Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Skrúfaður tappi eða korkur?

Skrúfaður tappi eða korkur?
Mynd úr mynda­banka. Mynd: Evgeny Karandaev

Stefán Guð­jóns­son, fram­reiðslu­meist­ari og vín­þjónn er með 40 ára reynslu í veit­inga­húsum og vel þekktur fyrir vín­þekk­ingu sína á Íslandi og hefur meðal ann­ars skrifað um vín í blöðum og á vefnum. Stefán deilir með les­endum ýmis konar fræðslu og vit­neskju um vín og menn­ingu því tengdu í greinum Víns og matar.

Er skrúf­aður tappi ein­kenn­andi fyrir ódýr vín?

Hvað vín áhrærir getur áhuga­fólk um vín verið frekar íhalds­samt. Gott dæmi um slíkt er ef tapp­inn er skrúf­aður á vín­flösk­una; þegar spurt er hvernig vín á slíkri flösku sé, heyri ég nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust að um sé að ræða ódýrt vín sem best sé að drekka sem fyrst. Þetta er hvort tveggja rétt og rangt, en þó vita fæstir hvers vegna skrúftapp­inn hefur rutt sér til rúms og nýtur vin­sælda nú til dags. Fyrir um 25 árum hvarfl­aði ekki að nokkrum vín­fram­leið­anda að nota skrúf­aða tappa á létt­víns­flöskur.

Af hverju hófst sú þróun?

Eflaust hafa flestir lent í því að kaupa létt­vín sem síðan reynd­ist ónýtt; þegar flaskan var opnuð mætti kaup­and­anum myglu- og fúkka­lykt og -bragð. Þegar svo bar undir var talað um „korkað“ vín enda má rekja fram­an­nefnd atriði til kork­tappans.
Vanda­málið er alls ekki nýtt af nál­inni og hefur fylgt létt­víni allar götur síðan byrjað var að nota kork­tappa. Í mörg hund­ruð ár sætti fólk sig við þetta, því korkur var talin besta leiðin til að loka vín­flöskum. Þannig gat vínið andað og þroskast í gegnum árin og ein og ein skemmd flaska var sam­þykkt sem fórn­ar­kostn­aður.

En um það leyti sem 9. ára­tugur síð­ustu aldar gekk í garð varð þetta fúkka-ástand æ meira áber­andi. Baktería sem nefn­ist TCA (trichloroanisole) leynd­ist í kork­inum og fannst í sífellt fleiri vín­teg­undum. Svo rammt kvað að þessu að talið var að allt að 10% víns í flöskum með kork­tappa væru skemmd vegna TCA.
Vín­fram­leið­endur voru áhyggju­fullir og höfðu án efa ástæðu til, því hætt var við að sá sem kaupir einu sinni skemmt vín snúi baki við þeirri teg­und og jafn­vel fram­leið­and­anum líka, þrátt fyrir að ekki væri hægt að skella skuld­inni á hann.
Ef tap varð á rekstri vín­fram­leið­anda og vin­sældir fram­leiðslu hans fóru dvín­andi fór hann eðli­lega að leita að lausn þar á og þá ekki síst hvað tapp­ann varð­aði. Ýmislegt var reynt og er enn þann dag í dag og hafði sína kosti og galla. Á tíma­bili not­uðu banda­rískir vín­fram­leið­endur til dæmis „plast­kork“-tappa og einnig einn stærsti vín­fram­leið­and­inn á Ítalíu. Slíkir tappar reynd­ust of þéttir og gerðu að verkum að oft var erfitt að opna vín­flösk­urnar án þess hrein­lega að eiga á hættu að flaskan skemmd­ist, eða jafn­vel tappa­tog­ar­inn. Fyrir kom að fólk hrein­lega slas­að­ist við aðfar­irnar.
Gler­tappar reynd­ust að mörgu leyti vel, en þeir eru dýrir í fram­leiðslu og komið gat fyrir að gler­flís færi í vínið sjálft ef flaskan var ekki opnuð á réttan hátt. Skrúf­aður tappi virt­ist í raun vera skásti kost­ur­inn, hvernig sem á það var litið; ódýr í fram­leiðslu, auð­velt að opna flösk­una og hægur vandi að loka flösk­unni aftur og geyma vínið án þess að það skemmd­ist.

Er skrúf­aður tappi not­aður þegar um „betri“ vín er að ræða?

Sífellt fleiri vín­fram­leið­endur nota nú skrúf­aða tappa fyrir betri vínin sín. Af hverju skyldi það vera? Vegna þess að rann­sóknir hafa leitt í ljós að vín í flöskum með skrúf­uðum tappa, sem geymt hefur verið í lengri tíma, helst ferskara og skemmist tals­vert minna en vín í flösku með kork­tappa, þrátt fyrir að skrúf­aður tappi hleypi tölu­vert minna lofti í gegn og valdi því að vín þrosk­ist hægar. Vínið þroskast engu að síður.
Rannsókn sem snertir nokkra vín­fram­leið­endur leiddi í ljós að allt að 20 ára gam­alt vín sem hafði verið geymt í flöskum með skrúf­uðum tappa, var rík­ara að gæðum en sams konar vína í flöskum með kork­tappa.

Af hverju er þá ekki allt dýra vínið í flöskum með skrúf­uðum tappa?

Svarið við þeirri spurn­ingu er ein­falt; vín­safn­arar og vín­fram­leið­endur eru íhalds­samir. Margir eru ekki reiðu­búnir til að við­ur­kenna að gamla leiðin sé ekki endi­lega sú besta og vilja ekki sjá neinar breyt­ingar; þetta á ein­fald­lega að vera eins og það hefur álltaf verið.
En nýjum kyn­slóðum fylgir nýr hugs­un­ar­háttur og nú má finna æ fleiri með­al­dýr vín í flöskum með skrúf­uðum tappa.

Ég er í hópi þeirra sem telja að nota eigi skrúf­aða tappa á allar vín­flöskur og sú skoðun mín sann­aði sig um dag­inn. Þegar ég fagn­aði afmæli mínu bauð ég meðal ann­ars upp á vín sem ég hafði geymt í 20 ár, í flösku með kork­tappa … og viti menn, vínið var korkað! Þá hefði ég frekar viljað að vín­flösk­urnar væru með skrúf­uðum tappa og í góðu lagi, en með kork­tappa og ódrekk­andi! En þetta er áhætta sem tekin er þegar keypt er vín í flösku með kork­tappa.


Hægt er að hafa sam­band við Stefán á net­fang­inu [email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni