Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Formaður meintra haturssamtaka svarar Önnu Kristjáns: „Ágreiningur er ekki hatur“

Formaður meintra haturssamtaka svarar Önnu Kristjáns: „Ágreiningur er ekki hatur“
Athugið, myndin er sam­sett.

Eldur Ísidór Deville er sár og vill fá að ræða við Önnu Krist­jáns­dóttur um mál­efni Samtaka 22 sem hann er í for­svari fyrir. Þetta kemur fram í opnu bréfi til hennar sem Eldur sendi á Mannlíf.

Í bréf­inu svarar Eldur meðal ann­ars þeim full­yrð­ingum Önnu að Samtökin 22 „virð­ast vera með það eitt á stefnu­skránni að vera hommar sem hat­ast út í trans­fólk,“ sem hún lét flakka í dag­bók­ar­færslu sinni á Facebook. Eldur, sem hót­aði Önnu í kjöl­farið mál­sókn, segir hins vegar að sam­tökin hafi „aldrei talað gegn trans­fólki“ en segir þau „and­víg trans­ferli barna“. Þá seg­ist hann vera til­bú­inn að ræða málin, vilji Anna það.

Hér er bréfið í heild sinni:

Opið bréf til Önnu Krist­jáns­dóttur:

Kæra Anna,

Ég var að fá veður af því að þú hafir skrifað langan pistil um mig og sam­tök sem ég teng­ist – Sam­tök­unum 22. Ég hef aldrei átt nein bein sam­skiptið við þig áður og það kom því veru­lega á óvart að þú ert með mig blokk­aðan á Facebook og þú hefur aldrei nokkurn tím­ann haft nein sam­skipti við Samtökin 22 til þess að spyrj­ast fyrir um eitt eða neitt.

Samtökin 22 voru stofnuð vegna afar djúp­stæðs hug­mynda­fræði­legs ágrein­ings, en ekki sem sam­tök sem vilja koma í veg fyrir að fólk búi við sömu mann­rétt­indi.

Ég hef tekið þátt í mann­rétt­inda­bar­áttu sam­kyn­hneigðra í ára­tugi og barist ötul­lega gegn stig­mat­ís­er­ingu af HIV smit­uðu fólki og afhjúpaði sögu mína og lík­ama minn fyrir framan alþjóð árið 2008 í móki af trauma og ótta.

Þess vegna finnst mér sárt og leið­in­legt að fólk sem er í eig­in­hags­muna­vörslu frama síns hjá „mann­rétt­inda­sam­tökum“ sem velta á annað hund­rað milljón króna á ári og fólki þeim tengdum leyf­ist að fara jafn hart gegn okkur og koma í veg fyrir að við getum átt eðli­legar umræður um ástandið.

Hvenær sam­þykktir þú, Anna, að börn yrðu mið­dep­ill „hinsegin aktí­visma“?

Hvenær sam­þykktir þú, Anna, að umdeildar kenn­ingar kynja­fræð­inga yrðu kenndar í nafni „hinsegin fólks“ í barna­skólum og að kyn mann­fólks væri jafn­mörg og við sjálf?

Hvar liggja eðli­leg og skyn­sam­leg mörk? Sið­ferð­is­leg mörk?

Samtökin 22 hafa ALDREI talað gegn trans­fólki. Full­orðið fólk má lifa sínu lífi eins og það kýs – án þess að ganga á rétt ann­ara!

Við erum and­víg trans­ferli barna – og við teljum það bæl­ing­ar­með­ferð við sam­kyn­hneigð, enda eru allar þær með­ferðir ógagn­reyndar! Það eru gagn­reyndar tölur að 75-90% barna sem upp­lifa kynama en fá að ganga í gegnum nátt­úru­legan kyn­þroska lækn­ist af kynama sínum. og koma síðar út sem sam­kyn­hneigðir full­orðnir ein­stak­lingar – oft á ein­hverfu rófi. (Sjá https://statsforgender.org/desistance/)

Ágrein­ingur er ekki hatur, fáfræði og for­dómar.

Hafandi sjálfur verið barn með kynama og verið fjarri því að sam­ræm­ast úreltum staðalí­myndum um kyn geri ég mér ein­fald­lega grein fyrir þeirri hættu sem steðjar að börnum, konum og sam­kyn­hneigðum sökum hug­mynda­fræði­legs ofstækis.

Um það snýst málið.

Ef þú vilt ræða málin, þá er ég alltaf til­bú­inn.

Þinn,

Eldur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð