Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Anna rifjar upp sögu af kettinum Hrafnhildi: „Heitir það ekki núna fólkfólkinu?“

Anna rifjar upp sögu af kettinum Hrafnhildi: „Heitir það ekki núna fólkfólkinu?“
Anna Krist­jáns.

„Hundar eru skyn­samar skepnur, reyndar ekki eins skyn­samir og kettir en skyn­samir samt. Þeir gera til dæmis ekki stykkin sín inn­an­húss nema í ítr­ustu neyð, reyndar eins og kettir sem eiga venju­lega sitt eigið kló­sett, alla­vega ef þeir búa í manna­bú­stöðum (afsakið fólk­bú­stöðum).“ Svona hefst nýjasta dag­bók­ar­færsla Önnu Krist­jáns í Paradís en það er gælu­heitið sem hún gefur Tenerife.

Í færsl­unni talar hún lítið um mann­fólkið en meira um hunda og ketti. Þó aðal­lega ketti. Rifjar hún upp þegar hún átti kött­inn Hrafn­hildi í Árbæj­ar­hverf­inu en hún átti það til að stel­ast á næstu svalir til að gera stykkin sín. Síðar í færsl­unni segir hún frá kló­sett­venjum Texas el Perró sem hún á í Paradís. Grínast hún með orðið „mann­fólkið“ og spyr hvort það heiti ekki nú „fólk­fólkið“. Dag­bók­ar­færsl­una má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

„Dagur 1314 – Af hundum og köttum.

Hundar eru skyn­samar skepnur, reyndar ekki eins skyn­samir og kettir en skyn­samir samt. Þeir gera til dæmis ekki stykkin sín inn­an­húss nema í ítr­ustu neyð, reyndar eins og kettir sem eiga venju­lega sitt eigið kló­sett, alla­vega ef þeir búa í manna­bú­stöðum (afsakið fólk­bú­stöðum).Ég man að þegar ég bjó í Árbæj­ar­hverf­inu í Reykja­vík veitti ég því athygli að hún Hrafn­hildur mín ofur­k­isa var farin að gera óvenju lítið í kass­ann sinn og fór að fylgj­ast með henni. Svo þurfti hún að gera stykkin sín, fór út á svalir og fór létt með að skríða yfir á næstu svalir, stillti sér upp yfir stóru blóma­keri með litlu opi að ofan og lét stykkin sín detta þar ofaní. Skömmustu­leg þurfti ég að banka upp á hjá nágrönn­unum og biðj­ast afsök­unar fyrir klær Hrafn­hildar og reyna síðan að koma í veg fyrir að hún stælist þangað yfir. Reyndar voru nágrannar mínir slíkt sóma­fólk að öll sam­skipti við þau voru hin bestu, hún frá Vest­manna­eyjum (hvað annað?). Smám saman lærð­ist Hrafn­hildi að kass­inn heima var sá eini sem mátti nota inn­an­dyra. Hvað hún gerði svo af sér þegar hún var úti að skemmta sér kom engum við nema henni sjálfri.Texas el Perró er ósköp þægur og bíður þol­in­móður flestar nætur eftir því að ein­hver vakni og hleypi sér út að sinna grunn­þör­f­unum. En ein­hvern­tím­ann síð­ustu dag­ana sem litla fjöl­skyldan var hjá mér hefur eitt­hvað brugð­ist því þegar þau voru farin, var komin vond lykt í litla her­bergið og reynd­ist Texas þá hafa migið á gólfið.Nú er allt komið í lag, öll rúm­föt þvegin, öll rúm­teppi og teppin til að hlífa garð­hús­gögn­unum einnig, her­bergið útloftað, gólfið nýskúrað og allt á leið til betri vegar.Það er ekki hægt að kenna Texas um óheppn­ina, frekar mann­fólk­inu. (heitir það ekki núna fólk­fólk­inu?)“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar