Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Guðni forseti skemmti sér með Vestfirðingum: „Maður gerir ekki rassgat einn“

Guðni forseti skemmti sér með Vestfirðingum: „Maður gerir ekki rassgat einn“
Guðni tók sund­sprett með sjó­sunds­fé­lagi Ísa­fjarðar – Mynd: Forsetaembættið

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, skellti sér í páska­vik­unni til Vest­fjarða þar sem hann skoð­aði hitt og þetta og hitti margt fólk. Skellti hann sér meðal ann­ars á tón­leika, ljós­mynda­sýn­ingu og páska­lista­sýn­ingu leik­skóla­barna en hann skrifar færslu um för sína á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook.

„Syngjum lag, spilum spil, þá er gott að vera til. Þannig syngur Vest­firð­ing­ur­inn Mugison og síð­ustu daga var svo sann­ar­lega gott að vera þar vestra. Á Ísafirði sótti ég 20 ára afmæli tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Aldrei fór ég suður og í stuttu opn­unará­varpi þakk­aði ég þeim fjölda heima­fólks sem kemur að þessum magn­aða við­burði ár eftir ár. Ein­kunn­ar­orð hátíð­ar­innar eru mörgum kunn og engin ósann­indi sem þar koma fram: Maður gerir ekk­ert einn (hvernig sem það er svo orðað nákvæm­lega). Aldrei fór ég suður er fyr­ir­taks dæmi um þann sam­taka­mátt sem getur látið góða hluti ger­ast í smáu en knáu sam­fé­lagi – eins og Íslandi í heild eða byggð­ar­lögum um land allt. Ekki verður þó fram­hjá því litið að sífellt snún­ara er að standa að bæj­ar­há­tíðum. Erfitt reyn­ist að fá fjölda manns til að gefa vinnu sína og tíma og reglu­verk getur verið flókið. Því magn­aðri er þessi frá­bæra hátíð. Takk fyrir mig og gangi ykkur áfram vel!“ skrif­aði for­set­inn í byrjun færslu sinnar um heim­sókn­ina.

„Ferðina nýtti ég til frek­ari erinda­gjörða. Á skír­dag hlotn­að­ist mér sá heiður að opna páska­list­sýn­ingu leik­skóla­barna í Ísa­fjarð­arbæ og síðan flutti ég erindi á aðal­fundi Sögu­fé­lags Ísfirð­inga um Vest­firð­inga og útfærslu fisk­veiði­lög­sög­unnar á síð­ustu öld. Fróðlegt var að spjalla við gesti um þennan merka þátt þjóð­ar­sög­unnar. Að kvöldi skemmti ég mér svo með heima­fólki á tón­leikum þar sem leikin voru rokklög frá níunda ára­tugnum með miklu fjöri og glæsi­brag,“ og var Guðni rétt byrj­aður að hitta allt það fólk sem hann átti eftir að hitta.

„Að morgni föstu­dags­ins langa fékk ég mér sund­sprett út af Neðsta­kaup­stað með hópi vest­firskra sjó­sund­s­kappa. Kannski má kalla það písl­ar­sund. Síðan lá leiðin í Tungudal á Skíða­viku, eina elstu bæj­ar­há­tíð lands­ins, sem Skíða­fé­lag Ísa­fjarðar stendur að. Í ár fagnar félagið 90 ára afmæli og ræddi ég um hag félags­ins við for­mann­inn, Elenu Dís Við­ars­dóttur.“

Guðni með Elenu Dís Víð­is­dóttur, for­manni Skíða­fé­lags Ísfirð­inga, og gestum Skíða­vik­unnar á furðu­fata­degi í Tungudal –

„Fyrr um dag­inn opn­aði ég ljós­mynda­sýn­ing­una „Maður gerir ekki rass­gat einn“. Þar getur að líta myndir af fram­lagi sjálf­boða­liða við Aldrei fór ég suður í áranna rás. Sýningin er við Byggða­safn Vest­fjarða í Neðsta­kaup­stað og verður opin fram á sumar. Þá sótti ég opnun mynd­list­ar­sýn­ing­ar­innar Haminn neisti í Lista­safni Ísa­fjarðar í Safna­hús­inu. Þar sýnir Ragn­hildur Weisshappel verk úr syk­ur­molum og gifsi. Einnig leit ég við í Tón­list­ar­skóla Ísa­fjarðar og kynnti mér sögu hans og þá öfl­ugu starf­semi sem þar fer fram undir for­ystu Bergþórs Páls­sonar skóla­stjóra. Þá rak ég inn nefið í bæki­stöðvum Kerecis, þess öfl­uga nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækis. Og síðan tók tón­listin við, Aldrei fór ég suður í öllu sínu veldi.“

„Þennan dag hélt ég líka í Hnífsdal og kynnti mér hin ein­stöku skipa­líkön sem Ingvar Frið­björn Sveins­son vinnur að þar. Hann færði mér dýr­mæta gjöf, sext­ant sem var um skeið um borð í vita­skip­inu Hermóði. Þar var afi minn skip­stjóri um ára­bil. Bestu þakkir, Ingi Bjössi!“ en Mannlíf ræddi við Ingvar fyrir stuttu um skipa­lík­önin.

„Laug­ar­dag­ur­inn var tek­inn snemma. Í kaf­alds­byl var hlaupið frá Bol­ung­ar­vík að Ósi og til baka með görp­unum í Riddurum Rósu, þeim flotta hlaupa­hópi. Eftir hádegi tók ég svo þátt í pönk­göngu sem boðað var til í tengslum við Aldrei fór ég suður. Sigurjón Kjart­ans­son fjöl­lista­maður, sem ólst upp á Ísafirði og var með fyrstu pönk­urum bæj­ar­ins, leiddi göngu­fólk um slóðir pönks­ins þar og var gerður góður rómur að máli hans,“ hélt sagn­fræð­ing­ur­inn snjalli áfram í færsl­unni

„Loka­liður Vest­fjarða­far­ar­innar var vel við­eig­andi. Þennan laug­ar­dag var Jón Páll Hall­dórs­son útnefndur heið­urs­borg­ari Ísa­fjarð­ar­bæjar. Hann var lengi fram­kvæmda­stjóri Norð­ur­tang­ans en hefur síðan skrifað fjölda rita um þætti í sögu Ísa­fjarðar, Vest­fjarða og íslensks sjáv­ar­út­vegs. Ég heim­sótti Jón Pál og þakk­aði honum hans mik­il­verða fram­lag í þágu sögu og sam­fé­lags.

Á ferðum okkar vestur höfum við Eliza ætíð notið gest­risni og góð­vildar heima­fólks. Ég not­aði tæki­færið nú við lok minnar for­seta­tíðar og þakk­aði enn á ný þær góðu við­tökur. Vest­firð­ingar eru höfð­ingjar heim að sækja,“ skrif­aði Guðni að lokum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð