Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gerir leikna heimildarmynd um íslenskar kaffihúsakonur: „Þar sem frásagnarmátinn er töfraraunsæi“

Gerir leikna heimildarmynd um íslenskar kaffihúsakonur: „Þar sem frásagnarmátinn er töfraraunsæi“
Úr leiknu heim­ild­ar­mynd­inni Draumar, Konur og Brauð

Leikna heim­ild­ar­myndin Draumar, Konur og Brauð eftir Sigrúnu Völu Val­geirs­dóttur og Svan­laugu Jóhanns­dóttur verður frum­sýnd í Bíó Paradís þann 20. apríl næst­kom­andi.

Draumar, Konur og Brauð er leikin heim­ild­ar­mynd þar sem farið er á töfr­andi hring­ferð um Ísland þar sem áhorf­endur kynn­ast harð­dug­legum konum sem reka ein­stök kaffi­hús með ómót­stæði­legum veit­ingum. Þar er einnig söng­kona sem er í óða­önn að skrifa leik­rit og sam­ferða­kona hennar.

Mannlíf ræddi við annan leik­stjóra mynd­ar­innar, Sigrúni Völu Val­geirs­dóttur, um gerð mynd­ar­innar. „Þetta er svona blandað format,“ segir Sigrún um heim­ild­ar­mynd­ina og heldur áfram: „Þetta er svona hybrid, heim­ild­ar­mynd og svo einnig skrif­aður sögu­þráður, mjög sér­stök mynd. Þetta er leikin heim­ild­ar­mynd þar sem frá­sagn­ar­mát­inn er töfraraun­sæi.“

En um hvað er myndin?

Sigrún Vala: „Þetta er um tvær ólíkar konur sem fara saman í ferða­lag. Þær hitt­ast fyrir til­viljun á kaffi­húsi. En í grunn­inn er myndin um konur sem reka kaffi­hús á lands­byggð­inni, fimm kaffi­húsa­konur en upp­haf­lega hug­myndin kom hjá mér vegna þess að ég fór að vinna á kaffi­húsi þegar ég kom úr námi í heim­ild­ar­mynda­gerð í Prag, á meðan ég var að finna út hvað ég vildi gera næst. Þá átt­aði ég mig á því hvað það er ofboðs­lega mikil vinna sem þær leggja á sig en þetta er svo mikið fram­lag sem þær gefa til bæði síns nær­sam­fé­lags því þetta er svo mik­ill sam­komu­staður sam­fé­lags­ins og þjón­usta við fólkið á ýmsa vegu og svo líka til ferða­þjón­ust­unnar í heild, því það er ekk­ert smá sem þær gera með sleif­ina í annarri og bakk­ann í hinni og eru þá að segja frá landi og þjóð, nærum­hverfi og svo fram vegis og svo fram­vegis. Og þetta eru kannski þeir staðir sem fólk man eftir þegar það kemur heim. Eins og þegar við erum að ferð­ast og hittum lókal fólk. Mér fannst þetta allt í einu svo verð­mætt en ég er sagn­fræð­ingur í grunn­inn og þetta er nátt­úru­lega kvenna­saga sem lítið hefur verið skrifað um eins og allir vita. En þetta er líka sú menn­ing sem ég er alin upp við. Þannig að mig lang­aði að skila þessu ein­hvern veg­inn út í sam­fé­lagið og passa að þetta væri skráð.“

En myndin er um miklu fleira líka.

Sigrún Vala: „Þetta er líka um drauma og dagdrauma þess­ara kvenna. Og það er til dæmis eitt rann­sókn­ar­efni sem ekki hefur verið mikið skoðað. En við sem sagt gerum þessu skil en förum ekki mikið á dýpt­ina en þetta átti líka að vera mynd sem væri skemmti­leg. Ég held að okkur hafi alveg tek­ist það. Þetta var svona til­raun til þess að gera skemmti­lega heim­ild­ar­mynd, sem væri samt eins og bíó­mynd.“

Aðspurð um töku­staði mynd­ar­innar sagði Sigrún Vala að farin hafi verið hring­ferð um landið í tveimur áföngum en síð­ustu atriðin voru tekin upp í jan­úar og er nú verið að leggja loka­hönd á mynd­ina. „Við vorum með crew að hluta til frá Egypta­landi en ég lærði í Prag og kynnt­ist þar egyp­skri stelpu sem er rosa­lega brillj­ant og flott ung kona og mig lang­aði svo að hafa konu á vél­inni en svo var líka mjög flottur maður, Jón Már Gunn­ars­son sem tók við af henni.“

Sigrún Vala seg­ist not­ast við brellur í heim­ild­ar­mynd­inni og að þar sé einnig mikið um söng. Segir hún að sú sem skrifi hand­ritið og leik­stýri með henni mynd­inni, Svanlaug Jóns­dóttir, sé söng­kona. „Hún er söng­kona og hefur samið leik­rit. Við leikum allar sjálfar í mynd­inni en við ýkjum per­són­urnar þannig að við sækjum svo­lítið í reynslu okkar úr áhuga­leik­húsum og þorra­blótum, það er svo mik­ill húmor. Við erum svona nett að gera grín að okkur sjálfum í leið­inni.“

Draumar, Konur og Brauð verður frum­sýnd í Bíó Paradís 20. apríl næst­kom­andi klukkan 15:00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar