Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Reykjavíkurborg mismunar börnum eftir búsetu

Reykjavíkurborg mismunar börnum eftir búsetu
Skjáskot / Reykja­vík­ur­borg

Þegar litið er á opn­un­ar­tíma félags­mið­stöðva í Reykja­vík­ur­borg virð­ist vera að borgin mis­muni börnum borg­ar­innar eftir búsetu.

Lítið sam­ræmi hefur verið und­an­farin ár í félags­mið­stöðva­starfi borg­ar­innar þegar kemur að opn­un­ar­tímum þeirra og er sá tími síbreyti­legur milli ára. Börn í 5. – 7. bekk sem eru búsett í Norð­linga­holti geta búist við að fá tvo klukku­tíma í viku í sinni félags­mið­stöð sam­kvæmt heima­síðu félags­mið­stöðv­ar­inar Holtsins, sem er stað­sett í hverf­inu. Það er tals­vert minna en krakkar sem búa í Selási, sem er hinumegin við göt­una frá Norð­linga­holti, fá. Krakkar í 5. – 7. bekk sem búa í Árbænum (Ártúns­holt, Árbær og Selás) fá að minnsta kosti tíu tíma í viku í þeirra félags­mið­stöð. Það er fimm­faldur munur á tíma sem krakk­arnir fá úthlutað. Svipuð mis­munun er einnig hjá eldri krökkum þess­ara hverfa en ung­lingar í 8. – 10. bekk í Norð­linga­holti geta aðeins mætt á kvöldopnun annan hvern föstu­dag meðan krakkar í flestum öðrum félags­mið­stöðvum fá að mæta öll föstu­dags­kvöld.

Mis­mun­unin er í sumum til­fellum innan hverfa. Félags­mið­stöðv­arnar Laugó og Buskinn eru með opið á kvöldin fyrir ung­linga þrisvar í viku meðan félags­mið­stöðin Þrótt­heimar er með opið fjögur kvöld fyrir sama ald­urs­hóp. Allar félags­mið­stöðv­arnar eru stað­settar í Laug­ar­dalnum. Þeir félags­mið­stöðva­starfs­menn sem Mannlíf ræddi við segja að mis­mun­andi opn­un­ar­tímar félag­mið­stöðva hafi reglu­lega komið upp í sam­tölum á fundum og hitt­ingum á und­an­förnum árum en fátt sé um svör. Sér­stak­lega þyki það skrýtið að krakkar í 5. – 7. bekk í sama hverfi sem æfi íþróttir með sömu íþrótta­fé­lögum séu ekki með sam­ræmdan opn­un­ar­tíma í hverf­inu og hafi það nei­kvæð áhrif á starf bæði íþrótta­fé­laga og félags­mið­stöðva. Þá þyki það furðu­legt að sumar félags­mið­stöðvar séu opnar til 23:00 á föstu­dags­kvöldum meðan aðrar loki klukkan 22:00.

„Sam­ræmdur opn­un­ar­tími á mánu­dags- og mið­viku­dags­kvöldum hefur verið kl. 19.30-22:00 en verður frá og með næsta hausti frá 19.30-21.45. Sam­komu­lag hefur verið á milli stjórn­enda félags­mið­stöðva um að á föstu­dags­kvöldum sé svig­rúm til að aðlaga opn­un­ar­tíma að aðstæðum í hverri félags­mið­stöð eða hverfi og verður það áfram þannig næsta haust,“ svar­aði Reykja­vík­ur­borg eftir fyr­ir­spurn Mannlífs um málið. Þegar þessi skerð­ing var sam­þykkt á fundi borg­ar­stjórnar kom það mörgum félags­mið­stöðva­starfs­mönnum í opna skjöldu enda hafa ýmsir emb­ætt­is­menn og deild­ar­stjórar verið dug­legir að gorta sig í við­tölum við inn­lenda og erlenda fjöl­miðla af þeim árangri í starfi sem náðst hefur und­an­farin ára­tug í félags­mið­stöðv­unum. Einnig rímar svarið ekki við opn­un­ar­tíma sem félags­mið­stöðvar birta sjálfar á heima­síðum sínum þar sem ljóst er að ein­hverjar eru með kvöldopn­anir á þriðju­dags­kvöldum.

„Opnun tvisvar í viku fyrir 10-12 ára hóp­inn er útfærslu­at­riði þar sem sá fjöldi sem verið er að þjón­usta, fjöldi úthlut­aðra stöðu­gilda og það hús­næði sem félags­mið­stöðvar hafa til umráða er mis­mun­andi eftir félags­mið­stöðvum og því hafa ekki verið sett inn skýr­ari ákvæði í regl­urnar um þjón­ustu við þennan ald­urs­hóp en nú er,“ svar­aði borgin um mun­inn á opn­un­ar­tímum hjá 5. – 7. bekk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ