Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fjarðabyggð neitar að svara spurningum Mannlífs um starfsmannamál: „Ástandið er mjög alvarlegt“

Fjarðabyggð neitar að svara spurningum Mannlífs um starfsmannamál: „Ástandið er mjög alvarlegt“
Bæj­ar­skrif­stofa Fjarða­byggðar Mynd / Fjar­da­byggd.is

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er mikil ólga hjá starfs­mönnum Fjarða­byggðar en 15 starfs­menn skrif­stofu sveit­ar­fé­lags­ins sögðu upp störfum á síð­asta ári. Upp­lýs­inga­full­trúi Fjarða­byggðar neitar að svara spurn­ingum Mannlífs.

Heim­ildir Mannlífs herma að nokkur mál hafi komið upp hjá Fjarða­byggð sem illa hafi verið tekið á en 15 starfs­menn skrif­stofu sveit­ar­fé­lags­ins hættu störfum þar á síð­asta ári.

Mannlíf sagði nýlega frá máli Jóhanns Valgeirs Dav­íðs­sonar, íþrótta­kenn­ara á Eski­firði og fyrrum starfs­manns félags­mið­stöðvar bæj­ar­ins. Jóhann Valgeir var val­inn Aust­firð­ingur árs­ins 2022 fyrir ötula bar­áttu sína fyrir því að íþrótta­hús Eski­fjarðar yrði tekið í gegn en þar fannst mygla, eftir að við­tal birt­ist við Jóhann Valgeir á Rúv. Nokkrum dögum eftir frétt­ina var hann sendur í leyfi frá störfum í félags­mið­stöð­inni vegna máls sem furð­aði marga. Var honum gefið á sök að hafa sýnt grunn­skólakrökkum leik­inn þátt um raðmorð­ingj­ann Jeffrey Dahmer á Netflix, en þátt­ur­inn er stranga­lega bann­aður börnum undir 16 ára aldri. Hið sanna er þó að krakki setti þátt­inn í gang án vit­neskju Jóhanns Valgeirs en þar sem hann var eini starfs­mað­ur­inn í félags­mið­stöð­inni átti hann í erf­ið­leikum með að fylgj­ast með öllu því sem þar fór fram. Nýlega skrif­aði hann svo upp á starfs­loka­samn­ing eftir að honum var boðið að snúa aftur til starfa en með skil­yrðum sem hann sætti sig ekki við.

Illa tekið á eineltismáli

Þá var slökkvi­liðs­manni í sveit­ar­fé­lag­inu sagt upp störfum eftir að tvær konur í slökkvi­lið­inu sök­uðu hann um ein­elti. Kærði mað­ur­inn upp­sögn­ina og vann málið og þurfti Fjarða­byggð að borga honum fjóra og hálfa milljón í skaða­bætur vegna ólög­mætrar upp­sagnar en hann fékk meðal ann­ars ekki að nýta and­mæla­rétt sinn er ásak­an­irnar komu upp. Önnur kvenn­anna sem kvart­aði undan ein­elt­inu sagði í við­tali við Mannlíf árið 2020, farir sínar ekki sléttar hvað varð­aði þáver­andi starfs­manna­stjóra sveit­ar­fé­lags­ins. „Ég var búin að senda yfir­manni yfir­manns míns, það er að segja þáver­andi starfs­manna­stjóra Fjarða­byggðar, póst um ástandið og setj­ast á fund með honum og ræða málið. Nátt­úr­lega var öllu fögru lofað og talað um hvað það væri frá­bært að hafa konu í stétt­inni og að hann ætl­aði að gera allt til þess að laga stöð­una. Ég ítrek­aði erindið nokkrum sinnum við starfs­manna­stjóra Fjarða­byggðar en smám saman hætti hann svara og sam­skiptin fjör­uðu út án þess að nokkuð væri gert. Þannig að þetta var bara orðið ókleift fjall sem ég réði ekki við.“ Þessi starfs­manna­stjóri er bæj­ar­rit­ari Fjarða­byggðar og nú stað­geng­ill bæj­ar­stjóra Fjarða­byggðar sem hætti fyrir tveimur vikum. Þá er hann einnig stað­geng­ill mannauðs­stjór­ans sem fékk starfs­loka­samn­ing í hend­urnar fyrir helgi. Einnig er hann hafn­ar­stjóri í sveit­ar­fé­lag­inu og sviðs­stjóri umhverfis og skipu­lags­sviðs.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er gríð­ar­leg óánægja með ástandið í Fjarða­byggð. „Ástandið er mjög alvar­legt. Við erum með starfs­manna­stjóra sem nú er orð­inn mannauðs­stjóri, hann er bæj­ar­rit­ari, hann er stað­geng­ill bæj­ar­stjóra, hann er hafn­ar­stjóri og hann er sviðs­stjóri umhverfis og skipu­lags­sviðs líka. Hann er ástæðan fyrir því að sviðs­stjóri umhverfis og skipu­lags­sviðs er hættur. Sviðs­stjóri fram­kvæmd­ar­sviðs er hættur. Bygg­inga­full­trúi er hættur og mannauðs­stýra númer tvö er hætt eftir tæpt ár í starfi. Bæj­ar­stjór­inn er hættur,“ sagði einn heim­ild­ar­maður Mannlífs um ástandið í Fjarða­byggð en alls hættu 15 á skrif­stofu sveit­ar­fé­lags­ins á síð­asta ári , sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs.

Svara ekki spurningum Mannlífs

Mannlíf sendi fyr­ir­spurnir á for­stöðu­mann stjórn­sýslu- og upp­lýs­inga­mála hjá Fjarða­byggð, Þórð Vilberg Guð­munds­son, um mál­efni sveit­ar­fé­lags­ins en fékk engin svör, ekki heldur eftir að ítrekun var send á hann. Spurn­ing­arnar voru eft­ir­far­andi:

1. Hvað hafa margir starfs­menn hætt hjá Fjarða­byggð síð­ustu 12 mán­uði.
2. Hafa komið upp alvar­leg ein­elt­is­mál í Fjarða­byggð? Ef já, hvernig hafa þau verið unnin?
3. Er Fjarða­byggð með starfs­manna­stjóra? Ef svo er, hver er það?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil