Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynna nýtt kerfi fyrir Grindvíkinga án leiðbeininga

Kynna nýtt kerfi fyrir Grindvíkinga án leiðbeininga
Bíll Þor­bjarnar

Björg­un­ar­sveitin Þorbjörn til­kynnti það á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi að nýtt kerfi skildi tekið upp fyrir Grind­vík­inga sem þurfa að kom­ast inn á heim­ili sín. Þrátt fyrir til­kynn­ing­una kemur þó hvergi fram hvernig nýja kerfið gangi fyrir sig og því óljóst hvernig fram­haldið lítur út en í færsl­unni segir:

„Kæru Grind­vík­ingar,

Þetta eru gríð­ar­lega erf­iðar aðstæður sem við stöndum frammi fyrir þessa dag­ana. Við vildum óska þess að við hefðum eitt­hvað um skipu­lagið að segja en það er ekki staðan. Við erum sann­færð um að allir séu að gera sitt besta með öryggi bæj­ar­búa að leið­ar­ljósi.

Því miður er stærsti hluti bæj­ar­ins á hættu­svæði sem gjarnan er nefnt rauða svæðið. Þetta svæði þykir mjög hættu­legt því það eru líkur á að eld­gos geti brot­ist út með litlum fyr­ir­vara. Þess vegna geta aðeins fáir verið á svæð­inu í einu svo hægt sé að tæma það með stuttum fyr­ir­vara. Þetta hefur orðið til þess að það tekur mjög langan tíma að koma öllum heim til sín.

Síðustu daga hefur gengið vel að koma fólki inn á svæðið og heldur sú vinna áfram næstu daga.

Það hryggir okkur mjög að enn sé fólk sem ekki hefur kom­ist til síns heima síðan á föstu­dag og höfum við leitað allra mögu­legra leiða til þess að leysa úr því. Á morgun munu Almanna­varnir setja af stað nýtt kerfi til þess að halda utan um þessar beiðnir svo hægt sé að ná betur til þessa hóps.

Eins og áður segir er þetta skipu­lag ekki í okkar höndum en við leggjum mikla áherslu á að þetta verk­efni klárist sem fyrst.

Okkar fólk hefur verið við störf í Grinda­vík myrkr­anna á milli frá því bær­inn okkar var rýmdur fyrir viku síðan. Verk­efnin hafa verið gríð­ar­lega mörg en aðal­mark­mið okkar hefur verið að halda götum bæj­ar­ins opnum ásamt því að sinna hinum ýmsu verk­efnum sem okkur hafa verið sett fyrir. Þannig hefur björg­un­ar­sveitin Þorbjörn aðstoðað HS Veitur við að koma á raf­magni og vinna í heita­vatns­lögnum, aðstoðað bæj­ar­búa við að sækja lyf ásamt því að slá inn raf­magns­lausum húsum. Við höfum einnig bjargað fjöl­mörgum köttum og komið þeim til sinna eig­enda. Þá höfum við einnig starfað við vega­gerð með því að kort­leggja allar sprungur og merkja þær. Við brú­uðum líka nokkrar sprungur en fengum svo Vega­gerð­ina með okkur í lið að fylla í sprungur svo hægt sé að aka yfir þær. Með þessu náum við að flýta ferðum bæj­ar­búa um bæinn ásamt því að auka öryggi þeirra sem þar starfa með því að stytta flótta­leiðir.

Grinda­vík stendur enn og við ætlum heim aftur! Þó svo að mikið tjón sé í bænum er ljóst að mik­ill meiri­hluti húsa er alveg óskemmdur. Þá er raf­magn á lang­flestum húsum ásamt hita­veitu þrátt fyrir mikið land­sig. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma bænum okkar í fyrra horf!

Grind­vík­ingar Gefast Ekki Upp 💛💙

Bar­áttu­kveðjur

Björg­un­ar­sveitin Þorbjörn“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ