Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Telur Perry hafa fallið skömmu fyrir andlátið: „Nei, ég er Mattman!“

Telur Perry hafa fallið skömmu fyrir andlátið: „Nei, ég er Mattman!“
Matthew Perry Mynd: Steven Ferdman / Paul Bruinooge/Patrick McMullan

Fyrr­ver­andi kærasta Matthew Perry seg­ist gruna að Friends-stjarnan hafi fíkni­efna­bakslag fyrir dauða sinn.

Matthew Perry, lést á dög­unum eins og allir vita, en hann drukkn­aði í heita potti sínum á heim­ili sínu í Los Angeles. Hinn 54 ára leik­ari opn­aði sig í fyrra um fíkni­efna­vanda sinni en hann hafði í fjöldi ára glímt við fíkn í lækna­skyld lyf og áfengi. Hann hafði svo verið edrú í heil 17 ár og nýtt tíma sinn í að hjálpa öðrum að hætta í eit­ur­lyfjum. Kayti Edwards, fyrr­ver­andi kærasta Perry, grunar að hann hefði fallið skömmu fyrir and­látið. Aðeins sól­ar­hringi fyrir and­látið var Perr ljós­mynd­aður á stefnu­móti með 25 ára fyr­ir­sætu, Athenna Crospy en virt­ust þau afar ham­ingju­söm, þar sem þau eyddu tíma á Bel-Air hót­el­inu í Los Angeles.

Snerti ekki vínseðilinn

Athenna opn­aði sig um tíma þeirra saman og sagði að Matthew hefði „neitað að snerta vín­seð­il­inn,“ því hann vildi vera edrú. Hún sagði leik­ar­ann hafa verið mjög stoltan yfir þeim árangri sem hann hefði náð og var stað­ráð­inn í að halda sér edrú og hafði engan „áhuga á að byrja aftur í dópi og áfengi.“

Komið hefur fram að engin fíkni­efni hafi sést á vett­vangi og að ekki benti neitt til þess að and­látið hafi borið með sak­næmum hætti. Lög­reglan seg­ist hafa fundið þung­lynd­is­lyf, kvíða­lyf og ast­ma­tengd lyf í hús­inu. Þá hefur verið gefið út að í fyrstu eit­ur­efna­fræði­legu prófun­inni hafi ekki fund­ist leyfar af fent­anyl-lyfjum eða metam­fetamín, í blóði Perry við and­látið. Þess vegna sé ástæða and­láts­ins enn á huldu.

Kayti, sem Matthew átti í ást­ar­sam­bandi með árið 2006 og vann sem aðstoða­kona hans árið 2011, hefur nú stigið fram og sagt að Matthew hafi skilið eftir vís­bend­ingar um að hann hefði fallið.

Mattman

Sagði hún við The Sun að ýmis­legt sé skrítið við málið. „Það er margt sem passar bara ekki, fyrir mér. Ég trúi ekki að hann hafi bara drukknað í nudd­potti, það hljómar bara ekki rétt.“ Hún hélt áfram: „Ég þekki Matthew og ég veit að hann myndi ekki bara drukkna. Ég held að hann hafi verið að taka pillur í vik­unni sem leiddi til þess. Þeir sögðu að það hefðu ekki verið nein lyf­seð­ils­skyld verkja­lyf á vett­vangi, sem kemur mér ekki á óvart, því hann myndi ekki skilja svo­leiðis eftir á glám­bekk.“ Og enn hélt hún áfram: „Hann var með ofsóknaræði og myndi taka þær allar, svo það væru engar sann­anir, og svo fara út til að kaupa meira, þegar hann var til­bú­inn.“ Þá tjáði hún sig einnig um hinar skrítnu Mattman færslur en dag­ana á undan and­látið birti hann nokkrar furðu­legar færslu á Instagram þar sem honum var tíð­rætt um að hann væri Mattman. „Mattman dæmið var eitt­hvað sem hann gerði ekki þegar hann var edrú. Mattman kom út þegar hann var ekki edrú og honum fannst hann vera ósigr­andi. Ég var með honum þegar hann var að fá sér skammt, þó ég hafi ekki fengið mér með honum, og þegar ég sagði honum að hann ætti kannski að róa sig svolitið á dóp­inu, þá sagði hann: „Nei, ég er Mattman!“.“

Þráhyggja fyrir vatni

Kayti sagði enn­fremur að Perry hafi verið með „þrá­hyggju fyrir vatni“, þegar hann var skakkur. „Í eitt skipti fann nágranni hans í Hollywood-hæðum, Matthew nak­inn og skakk­ann í sund­laug sinni. Ég varð að fara þangað og koma honum úr sund­laug nágranna síns. Hann var óður í vatn þegar hann var að taka fíkni­efni. Hann vildi alltaf verið í sund­laug eða í nudd­pott­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar