Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hefndarklámskúganir herja á einhleypa Íslendinga: „Fór í full on panic mode. Ofandaði og allt“

Hefndarklámskúganir herja á einhleypa Íslendinga: „Fór í full on panic mode. Ofandaði og allt“
Myndin er sam­sett

Fjár­kúg­un­ar­bylgja virð­ist ríða yfir á stefnu­móta­for­ritum. Æ fleiri Íslend­ingar eru að lenda í óprútt­unum aðilum sem beita óheið­ar­legum aðferðum til að nálg­ast nekt­ar­myndir af fórn­ar­lömbum sínum og í fram­hald­inu hóta að deila mynd­unum til vina eða fjöl­skyldu fórn­ar­lambanna, ef ekki er greitt lausn­ar­gjald fyrir. Í sam­tali við Mannlíf lýsir íslenskur karl­maður raunum sínum og þá skömm sem hann upp­lifði við reynsl­una:

„Við mötsuðum á Tinder en eftir smá spjall bað hún um Instagram­mið mitt og Snapchat“.
Við­mæl­and­inn sem er á fimm­tugs­aldri útskýrir að konan var skráð á stefnu­móta­for­rit­inu sem 28 ára en hafði við­ur­kennt síðar í sam­tal­inu þeirra á milli að hún væri í raun 21 árs, en að hún heill­að­ist af eldri karl­mönnum og hefði þar af leið­andi logið til um aldur sinn. Samtalið þeirra á milli var á ensku þar sem konan sagð­ist vera pólsk en að hún ætti ætt­ingja á Íslandi sem hún væri að koma að heim­sækja eftir örfáa daga.

Samtalið gekk hratt fyrir sig og teng­ing þeirra á milli sömu­leiðis. Hann lýsir því að hún hafi snemma óskað eftir því að færa sam­skiptin yfir á annan miðil. Vinsælt er færa sig annað þar sem Tinder býður til dæmis ekki upp á mynda­send­ingar. Stakk hún upp á Snapchat og Instagram og tengd­ust þau á báðum miðlum.

Þau héldu sam­tali sínu áfram á Snapchat. Þar hafði hún fljót­lega sent honum and­lits­mynd og hann sendi henni sömu­leiðis. „Svo sagð­ist hún ætla að stökkva í sturtu og sendi mér nekt­ar­mynd úr sturtu,“ útskýrir hann og seg­ist hafa upp­lifað sam­talið allt mjög raun­veru­legt.

„Svo sendi hún aðra nekt­ar­mynd þegar hún var „komin úr sturtu“ … og bað mig að senda sér,“ lýsir við­mæl­and­inn og und­ir­strikar að vera ekki vanur að gera slíkt en að hann var hrif­inn með og upp­lifði sam­talið öruggt. Pólska stúlkan hafði því næst óskað eftir typpa­mynd, og hann varð við bón hennar. Samtalið fær­ist því fljótt yfir í kyn­ferð­is­legar lýs­ingar, þrár og vænt­ingar.

Hafði sigtað út börnin hans

„Allt í einu out of the blue fæ ég skila­boð frá henni á Snapchat þar sem hún er með fullt af skjá­skotum af sam­skiptum okkar og á sama tíma fæ ég boð um inn­göngu í spjall­grúppu á Instagram“. Konan hafði þá tekið afrit af öllum sam­skipt­unum þeirra á Snapchat og vistað mynd­irnar sem hann hafði sent henni. Hún hafði auk þess nálg­ast vini hans og ætt­ingja í gegnum fylgj­enda­hóp­inn hans á Instagram og stofnað þráð með þeim öllum – þar á meðal börnum hans.

Því næst hót­aði hún að deila mynd­unum í hóp­spjallið ef hann myndi ekki greiða henni 200 doll­ara eða rúmar 27 þús­und íslenskar krónur. Hún gerði það afar ljóst fyrir honum að hún vissi hver börn hans væru og nafn­greindi þau. Fát kom á mann­inn sem bað hana vægðar og að hinkra augna­blik: „Þá varð hún agressív og sagð­ist ekki „fucking“ bíða neitt, börnin mín muni fá þetta líka.“

Aðspurður um inni­hald sam­skipt­anna og ljós­mynd­irnar segir hann: „Ekkert afbrigði­legt en vand­ræða­legt ef allir vissu“.

„Ég fór í full on panic mode. Ofandaði og allur pakk­inn,“ útskýrir við­mæl­and­inn og lýsir þeirri skömm sem sótti á hann. Varn­ar­laus og ráða­laus yfir aðstæð­unum upp­lifi hann algjöra upp­gjöf. Sjálfur í fjár­hagskröggum var hann auk þessa með­vit­aður um þá gildru sem hann var kom­inn í – ef hann greiddi henni myndi hún krefj­ast meira. Hann skrif­aði stúlkunni og lét hana vita að hún gæti gert það sem hún vildi; Hann ætti ekki pen­ing og myndi ekki borga. Að end­ingu lok­aði hann á hana bæði á Instagram og Snapchat.

Upplifði tvöfalda skömm

„Ég var skít­hræddur dag­inn eftir því ég var ekki viss hvort hún hefði sent þetta á vini mína á Instagram og á börnin mín,“ og útskýrir og seg­ist jafn­framt hafa upp­lifað djúp­stæða og tvö­falda skömm.

„Fyrst að hafa verið svona vit­laus að láta plata mig og svo skömmin yfir því að fólk muni nú sjá mig nak­inn“.

Hann leit­aði ráða hjá fjöl­skyldu­með­limi sem náði að róa hann og auk þess hafði hann lesið sig til um við­líka dæmi og hvernig best væri að aðhaf­ast í slíkum aðstæðum.

Fjölmargir deila sárri reynslu

Tölu­verður hópur Íslend­inga hefur upp­lifað slíkar hót­anir og á dög­unum leit­aði ráð­þrota ein­stak­lingur ráða á fjöl­mennum hópi á Facebook. Þar óskaði hann eftir leið­bein­ingum um hvernig best væri að snúa sér í slíkri fjár­kúg­un­ar­að­gerð. Í athuga­semdum við færsl­una kom í ljós að stór hópur hafði upp­lifað slíkt og bentu á að hafa sam­band við lög­reglu eða aðhaf­ast ekki neitt.

Á ensku kall­ast slíkar fjár­kúg­un­ar­að­ferðir sem þessi sextortion og er það skil­greint sem kúg­un­ar­að­ferð með hefnd­arklámi. Þá er bent á að aldrei skuli greiða þeim sem beitir ofbeld­inu né heldur að senda þeim fleiri upp­lýs­ingar eða ljós­myndir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ