Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Segir ástand hrossa á Laugabóli enn slæmt: „Aðstæður í dag eru að öllu leyti óviðunandi“

Segir ástand hrossa á Laugabóli enn slæmt: „Aðstæður í dag eru að öllu leyti óviðunandi“

Steinunn Árna­dóttir segir ástand hrossa á Lauga­bóli í Arn­ar­firði óbreytt frá því í maí á þessu ári, sem sagt slæmt.

Org­el­leik­ar­inn og hesta­konan Steinunn Árna­dóttir hefur verið afar ötul í bar­áttu sinni gegn illri með­ferð á dýrum, síð­ustu ár. Í dag sendi hún póst á fjöl­marga ein­stak­linga, bæði fjöl­miðla og ráða­menn lands­ins. Í póst­inum, sem hún sendi meðal ann­ars á mat­væla­ráð­herra, for­sæt­is­ráð­herra, yfir­dýra­lækni og for­stjóra Mat­væla­stofn­unar, rekur hún sögu hross­anna á Lauga­bóli frá því í des­em­ber 2022. Þá var hún beðin um að kíkja á aðstæður á bænum en hún komst ekki fyrr en í maí á þessu ári. „Strax var ljóst að aðgerða var þörf og kall­aði ég á lög­reglu til að losa hross sem var fast í girð­ingu og einnig kall­aði ég á vakt­haf­andi dýra­lækni til að sinna hesti sem gat hvorki gengið né staðið,“ skrifar Steinunn og bætir við að margir hestar hafi verið í slæmu ástandi. Meira hafi hún ekki geta gert, þar sem eig­andi hross­anna bað lög­regl­una að vísa henni af svæð­inu.

Hross á Lauga­bóli.

Samkvæmt bréfi Stein­unnar er sagan að end­ur­taka sig með hrossin. Tekur hún þó fram að nýjir eig­endur Lauga­bóls séu ekki ábyrgir fyrir slæmu ástandi hross­anna, því fyrrum eig­andi bæj­ar­ins, sé eig­andi hross­anna og beri því fulla ábyrgð. „Aðstæður í dag eru að öllu leyti óvið­un­andi,“ skrif­aði Steinunn og hélt áfram: „Hrossin eru 24 þar af eitt nýka­stað fol­ald. Fyl­fullar merar eru 6-7, þar af sýn­ist mér eitt mer­tryppi sem er senni­lega 3ja vetra vera fyl­fullt. Það tryppi er grannt, van­sælt, var út úr hópnum og með rennsli úr nösum.“ Að lokum spyr Steinunn nokk­urra spurn­inga, þar á meðal: „Er eðli­legt að merar séu að kasta fram á harða vetur, eft­ir­lits­lausar, án skjóls og fóð­urs?“

Hér fyrir neðan má lesa tölvu­póst­inn í heild sinni:

Mat­væla­ráð­herra, yfir­dýra­læknir, for­stjóri Mat­væla­stofn­un­ar­innar, for­sæt­is­ráð­herra, aðstoð­ar­maður mat­væla­ráð­herra, Inga Sæland eða ein­hver sem lætur sig dýra­vel­ferð varða.     

Ástand á hrossum sem eru á Laug­ar­bóli í Arn­ar­firði hefur ekki breyst.

Í des­em­ber 2022 og var ég beðin að athuga aðstæður á Laug­ar­bóli í Arn­ar­firði. Vitað var að 4 hryssur höfðu kastað á haust­mán­uðum 2022, frá októ­ber fram í nóv­em­ber. 

Ég hafði ekki tök á að mæta að Laug­ar­bóli fyrr en 6.maí 2023. 

Strax var ljóst að aðgerða var þörf og kall­aði ég á lög­reglu til að losa hross sem var fast í girð­ingu og einnig kall­aði ég á vakt­haf­andi dýra­lækni til að sinna hesti sem gat hvorki gengið né staðið. 

Margir hestar voru í slæmu ástandi. Meira gat ég ekki gert þar sem ég var beðin um að yfir­gefa svæðið af lög­regl­unni að beiðni eig­anda hross­anna.

Og sagan end­ur­tekur sig.

Hestar eru enn á Laug­ar­bóli.

Aðstæður í dag eru að öllu leyti óvið­un­andi.

Hrossin eru 24 þar af eitt nýka­stað fol­ald. Fyl­fullar merar eru 6-7, þar af sýn­ist mér eitt mer­tryppi sem er senni­lega 3ja vetra vera fyl­fullt. Það tryppi er grannt, van­sælt, var út úr hópnum og með rennsli úr nösum.

Tvær hryssur kasta mjög fljót­lega og hinar senni­lega í næsta mán­uði (nóv­em­ber !).

Grað­hestar eru a.m.k 3 og senni­lega eru hest­tryppin ógelt.

Eitt tryppið hefur slasast alvar­lega á hægri fram­fæti. Ljótt ör er eftir það slys.

Hest­arnir ráfa um allar næstu jarðir enda liggja girð­ingar að mestu á hlið­inni og lausir strengir eru um allt, gadda­vírs­strengir og þan­vír. 

Engin ummerki voru um vetr­ar­fóður fyrir þessi hross. Það ætti ekki að þurfa að taka fram hversu afskekkt Laug­ar­ból er og hversu erfitt aðgengi er að þessum stað þegar færð fer að versna.

Núver­andi eig­endur Laug­ar­bóls hafa ekk­ert með þetta að gera. Fyrrum eig­andi Laug­ar­bóls á þessi hross.

Þrátt fyrir alvar­legt til­felli síð­ast­liðið vor er varðar vel­ferð dýra á Laug­ar­bóli í Arn­ar­firði er staðan enn slæm. Því spyr ég:

Er eðli­legt að merar séu að kasta fram á harða vetur, eft­ir­lits­lausar, án skjóls og fóð­urs?

Eiga þessa merar eða mer­tryppi að berj­ast fyrir lífi sínu og fol­alda sinna næsta vetur eins og tíðkast hefur und­an­farin ár? 

Hversu slæmt þarf ástandið að vera svo ein­hver við­brögð verði af hálfu Mat­væla­stofn­un­ar­innar í þágu vel­ferð dýra?

Óska ég eftir að fá svar hvað verði gert í sam­bandi við þessi hross í landi Laug­ar­bóls í Arn­ar­firði. 

Steinunn Árna­dóttir

áhuga­kona um vel­ferð dýra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ