Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Robert Plant fékk brauð með kæfu eftir tónleika Zeppelin í Höllinni:„Tveir æðisgengnir klukkutímar“

Robert Plant fékk brauð með kæfu eftir tónleika Zeppelin í Höllinni:„Tveir æðisgengnir klukkutímar“

Mikið var rætt um komu bresku rokksveit­ar­innar Led Zeppelin í Laug­ar­dals­höll­ina mánu­dags­kvöldið 22. Júní 1970, fyrir rúm­lega 50 árum síðan. Á þessum tíma hafði hljóm­sveitin aðeins starfað í tvö ár, en henni var boðið til lands­ins á vegum Lista­há­tíðar Reykja­víkur.

„Þetta voru stærstu og merki­leg­ustu tón­leikar, sem haldnir höfðu verið hér á landi,

frá því að bítla­hljóm­leika­sögur hófust,“ sagði blaða­mað­ur­inn Stefán Hall­dórs­son í gagn­rýni sinni.

Tæplega fimm þús­und manns mættu á tón­leik­ana og var höllin þétt­skipuð tón­leika­gestum. Fyrsti tónn­inn sveif út til tón­leik­ar­gesta klukkan hálf­ell­efu um kvöldið, sem þótti frekar seint á þessum tíma og stóðu í tvær klukku­stundur. Stefán lýsti upp­lifun sinni þannig að þarna hefðu farið fram; „tveir æðis­gengnir klukku­tímar,“

Skömmu eftir komu hljóm­sveit­ar­með­limir til lands­ins héldu Zeppelinmenn í Laug­ar­dals­höll­ina til að stilla upp tækjum sínum og tólum fyrir stóra kvöldið dag­inn eftir.

Á meðan að verið var að setja upp græjurnar fyllt­ist höllin af áhorf­endum og þótti hljóm­sveit­inni nóg um og lét að lokum varpa öllum á dyr. Eftir stóð Eyjólfur Jónsson, sund­kappi og lög­reglu­þjónn, vörð um dyrnar svo engum varð inn­göngu auðið.

Kvöldið fyrir tón­leika Led Zeppelin
Þegar leið á kvöldið bar að höll­inni Erlingur Björns­son, umboðs­maður hljóm­sveit­ar­innar

Stefán Hall­dórs­son blaða­maður skrif­aði við þessa mynd að ógæfa hefði verið að Led Zeppelin og aðstoð­ar­menn sveit­ar­innar kynnu ekki íslensku. Þeir hefðu þá áttað sig á rak­ara­stof­unni í bak­sýn og getað farið í klipp­ingu. En það tíðk­að­ist ekki á þessu tíma að karl­menn væru með sítt hár. Morg­un­blaðið/Ómerkt

Trúbots. Trúbot var með kveðju­tón­leika í Glaumbæ þá um kvöldið, en Shady Owens og Karl Sig­hvats­son voru að hætta í sveit­inni. Erlingur fékk þá hug­mynd að bjóða Zeppelin mönnum í gleð­skap­inn á Glaumbæ sem þeir þáðu án umhugs­unar.

Mikil spenna og gleði braust fram hjá gestum Glaum­bæjar þegar þeir sáu að stjór­stjörn­urnar höfðu mætt á tón­leika Trúbots á einum vin­sælasta skemmti­stað Reykja­víkur á þeim tíma. Rokk­stjörn­unum var boðið upp á drykki og báðu um bjór.

„Því miður, ekki til,“ var svarið enda átti bjór­bann eftir að ríkja á Íslandi næstu 19 ár.

Næst á óska­list­anum var kampa­vín, en af því var til nóg og voru flöskur bornar á borð

Led Zeppelin, (vinstri – hægri): John Paul Jones, John Bonham (1948 – 1980), Jimmy Page og Robert Plant, stilla sér upp fyrir framan flug­vél árið 1970. (Ljós­mynd­ari:Hulton Archives)

sveit­ar­innar og skrif­aði Stefán Hall­dórs­son blaða­maður að John Bonham trommu­leik­ari hafi þá sýnt mikið list­fengi við opnun flaskn­anna og gætt þar að öllum kúnst­ar­innar reglum. Er leið á drykkj­una sótti svo hungur að söngv­ar­anum sem end­aði með því að starfs­fólk eld­húss­ins gaf Robert Plant brauð­sneið með kæfu til að seðja sárasta hungrið.

Zeppelinliðar klöpp­uðu Trúbroti óspart lof í lófa á kveðju­tón­leik­unum og var gleð­skap­ur­inn fram eftir nótt.

Vand­ræða­legur með blóm­vönd­inn
Við komu hljóm­sveit­ar­innar fyrr um dag­inn beið hópur aðdá­enda á flug­vell­inum og síst minni hópur blaða­manna. „Stóra stundin var runnin upp og gekk fyrstur út Robert Plant, söngv­ar­inn, en síðan komu þeir einn af öðrum, John Bonham, Jimmy Page og John Paul Jones, sem eltir voru af umboðs­mönnum og burð­ar­körlum.

Eins manns mót­töku­nefnd Lista­há­tíðar Reykja­víkur, Signý Sen, gekk fram og afhenti  gít­ar­leik­ar­anum Jimmy Page risa­stóran blóm­vönd, ljós­mynd­arar smelltu af og síðan hélt hers­ingin inn í flug­stöðv­ar­bygg­ing­una. Þegar inn var komið gafst blaða­mönnum tæki­færi á að ræða við stjörn­u­rnar. Blaða­maður útskýrir að hann hafi farið að Jimmy Page, sem stóð þarna vand­ræða­legur með blóm­vönd­inn í annarri hendi, en gítar í hinni.

Page svar­aði þarna fáeinum spurn­ingum, sagði ferða­lagið hafa gengið prýði­lega og sveit­ina hafa komið víða við. Tón­leika­ferð­irnar væru að verða nokkuð þreyt­andi sagði hann, „sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum“.

21. júní 1970, hljóm­sveitin Led Zeppelin kemur til lands­ins. Signý Sen tekur á móti þeim. Robert Plant og Jimmy Page fremstir á mynd­inni. John Paui Jones bassa­leik­ari á milli þierra. Richard Cole fram­kvæmd­ar­stjóri hóps­ins fyrir miðju í ljósum bol. *** Local Caption *** Lista­há­tíð 1970

Höfðu ekki erindi sem erf­iði
Eftir blaða­manna­fund­inn var tón­list­ar­mönn­unum ekið í tveimur svörtum og gljá­fægðum Mercedes Benzbifreiðum í lög­reglu­fylgd á dval­ar­stað sinn, Hótel Sögu, en Led Zeppelin dvöldu ein­ungis 42 klukku­stundir á Íslandi.

Blaða­menn sóttu stíft að þeim á Hótel Sögu, en höfðu ekki erindi sem erf­iði. Sjón­varps­menn fengu þó að lokum að bera nokkrar spurn­ingar undir Robert Plant sem sat í hæg­inda­stól með kon­íaks­flösku hjá sér. Ekki hafi hann þó drukkið úr flösk­unni og segir að Plant hafi útskýrt þurrð sína. Á þessum tíma átti söngv­ar­inn tæp­lega tvo mán­uði í 22 ára afmæl­is­dag­inn sinn svo hann hefur haft strangan heim­il­is­lækni.

Síðasta tækifærið til að gera einhver læti

Mikill troðn­ingur var á tón­leik­unum og klemmd­ust ein­hverjir á milli sviðs­ins og hóps­ins fyrir aftan. Lögregla hafi reynt eftir megni að róa mann­skap­inn sem ekki hafi auðn­ast fyrr en sveitin stöðv­aði spila­mennsk­una og hvarf af sviði. Tókst þá Sveini R. Hauks­syni, miða­sölu­stjóra Lista­hátíðar, að róa tón­leika­gesti, eftir því sem Stefán greinir frá.

Eftir rúm­lega klukku­stundar leik hafi mynd­ast hálf­gert upp­þot í salnum, þegar söngv­ar­inn, Robert Plant, sagði:

„þetta er síð­asta lagið okkar, How Many More Times.“

Senni­lega ætl­aði hljóm­sveitin bara að taka sér hlé á eftir þessu lagi, en halda síðan hljóm­leik­unum áfram. Hins vegar skildu ung­ling­arnir þessa setn­ingu sem svo, að hljóm­leik­unum væri að ljúka, og því ruku allir upp til handa og fóta: Nú var síð­asta tæki­færið til að gera ein­hver læti, til að æsa sig svo­lítið. Minna mátti nú ekki vera en að menn æstu sig svo­lítið á hljóm­leikum einnar fræg­ustu hljóm­sveitar í heimi, ekki síst þar sem aðgöngu­mið­inn kost­aði 450 krón­ur,“ sagði Stefán blaða­maður

„Hljóm­sveitin kom þá aftur fram á sviðið og flutti þrjú lög til við­bótar á einni syrpu, „Whole Lotta Love“, „Comm­unicati­on Break­down“ og eitt nýtt lag. Voru ung­ling­arnir hinir róleg­ustu á meðan.

Að hljóm­leik­unum loknum og hvíldu stjörn­u­rnar sig um stund í bún­ings­her­berg­inu, en héldu síðan út á Hótel Sögu í lög­reglu­bif­reið.

Höfðu þeir Zeppelinmenn hið mesta gaman af þessu öllu saman,“

skrif­aði blaða­mað­ur­inn.

Heim­ildir:

Stefán Hall­dórs­son.1970. Morg­un­blaðið- gagn­rýni blaða­manns. Miðviku­dag­inn 24. júní, Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ