Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Þegar lömbin þögnuðu í Hrunamannahreppi: „Ég hef tæplega séð lömb eins illa útleikin eftir hunda“

Þegar lömbin þögnuðu í Hrunamannahreppi: „Ég hef tæplega séð lömb eins illa útleikin eftir hunda“
Myndin teng­ist bak­sýn­is­spegl­inum ekki beint Mynd: Trausti Hafsteinsson

Þann þriðja júlí árið 1991 urðu bændur í Hruna­manna­hreppi varir við dauð lömb af nokkrum bæjum sveit­ar­innar. Sífelt fleiri lömb fund­ust afar illa útleikin og þegar blóð­bað­inu lauk, lágu 34 lömb í valnum og tíu voru særð.

Söku­dólgarnir voru fjár­hundar af svoköll­uðu Skota­blend­ingskyni en tveir voru drepnir á staðnum, eftir að upp um málið komst en þann 11. júlí, er DV skrif­aði um drápin, var verið að leita að þeim þriðja. Féð hafði verið á sam­eig­in­legu en nokkuð litlu og afmörk­uðu beiti­landi bænda í hreppnum en talið var að lóðarí hefði ollið þess­ari hegðun hund­anna.

Hér má lesa frétt DV um málið en hún var skrifuð 11. júlí 1991:

Fjár­hundar í Hruna­manna­hreppi lim­lesta og tæta fé:



Hund­arnir drápu 34 lömb og særðu tíu

34 lömb hafa fund­ist lim­lest og tætt á bæj­unum Skip­holti I og III og að Kot­laugum í Hruna­manna­hreppi í síð­ustu viku. 10 lömb til við­bótar, frá bæj­unum Skolla­gróf og Hauk­holtum, hafa fund­ist slösuð. Ekki er þó víst að öll þau lömb lifi. Ljóst er að hundar í sveit­inni eru söku­dólgarnir. Tveir hundar hafa þegar verið drepnir en talið er að fleiri hundar hafi átt í hlut og er þeirra leitað. Hér var um að ræða svo­kall­aða Skota­blend­inga. Féð var á sam­eig­in­legu en þó til­tölu­lega litlu og afmörk­uðu beit­ar­landi bænda í hreppnum. Talsvert af fé á land­inu er und­an­flæmt og einnig vantar lömb undir margar ær sem eng­inn veit um. „Lömbin voru mjög illa bitin. Ég hef tæp­lega séð lömb eins illa útleikin eftir hunda. Auk þess er þetta óvenju­mikið,“ sagði Loftur Þor­steins­son, bóndi og odd­viti í Hauk­holtum, í sam­tali við DV. Hund­arnir virt­ust hafa verið komnir upp á gott lag með að drepa. Þegar sást til hund­anna virt­ust þeir vera tveir um hvert lamb. Annar beit í háls­inn á lamb­inu en hinn í lærin. Við urðum fyrst varir við að hundar voru að tæta fé á mið­viku­dags­kvöldið 3. júlí. Eftir það fannst mikið af dauðum og særðum lömbum. Þetta er orðið til­finn­an­legt tjón. Það er búið að drepa tvo hunda sem voru staðnir að verki en þó er greini­legt að fleiri voru valdir að þessu. Við höfum verið að lýsa eftir öðrum hundi,“ sagði Loftur. Hann segir að bændur í sveit­inni telji senni­legt að skýr­ingin á þessu upp­á­tæki hund­anna sé að þeir hafi verið á lóðaríi: „Það er ekk­ert óal­gengt að hundar, sem safn­ast utan um tík, æsi hver annan upp. Þannig geta mein­lausir hundar heima fyrir orðið valdir að svona lög­uðu þegar þeir kom­ast í hóp,“ sagði Loftur. Lýsingin á hinum eft­ir­lýsta hundi er eft­ir­far­andi: Svartur, þó ekki tinnu­svartur, frekar stór og þykkur með hvítt ílangt lauf á nefi, nokkuð loð­inn og örlítið sneppl­óttur aftan til á síðum og lærum, það er ekki alveg geng­inn úr hárum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ