft sem hún kemur í þessi elska. Kaupið bara plöt­una mína og látið ykkur líða vel,“ sagði Kristján að lokum.

Allt tekið úr samhengi

Og það er svo í nýút­komnum podcast-þætti Sölva Tryggva­sonar sem Kristján óperu­söngv­ari tjáir sig loks um hin umdeildu við­töl sem hann fór í og þá stað­reynd að hann þáði laun fyrir að koma fram á tón­leik­unum.

Til að skýra mál sitt skulum við gefa Krist­jáni ein­fald­lega orðið:

„Þetta var ótrú­leg atburða­rás og það var allt tekið úr sam­hengi og í raun bara bein­línis logið upp á mig í fjöl­miðlum. Ég hef alla tíð verið mjög ötull í að láta gott af mér leiða, ekki síst eftir að ég missti þáver­andi kon­una mína úr krabba­meini fyrir þrí­tugt. Þess vegna var þetta sér­stak­lega sárt. Það var mik­ill fjöldi fólks á svið­inu á þessum tón­leikum og það fengu allir borgað fyrir vinn­una sína. Og sumir hafa lík­lega aldrei verið á hærri launum en þarna. Ljósa­menn, hljóð­færa­leik­arar, hljóð­menn, söngv­arar, allir voru á launum. Kaupþing Banki styrkti tón­leik­ana og keypti afrakst­ur­inn og setti á plötu. Launin mín komu þess vegna frá Kaup­þingi og höfðu ekk­ert með inn­komu tón­leik­anna að gera. Bankinn keypti tón­leik­ana og borg­aði því vinnu allra. En þetta var sett upp eins og að ég hafi einn fengið borgað og tekið launin mín beint frá mál­efn­inu sjálfu. DV byrj­aði málið og svo tók RÚV það upp og birti sömu lyg­ina og hafði verið í DV. En það spurði mig aldrei neinn út í þetta áður en þetta var birt,“ segir Kristján og bætir við:

„Ég fékk meira að segja borgað í Evrum frá bank­anum, þannig að það að halda því fram að þetta kæmi af ágóða tón­leik­anna var algjör­lega galið. Svo var ég plat­aður í Kast­ljósið. Ég mætti þangað til að kynna plötu og vissi ekki að ég væri að fara að tala um þetta mál. En á sama tíma og ég er að und­ir­búa mig undir að fara í Kast­ljósið er verið að lesa frétt­ina um mig hinum megin í hús­inu á RÚV. Ég var með plötu í hend­inni og hélt að ég væri að fara að tala um tón­list­ina mína í Kast­ljós­inu. Svo var bara komið í bakið á mér með alls konar spurn­ingar í beinni útsend­ingu án þess að ég hefði hug­mynd um að það væri í vændum. En ég náði nú að hrista þetta frekar fljótt af mér. Shakespe­are sagði ein­hvern tíma: „Fólk er fífl“ og ég hafði það í huga í gegnum þetta ferli. En það er ekk­ert sem þú getur gert þegar fjöl­miðl­arnir fara af stað með þessum hætti og hringekjan fer af stað. Þetta var í raun og veru bara eins og árás og það er erfitt að skilja hvernig arg­asta bull getur náð svona miklu flugi. Það er ekki fyrr en löngu síðar þegar rykið er sest sem hægt er að tala um þetta af ein­hverju viti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ