Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hentu bensínsprengju að heimili gæsluvarðhaldsfanga: „Höfum þurft að díla við þessa menn í þrjú ár“

Hentu bensínsprengju að heimili gæsluvarðhaldsfanga: „Höfum þurft að díla við þessa menn í þrjú ár“

Hinn svo­kall­aði Lat­ínóhópur réð­ist að heim­ili Jóns Péturs Vågseið á meðan hann var í gæslu­varð­haldi vegna árás­ar­innar á Banka­stræti Club og hentu bens­ín­sprengju að hús­inu sem og í glugga í her­bergi ell­efu ára gam­allar systur eins og hópnum sem fór inn á skemmti­stað­inn.

Fengu nóg af árásum og hótunum

Dyra­vörð­ur­inn Jón Pétur var í við­tali við Reyni Trausta­son á Mannlíf.is í gær þar sem hann sagði frá ástæð­unni fyrir því að hann og 26 aðrir réð­ust að þremur mönnum úr svoköll­uðum Lat­ínóhópi. Nokkrir í hópnum voru vopn­aði hnífi og úr varð að tveir úr Lat­ínóhópnum voru stungnir og einn úr hópi árás­armann­anna. Að sögn Jóns Péturs var mein­ingin hjá hópnum ekki að ráð­ast á menn­ina þrjá, heldur að sýna þeim að nóg væri komið af árásum og ógn­unum frá Lat­ínóhópnum. Þeir hafi bara verið örvænt­ing­ar­fullir og viljað að þetta hætti. „Við vissum ekki hvað þeir voru margir, þeir eru vanir að vera margir í hóp en við ætl­uðum bara að sýna þeim hvað við værum margir og að þetta væri komið nóg.“

Samkvæmt Jóni Pétri byrj­aði málið fyrir þremur árum þegar litli bróðir góðs vinar Jóns svaf hjá fyrr­ver­andi kær­ustu „krimma“ sem fær svo menn úr Lat­ínóhópnum til að hjálpa sér að ná hefndum. Hafði fyrr­ver­andi kær­asti stelpunnar gefið það út að hver sá sem svæfi hjá fyrr­ver­andi kær­ustu hans yrði fyrir heift hans. Síðan hafa bens­ín­sprengjur verið sprengdar við heim­ili, kveikt í bílum, mót­or­hjólum og hót­anir um líf­lát og ýmis­legt fleira orðið að veru­leika. Sagði Jón að hann og fjöl­margir aðrir sem lent hafi í þessum hópi hafa fjórum sinnum sæst við Lat­ínóhóp­inn en þeir hafi alltaf brotið þann frið og var því brugðið á þetta ráð, að ræða við þá og sýna þeim að máttur aðstand­enda væri mik­ill. En svo hafi soðið upp úr eins og alþjóð veit.

Furðar sig á að þeir gangi alltaf lausir

„Þetta er búið að standa yfir í þrjú ár. Þar sem strákar úr þessum Lat­ínu­hópi, bæði strákar af Latínó upp­runa og Íslend­ingar, hafa oft verið teknir af lögg­unni fyrir að stinga fólk og henda bens­ín­sprengjum en löggan er samt ekki að kippa þeim inn. Við höfum þurft að díla við þessa menn í þrjú ár. Við erum búnir að sætt­ast við þá fjórum sinnum en þeir brjóta alltaf frið­inn. Við höfum alltaf verið að hugsa að löggan stingi þeim inn. Hver getur stungið svona marga menn og kastað bens­ín­sprengjum og eng­inn fer inn? Þetta er fárán­legt.“

Reynir spurði hann út í árásir sem gerðar voru á meðan Jón Pétur var í gæslu­varð­haldi í síð­ustu viku. Jón sagði að bens­ín­sprengju hefði verið hent á heim­ili hans og mynd­band tekið af því. „Og svo var bens­ín­sprengju hent í glugg­ann hjá ell­efu ára gam­alli systur eins af strák­unum og það var bombað inn fullt af grjóti í annan glugga hjá óléttri konu með þrjú börn,“ sagði Jón og bætti við að bróðir kon­unnar hafi verið í hópnum sem rudd­ist inn á Banka­stræti Club.

Segir Jón að fréttir af tíðum bens­ín­sprengjum og hnífa­árásum séu í 90 pró­sentum til­fella tengdar þessum Lat­ínóhópi. „Þeir eru hnífa­stungu­tískan í dag og bens­ín­sprengjur,“ sagði Jón Pétur í við­tali Reynis Trausta­sonar sem hægt er að sjá í heild sinnig hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina