Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Úrslitakvöld Eurovision – Dularfullur leynigestur og níu atriði í viðbót til að fylgjast með

Úrslitakvöld Eurovision – Dularfullur leynigestur og níu atriði í viðbót til að fylgjast með
Finnar …

Evrópa fer á hlið­ina í kvöld er kepp­endur stíga á Eurovision-sviðið í Liverpool. Spennan er raf­mögnuð en Íslend­ingar eru loks­ins hættir að skamm­ast sín fyrir að horfa á keppn­ina og munu ófáar eðl­urnar verða bak­aðar í kvöld. BBC tók saman 10 atriði sem þarf að fylgj­ast með í kvöld.

1. Kraftur Poe

Hinar aust­urísku Teya og Salena eru fyrstar á svið í kvöld, með lag um það að vera and­setin af anda amer­íska skálds­ins Edgar Allen Poe, sem þvingar þær í að semja smell sem reddar þeim samn­ingi við Uni­ver­sal records plötu­út­gef­and­ann.

Í raun er lagið ádeila á illri með­ferð tón­list­ar­iðn­að­ar­ins á laga­höf­undum. Á einum stað í text­anum segir „Zero dot zero zero three,“ með vísan til rýrra stef­gjalda Spotify. „Give me two years and your dinner will be free“ syngja þær einnig á einum stað í lag­inu.

Lagið er allt pakkað inn í flottan raf­popp­pakka með við­lag­inu, „Poe, Poe, Poe, Poe, Poe, Poe,“ sem á þýsku þýðir „ræf­ill, ræf­ill, ræf­ill, ræf­ill, ræf­ill, ræf­ill.“

Finnar …

2. Hinn finnski kálormur

Það er ekki Jim Carrey úr Dumb and Dumber sem stígur á svið fyrir Finnland í kvöld heldur finnski rapp­ar­inn Käärijä sem kemur fram með eitt djarfasta Eurovision lagið í ár.

Cha Cha Cha er óhefð­bundin blanda af iðn­að­ar­rokki, refsi­teknói og gleði­legu tölvu­leikjatón­list sem fjallar um þá and­legu fyll­ingu að verða dauða­drukk­inn og dansa eins og fáviti.

Käärijä sýnir það með því að dansa eins og fáviti í bún­ing sem lætur hann líta út eins og Hulk sem hefur fests í miðri umbreyt­ingu.

Í við­tali við BBC upp­ljóstr­aði sá finnski að hinar skær­grænu bolero ermar eru kall­aðar „kálorm­ur­inn“ til heið­urs finnskri kyn­lífstækja­verlun­ar­keðju.

Að sjálf­sögðu er lag­inu spáð afar góðu gengi.

3. Leynig­estur?

Ég vona að annar þeirra mæti ekki. Ég segi ekki hvor þeirra en nafn hans byrjar á B og endar á ono.

Orðrómur um leynig­est hefur verið á kreiki alla vik­una en sumar halda að Bít­ill­inn og Liverpool-hetjan Paul McCartney muni stíga á svið en aðrir halda að það verði Katrín prinsessa. Það eina sem vitað er, er það að ekk­ert er vitað.

„Ég hélt að Karl og Kamilla myndu mæta og lesa upp stigin, en það verður víst Catherine Tate,“ grín­að­ist Eurovision-þulur Radio 2, Ryan Clark. „Það hefur ýmis­legt verið í gangi á æfingum þar sem allt er algjör­lega lokað af,“ bætti sam­starfs­maður hans, Scott Mills við. „Það er mikil leynd í gangi og eng­inn vill segja okkur hvað er í gangi.“

„En,“ sagði Ryan þá og bætti við, „gefðu mér tvo drykki og ég skal segja þér allt.“

4. Dívan Loreen
Í marga mán­uði hefur hin sænska stjarna Loreen verið efst á listsum veð­banka. Hún er nú þegar Eurovi­son ofur­stjarna en hún rústaði keppn­inni 2012 en í ár mætir hún með eyrna­konfektið Tattoo

Textinn er um ást sem er það djúp að hún grefur sig í hjarta þitt (eins og tattú, skil­urðu?) en þetta er allt saman bara afsökun til að sýna kraft­mik­inn söng Loreen, sem meðal ann­ars heyr­ist í „jú-hú-hú“ kafl­anum í við­lag­inu.

Loreen syngur lagið á meðan hún er hálf kramin á milli tveggja risa­vax­inna LED-skjáa, í raun geimaldar sam­loku­grill. Þó að hún sé vön að ná alltaf tón­unum missteig hún sig aðeins á æfingu í vik­unni. Þegar hún var spurð út í það á blaða­manna­fundi brosti dívan og hló og sagði svo: „Voru tón­arnir ekki full­komnir elskan? Hvað ertu eig­in­lega að tala um?“ Þvílík goð­sögn.

Ekki alveg Adele en næstum því.

5. Adele eftirherman sem syngur fyrir Litháen

Mae Muller er ekki eini Bretinn sem keppir í kvöld. Nicola Lambri­anos sem er Adele eft­ir­herma frá Essex, syngur í bak­röddum fyrir hina lit­há­ensku Moniku Linkyé. Það sem meira er, þá átti hún þátt í því að fá Moniku til að taka þátt.

Konurnar tvær hitt­ust á bar í fyrra og eftir að þær byrj­uðu að ræða um tón­list sagð­ist Monika hafa keppt í Eurovision árið 2015.

„Ég var berg­numin því ég er hel­tekin af Eurovisino,“ sagði Nicola við BBC. „Þannig að ég sagði við hana: „Veistu um ein­hvern sem gæti reddað mér miða?“.“

„Ég lof­aði að útvega henni miða,“ sagði Monika, „Svo fór ég aftur til Litháen og samdi lag á einu kvöldi.“

Nokkrum vikum síðar bauð hún Nicolu til Litháen til að syngja í laga­keppn­inni fyrir Eurovision. Og þær unnu.

„Ég sá kon­fetti koma niður og ég leit á hana og sagði, „Vorum við ekki að grín­ast með þetta fyrir fjórum vikum síðan?“,“ sagði Nicola. „Og nú er ég í Eurovision. Draumur sem ég bjóst aldrei við að yrði að veru­leika.“

6. Magnað dans­hlé Ísrael
Noa Kirel hefur verið kölluð hin ísra­elska Britney Spears. Hún hefur fjórum sinnum kom­ist á topp vin­sælda­lista, unnið fimm MTV-verð­laun og verið dóm­ari í Israel´s Got Talent, ásamt því að þjóna skyldu­störfum í ísra­elska hernum í tvö ár.

Hún samdi lagið Unicorn ásamt Doron Medalie, sem samdi sig­ur­lag Ísrael í Eurovision 2018, Toy. En aðal málið í atriði hennar er magnað 30 sek­úndna dans­hlé. „Þetta er eitt­hvað sem ég hef mjög mikla ástríðu fyrir,“ sagði hin 22 ára söng­kona í hinu opin­bera Eurovision-hlað­varpi. „Þegar ég var tveggja eða þriggja ára var ég vön að dansa í stof­unni fyrir framan fjöl­skyld­una og ég sagði: „Klappið þegar sýn­ing­unni er lokið“.“

Þrátt fyrir að hún lærði ballet, flamenco og hip-hop dans og hefur dansað á ein­hverjum stærstu sviðum heims, þá hefur Eurovision alltaf verið draumur hennar. „Mig dreymir alltaf um atriðið. Einhver ýtir mér á sviðið og ég veit ekki hvað ég mun gera og hvað ég mun syngja og allir áhorf­end­urnir eru að horfa á mig. Að vera partur af þessu og stíga fram fyrir landið þitt á einu stærsta sviði heims­ins, er mjög stressandi.“

7. Bak­sviðs­fólkið eru hinar þöglu stjörnur

Þú munt ekki sjá þau en bak­sviðs­fólkið í Eurovision eru hinar sönnu hetjur í keppn­inni. Þau sjá um 23.700 ljós­gjafa, 482 bún­inga, 150 hljóð­nema, 100 hár­kollur, 3.000 förð­un­ar­bursta og sjá um að allt gangi snuðru­laust fyrir sig.

Hvert atriði hefur sitt sér­staka útlit. Á ákveðnum augna­blikum er sviðið prýtt með gam­al­dags Toyota MR2, risa­stórum geim­veru­belg, trampólíni, tveimur kjarna­oddum (ekki alvöru, engar áhyggjur) og sviðs­menn­irnir hafa aðeins 53 sek­úndur á milli atriði til að hreinsa sviðið og fylla það af næstu leik­munum.

„Hraðinn er erf­ið­asti part­ur­inn því allir eru með svo­lítið klikk­aðar beiðnir,“ sagði ljósameist­ar­inn Tim Routledge. „En við erum hér til að láta drauma þeirra ræt­ast.“

Þau hafa þróað nokkrar sniðugar brellur til að láta þetta allt ger­ast. Sviðið sjálft er í raun risa­stór LED skjár, sem breyt­ist í „kort“ fyrir alla leik­mun­ina á milli atriða.

„Við vorum vön að merkja gólfið með lím­böndum, þannig að það varð svo­lítið subbu­legt,“ sagði sviðs­hönn­uð­ur­inn Julio Himede. „Nú er þessu bók­staf­lega stjórnað með því að ýta á takka á iPad.“

„Lista­mað­ur­inn fær jafn­vel lítið T-merki á svið­inu svo hann sjái hvar hann eigi að standa og þá vitum við hvar nákvæm­lega kast­ljósið kemur á hann.“

8. Leynilukku­dýr Frakka

Mr. Bean?

Alla vik­una hefur franska stjarnan La Zarra gengið um með eft­ir­mynd af dökk­brúna Mr. Bean bangsa, sem hefur hnappa fyrir augu, hvert sem hún fer. „Hann er lukku­dýrið mitt,“ sagði hún í við­tali við BBC. „Kannski mun hann koma fram á svið­inu með mér. Kannski undir kjólnum mínum.“

Það er sann­ar­lega nóg pláss undir kjólnum hennar. La Zarra kemur fram á risa­stórum rísandi sviðs­palli á meðan kjóll­inn hennar bylgj­ast og lið­ast niður á gólfið. Þetta lætur hana líta út eins og kló­settrúllu­dúkkur sem amma þín (ef þú ert Breti, fréttin er frá BBC) var vön að eiga, nema bara frönsk og glæsi­leg.

La Zarra, sem er stór­stjarna í heima­land­inu, von­ast til að vera sú sem rýfur 45 ára tap­hr­inu Frakk­lands í Eurovision.

Lag hennar, Evidemment er flott blanda af Edith Piaf og Daft Punk en lagið inni­heldur bestu línu kvölds­ins: „I’m looking for love, but I can’t find anyt­hing, just like in my purse.“

9. Póli­tíkin

Heil Putin

Eurovision varð að veru­leika á sjötta ára­tug síð­ustu aldar með það að mark­miði að sam­eina Evrópu eftir seinni heim­styrj­öld­ina, þannig að reynt hefur verið að halda póli­tík­inni í lág­marki. En þrátt fyrir að for­seta Úkraínu, Volodomyr Zelenski hefur verið neitað tæki­fær­inu til að ávarpa keppn­ina, er slatti af ádeilu á inn­rás Rússa í land hans, í keppn­inni.

Króat­ísku söngv­ar­arnir mæta á sviðið í blóð­ugum kápum og syngja and­stríðslag sem er mynd­lík­ing fyrir rúss­neska sam­bands­ríkið.

Þeir gera grín að ein­ræð­is­herrum fyrir að vera „barna­legir“ og „geð­sjúk­lingar“, með sér­stakri áherslu á for­seta Rúss­lands, Vladimir Putin.

Trakt­or­inn sem oft er minnst á í text­anum er greini­lega til­vísun í for­seta Berarús, Alex­ander Lukashenko, sem styður inn­rás­ar­stríðið og gaf Putin traktor í sjö­tugs afmæl­is­gjöf.

Tékk­neski konu­hóp­ur­inn Vesna syngur að hluta til á úkra­ínsku í lagi sínu My Sister´s Crown. „My sister won’t stand in the corner / Nor will she listen to you,“ they chant. „We’re with you in our hearts.“

Úkra­ínsku kepp­end­urnir, Tvorchi vísa einnig í stríðið í sínu lagi, Heart of Steel. Lagið, sem er töfr­andi og rugl­andi synt­hpop var inn­blásið af Azovstal-umsátr­inu og borg­ur­unum sem varði stál­verk­smiðju bæj­ar­ins.

10. Ástralir gefa í botn

Síðustu átta ár hefur Ástralía verið vel­komið í glimmer húð­aðan faðm Eurovision sem heið­urs-Evr­ópu­búar.

Aðdáun lands­ins á keppn­inni nær alla leið aftur til Abba en þjóðin er gegn­tekin og millj­ónir vakna klukkan fimm á morgn­ana til að horfa á keppn­ina í beinni.

Í ár rennur samn­ing­ur­inn út en Ástr­a­l­arnir ætla aldeilis að hætta með stæl. Prog-metal bandið Voyager mætir á sviðið með klikk­uðu ljósa­sjóvi og keyt­ar­sólói með lag sem er blanda af Duran Duran og Panic At the Disco.

Aðal­söngv­ar­inn, Danny Estrin, sem er lög­maður hæl­is­leit­enda í hans venju­lega lífi, seg­ist grípa tæki­færið með báðum örmum.

„Ég held að þetta sé eitt­hvað sem allir tón­list­ar­menn ættu að leit­ast við að gera, því þetta er svo ynd­is­legt,“ sagði hann í sam­tali við BBC. „Og þetta gefur fólki tæki­færi á að sjá okkur loks­ins, hvort sem þeim líka betur eða verr. Þau eru neydd til þess. Slíkt er svo frá­bært fyrir hljóm­sveit sem er á svo afmörk­uðum mark­aði. Þetta er stórt mál. Þetta er geggj­að­asta sýn­ing heims.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar