Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Yfirlýsing Anítu Rutar: „Fólk er tekið af lífi í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum við hið minnsta“

Yfirlýsing Anítu Rutar: „Fólk er tekið af lífi í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum við hið minnsta“
Aníta Rut Harð­ar­dóttir Mynd/Aðsend

„Í ljósi lið­inna atburða og frétta­flutn­ings vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi,“ svo hljóðar upp­haf frétta­til­kynn­ingar sem barst Mannlífi frá Anítu Rut Harð­ar­dóttur. Til­kynn­ingin barst í kjöl­far frétta­flutn­ings er dómur féll í máli Anítu Rutar gegn íslenska rík­inu og lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ný fall­inn dómur olli mér von­brigðum en kom ekki á óvart í ljósi þess hvernig umræð­unni er stýrt í þessu þjóð­fé­lagi. Fólk er tekið af lífi í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum við hið minnsta og orð gagn­gert tekin úr sam­hengi til að búa til fyr­ir­sagnir eða sniðug tíst. Frétt­irnar skapa klikk og aug­lýs­inga­tekjur og tístin gefa tíst­ar­anum boð­efna inn­spýt­ingu. Rétt­læt­is­ridd­arar skreyta sig fölskum dyggðum. Öllum er slétt sama um hið sanna svo lengi sem tístið fær læk.

Mannauðs­stjóra lög­regl­unnar tókst að taka orð mín úr sam­hengi fyrir rétti. Þar var því haldið fram að ég hafi verið að veit­ast að þolendum og að ég þar af leið­andi standi ekki með þeim og komi óorði á lög­reglu. Þetta eru frá­leitar ásak­anir. Þá tel ég nauð­syn­legt að leið­rétta og koma á fram­færi að það er með ólík­indum að þurfa hlusta á fólk ljúga fyrir dómi og halda því fram að ég sé á sömu launum og með sama yfir­mann og áður. Hvort tveggja er rangt og kyrfi­lega skjal­fest. En þegar öllu er á botn­inn hvolft þá eru mein­ingar mínar teknar úr sam­hengi og rang­túlk­aðar af aðilum sem virð­ast vera að leggj­ast á eitt um að láta mig líta illa út. Auk þess eru mér lögð orð í munn. Ég er í starfi þar sem ég þarf alltaf að gæta hlut­leysis, ég get ekki leyft mér að taka ákvarð­anir útfrá ein­hliða frá­sögnum, skiptir ekki máli hvers kyns málið er. Við þurfum ávallt að vera hlut­laus í okkar störfum. Við getum ekki sem lög­regla hand­tekið menn eftir pönt­unum. Að frels­is­svipta ein­stak­ling er mikið inn­grip og gríða­leg ábyrgð fylgir þeirri ákvörðun. Við sem lög­reglu­menn þurfum alltaf að taka til­lit til allra og gæta fyllsta hlut­leysis. Þetta þýðir ekki það að ég standi ekki með þolendum, heldur fylgi ég lögum og reglum, tek upp­lýstar ákvarð­anir varð­andi mína vinnu, sem eru síðan allar skjal­festar og aðgengi­legar.

Ég er með 23ja ára reynslu við lög­gæslu­störf við alls­konar mögu­legar og ómögu­legar aðstæður sem ég óska fólki ekki að upp­lifa. Það að túlka mín orð svona rang­lega hljómar fyrir mér sem ein­settur ásetn­ingur fólks sem elskar að hata aðra og berja sjálfu sér á brjóst með ímynd­aðri rétt­sýni. Þetta er fólk sem í raun er að skemma líf ann­ara og upp­hefja sig sjálft í leið­inni. Hvað er það annað en nars­isísk gervi góð­mennska? Að þykj­ast vera góður og rétt­sýnn út á við, til þess eins að upp­hefja sjálfan sig. Við höfum öll séð slíka ein­stak­linga hafa sig í frammi á sam­fé­lags­miðlum að und­an­förnu oft með skelfi­legum afleið­ingum. Fyrir mér þýðir nið­ur­staða umrædds dóms kannski eitt núll fyrir sið­blindum nars­is­isstum en ég held að okkur sé óhætt að spyrja að leikslokum. Þjóð­fé­lag okkar á að vera byggt á lögum og reglum en ekki dóm­stóli göt­unnar.

Ég held að flest séum við sem betur fer farin að átta okkur á að hér hafi ríkt ákveðið sturlun­ar­á­stand und­an­farin miss­eri og nú sé tími til kom­inn til að vakna upp af þessum sof­anda­hætti. Ég er með öllu ósam­mála nið­ur­stöðu þessa dóms og held að tím­inn muni leiða í ljós rang­læti hans.

Virð­ing­ar­fyllst

Aníta Rut Harð­ar­dóttir


Hér má lesa dóm­inn í heild

Tengdar fréttir:

Lög­reglan skoðar mál Anítu: „Við erum búin að fá ábend­ingar“

Þórdís gagn­rýnir varð­stjóra: „Mann­rétt­indi fólks falla ekki úr gildi þótt það sé fullt á djamm­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ