Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Bensínsprengjunni í nótt var kastað í íbúð Jóns Péturs: „Þeir eru ekkert að fara að hætta“

Bensínsprengjunni í nótt var kastað í íbúð Jóns Péturs: „Þeir eru ekkert að fara að hætta“
Jón Pétur

Bens­ín­sprengju var kastað á sval­irnar á íbúð Jóns Péturs Vågseið og konu hans í Hraunbæ í Árbæj­ar­hverfi  í nótt. Þetta er í þriðja sinn sem bens­ín­sprengjum er beitt gegn Jóni og konu hans. Fyrir rúmum tveimur árum var kveikt í bif­reið nágranna­konu þeirra í Árbæ í mis­gripum fyrir bif­reið Jóns Péturs. Fyrir nokkrum vikum var svo eldsprengu kastað í glugga á heim­ili þeirra, eins og Mannlíf greindi frá. Þá var Jón í varð­haldi vegna stungu­máls­ins á Banka­stræti Club og árásinni beint gegn kon­unni hans.

Mannlíf heyrði í Jóni Pétri fyrir stundu, og var honum eðli­lega brugðið:

„Ég svaf ekki dúr í nótt, enda er þetta ansi svaka­legt að lenda í, og það í annað sinn á skömmum tíma,“ segir Jón Pétur og bætir við:

„Ég er svo sem öllu vanur; vann lengi sem örygg­is­vörður og hef séð eitt og annað í gegnum tíð­ina. En ég bý í hverfi þar sem fullt af fjöl­skyldu­fólki býr – fólk með börn, og eðli­lega eru allir ótta­slegnir og mér þykir það miður.“

Aðkoman var skelfi­leg eins og sést.

Jón Pétur Vågseið var einn þeirra sem fóru inn á Banka­stræti Club þar sem menn úr svoköll­uðum „Lat­ínohópi“ voru saman komnir.

Þar brut­ust út slags­mál sem end­uðu með því að tveir menn voru stungnir, báðir úr fyrr­nefndum hópi.

Jón var sagður vera for­ingi hóps­ins sem réðst inn á skemmti­stað­inn en hann var hand­tek­inn og sat inni í sex daga.

ég er meira með áhyggjur af fólk­inu hér í kring

Jón Pétur ræddi málið í við­tali við Reyni Trausta­son í þætt­inum Mann­lífið fyrir skemmstu:

„Við ætl­uðum að fara þangað til að fá þessa menn til þess að láta kon­urnar okkar og fjöl­skyldur í friði. Þeir voru búnir að vera síð­ustu viku að henda bens­ín­sprengjum, mæta með sveðjur og senda fullt af hót­unum. Áður en við fórum af stað vorum við búnir að fá upp­lýs­ingar um að þeir væru að leita að heim­il­is­föngum og vinnu­stöðum hjá kon­unum okkar,“ sagði Jón Pétur.

Jón Pétur segir að honum finn­ist óeðli­legt að nú séu ein­ungis þrír af þeim 17 sem eru í svoköll­uðum Latin­ohópi í fang­elsi og hann vill að lög­reglan taki mun harðar á þessum aðilum en gert hefur verið:

„Þeir eru ekk­ert að fara að hætta, það er á hreinu. Þeir voru byrj­aðir á þessu fyrir þremur árum og það er ekk­ert lát á; löggan keyrir bara um og er vissu­lega sýni­leg, en þeir þurfa að gera mun meira; það verður að stoppa þetta en það virð­ist hrein­lega ekki hægt eins og ástandið er.“

Hvernig líður þér eftir nótt­ina?

„Eins og ég sagði þá er ég ýmsu vanur; ég ólst upp í Færeyjum þar sem var mik­ill ras­ismi og ég fékk alveg að kenna á því af því að ég er brúnn. En ég er meira með áhyggjur af fólk­inu hér í kring en sjálfum mér, og það segir sig sjálft að þessu verður að linna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ