Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Steinunn Árna spyr Katrínu Jakobsdóttur: „Hvenær var lögunum um lausagöngu graðhesta breytt?“

Steinunn Árna spyr Katrínu Jakobsdóttur: „Hvenær var lögunum um lausagöngu graðhesta breytt?“
Frá Lauga­bóli Mynd: Steinunn Árnadóttir

Steinunn Árna­dóttir sendi Katrínu Jak­obs­dóttur opið bréf í gær, í kjöl­far nið­ur­stöðu Mat­væla­stofn­unar, um að allt sé í lagi með aðstæður hesta á Lauga­bóli.

Sjá einnig: Segir ástand hrossa á Lauga­bóli enn slæmt: „Aðstæður í dag eru að öllu leyti óvið­un­andi“

Hesta­konan og org­el­leik­ar­inn Steinunn Árna­dóttir er búin að skrifa opið bréf til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, eftir að Mast komst að þeirri nið­ur­stöðu að allt væri í himna­lagi hjá hest­unum á Lauga­bóli í Arn­ar­firði. Fullyrti Steinunn í pósti sem hún sendi á fjöl­miðla og ráða­menn á dög­unum að ástandið á Lauga­bóli væri óásætt­an­legt:

Hrossin eru 24 þar af eitt nýka­stað fol­ald. Fyl­fullar merar eru 6-7, þar af sýn­ist mér eitt mer­tryppi sem er senni­lega 3ja vetra vera fyl­fullt. Það tryppi er grannt, van­sælt, var út úr hópnum og með rennsli úr nösum.

Tvær hryssur kasta mjög fljót­lega og hinar senni­lega í næsta mán­uði (nóv­em­ber !).

Grað­hestar eru a.m.k 3 og senni­lega eru hest­tryppin ógelt.

Eitt tryppið hefur slasast alvar­lega á hægri fram­fæti. Ljótt ör er eftir það slys.

Hest­arnir ráfa um allar næstu jarðir enda liggja girð­ingar að mestu á hlið­inni og lausir strengir eru um allt, gadda­vírs­strengir og þan­vír. 

Engin ummerki voru um vetr­ar­fóður fyrir þessi hross. Það ætti ekki að þurfa að taka fram hversu afskek

kt Laug­ar­ból er og hversu erfitt aðgengi er að þessum stað þegar færð fer að versna.

Mast sendi eft­ir­lits­að­ila á Laugaból sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að aðstæða hrossa þar væri við­un­andi. Þessu er Steinunn hissa á, líkt og sjá má í bréfi hennar til Katrínar. Þar spyr hún for­sæt­is­ráð­herr­ann hvenær lögum um lausa­göngu grað­hesta hafi verið breytt.

Í þriðja kafla í lögum um búfjár­hald segir um vörslu grað­hesta:

Grað­hestar eða laungraðir hestar, 10 mán­aða og eldri, allt árið. Vet­ur­gamlir folar skulu þó ætíð vera komnir í vörslu eigi síðar en 1. júní þó að þeir séu ekki orðnir fullra 10 mán­aða.

Sveit­ar­stjórn skal hlut­ast til um að grað­pen­ingur, sem ekki er í öruggri vörslu, sé hand­samaður og honum komið í örugga vörslu. Eigandi getur leyst til sín við­kom­andi grað­pen­ing gegn greiðslu áfall­ins kostn­aðar. Við ítrekuð brot skal grað­hestur seldur nauð­ung­ar­sölu sam­kvæmt lögum um nauð­ung­ar­sölu en felldur verði hann ekki seldur. Öðrum grað­pen­ingi skal slátrað og sölu- eða frá­lags­verð látið mæta áföllnum kostn­aði.

Bréf Stein­unnar má lesa í heild hér:

Ágæti for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir 

Eftir ábend­ingar mínar á aðstæðum hesta á Lauga­bóli í Arn­ar­firði er nið­ur­staða Mat­væla­stofn­un­ar­innar að allt sé í himna­lagi á þeim stað. (Ég verð reyndar að við­ur­kenna að óvenju fal­legt er þarna).

Mig lang­aði því að spyrja þig, ágæti for­sæt­is­ráð­herra, hvenær lög­unum um lausa­göngu grað­hesta var breytt?

Margir vinur mínir eru í basli með að geyma þessi grey (grað­hest­ana sína) og væri gott að geta látið þá vita að grað­hestar mega ganga lausir hvar sem er. 

Með kærri kveðju úr Borg­ar­nesi

Steinunn Árna­dóttir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ