Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Vínklúbburinn – Vín í áskrift

Vínklúbburinn – Vín í áskrift
Einar Þór Ing­ólfs­son

Hug­myndin með Vín­klúbbnum er að bjóða upp á létt­vín í áskrift og stuðla að auk­inni þekk­ingu um vín á Íslandi. Lögð er áhersla á gæða­vín sem koma frá mis­mun­andi löndum, hér­uðum og af marg­vís­legum þrúgum. Í hverri send­ingu fylgir grein­ar­góð lýs­ing á vín­unum og fram­leið­endum þeirra.

Vín­klúbb­ur­inn var stofn­aður haustið 2022 að erlendri fyr­ir­mynd. Stofn­endur eru nokkur vina­hjón sem kynnst hafa slíkum klúbbum en víða hefur lengi tíðkast að fólk ger­ist áskrif­endur að vín­kössum sem sendir eru heim að dyrum. Áskrif­endur að Vín­klúbbnum vita ekki hvað leyn­ist í kass­anum í hverjum mán­uði en áhersla er lögð á fjöl­breytt gæða­vín sem ekki hafa áður verið fáan­leg á Íslandi.

„Vín­menn­ing á Íslandi er mun skemmra á veg komin en í mörgum löndum í kringum okkur. Með Vín­klúbbnum viljum við stuðla að auk­inni fræðslu og kynna áskrif­endum fyrir spenn­andi vínum sem þeir hefðu lík­leg­ast ekki prófað ann­ars. Með hverjum vín­kassa fylgja ítar­legar upp­lýs­ingar um vínin, upp­runa þeirra og með hvers konar mat þau henta best. Við erum gríð­ar­lega ánægð með við­tök­urnar sem við höfum fengið frá því að við hófum starf­semi okkar,“ segir Einar Þór Ing­ólfs­son, einn stofn­enda klúbbs­ins. „Við hugsum Vín­klúbb­inn ekki fyrir vín­sér­fræð­inga heldur fyrir allt áhuga­fólk um vín. Við viljum kynna fólki fyrir fjöl­breyttum og spenn­andi vínum frá mis­mun­andi svæðum. Það má í raun segja að með því að fá vínin send heim að dyrum sé val­kvíð­inn við vín­rekk­ann úr sög­unni. Áherslan hjá okkur er og verður að bjóða upp á gæða­vín á góðu verði.

Við sem stöndum að klúbbnum erum ekki vín­sér­fræð­ingar en mikið áhuga­fólk um vín. Við erum hins vegar í sam­starfi við sterka heild­sala og sér­fræð­inga á Norð­ur­löndum sem eru okkur innan handar við valið. Einnig flytjum við beint inn frá nokkrum spenn­andi minni fram­leið­endum. Við leit­umst því við að kynna fólki fyrir góðum vínum sem hafa ekki verið fáan­leg á Íslandi til þessa en einnig fyrir vínum frá fram­leið­endum sem leggja áherslu á nýsköpun og þróun.“

Lífræn ræktun og náttúruvín

Meðlimir geta valið um tvær áskrift­ar­leiðir, Vín­klúbb­inn eða Vín­klúbb­inn Premium. Þeir sem velja Vín­klúbb­inn fá sér­valin vín á góðu verði sem henta vel við hvert tæki­færi. Lögð er áhersla á góða blöndu af vínum sem hafa hlotið lof gagn­rýnenda en eru jafn­framt á sér­lega góðu verði miðað við gæði.

Í Vín­klúbb­inn Premium rata hand­valin hágæða­vín sem þykja skara fram úr og kitla bragð­lauk­ana. Áhersla er lögð á heims­þekkt vín frá fjöl­breyttum fram­leið­endum með ríka sögu um gæði í bland við nýrri fram­leið­endur sem eru lík­legir til að skjót­ast upp á stjörnu­him­in­inn.

Í báðum áskrifta­leiðum má velja um þrjár eða sex flöskur í hverri heim­send­ingu.

Einar Þór að smakka vín hjá litlum vín­fram­leið­anda í Valpolicella á Ítalíu.

Einar Þór segir mikið vera að ger­ast í vín­heim­inum. „Það er  mikil áhersla lögð á líf­ræna og bíódínamíska ræktun og flestir fram­leið­endur eru í dag með skýra stefnu varð­andi sjálf­bærni. Einnig eru nátt­úru­vín farin að skjóta upp koll­inum og mikið úrval er af frá­bærum vínum sem eru fram­leidd sem slík. Þetta er þróun sem við fylgj­umst vel með og viljum kynna fyrir fólki í Vín­klúbbnum. Í kass­anum okkar í júní bjóðum við til dæmis upp á franskt gulvín („orange wine“) sem er vín­teg­und sem hefur á und­an­förnum árum notið mik­illa vin­sælda meðal vín­á­huga­fólks. Það er ástríða okkar og mik­il­vægur hluti af starf­sem­inni að fylgj­ast vel með nýj­ungum og því sem ger­ist á mark­aðnum og í lönd­unum í kringum okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni