Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bjarni Benediktsson um glimmer atvikið: „Frekja og yfirgangur“

Bjarni Benediktsson um glimmer atvikið: „Frekja og yfirgangur“
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: RÚV-skjáskot

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir margt hafa verið rangt við það þegar hent var yfir hann glimmeri fyrr á árinu. Bjarni, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist treysta lög­regl­unni þegar kemur að því að ákveða hvort hann þurfi líf­verði:

„Ég hef hef haft gæslu frá lög­regl­unni sem þeir meta frá einum tíma til ann­ars. Ég hef aldrei komið að því mati með neinum hætti og treysti þeim bara fyrir því. Þegar lög­reglan segir að það eigi að hafa fylgd með mér, þá segi ég bara gott og vel, en í dag er ég ekki með neina fylgd. Ég er hvorki að biðja um þetta né hafna þessu, en mér finnst ömur­legt þegar stjórn­mála­menn fara að gera póli­tískar útlegg­ingar á þessu. Við eigum ekki að gera lítið úr mati lög­regl­unnar á því að gæta að öryggi æðstu emb­ætt­is­manna rík­is­ins eða þeim sem eru í stjórn­málum,“ segir Bjarni og heldur áfram um glimmer-atvikið:

„Það var mjög margt sem var ekki í lagi við þetta atvik. Í fyrsta lagi er það ekki í lagi að það sé verið að veit­ast að fólki. Í öðru lagi er það óásætt­an­legt að það sé verið að stöðva umræðu um alþjóða­mál. Eini til­gang­ur­inn var að vekja athygli á mál­stað mót­mæl­enda með frekju og yfir­gangi og þess vegna var það mjög skrýtið að Rík­is­út­varpið hafi gert það að fyrstu frétt að fá mót­mæl­and­ann í við­tal. Skila­boðin eru þá að það sé hvati að gera hluti af þessu tagi og þannig náir þú þínu fram.“

Það vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar Bjarni tjáði sig á sam­fé­lags­miðlum um tjald­búðir á Aust­ur­velli. Hann seg­ist ekki hafa borið það undir neinn áður en hann skrif­aði færsl­una, heldur hafi honum ein­fald­lega fund­ist að ein­hver yrði að tjá sig um stöð­una:

„Ég var bara hissa á því að eng­inn væri búinn að tjá sig um þetta. Þetta olli miklu fjaðrafoki, en mér fannst bara aug­ljóst að þetta gæti ekki gengið til lengdar. Þetta var algjör­lega óeðli­legt ástand í alla staði og það var með öllu óskilj­an­legt að Reykja­vik­ur­borg ætl­aði að fram­lengja það ástand. Mér er fyr­ir­munað að skilja það,“ segir Bjarni, sem neitar því að hann hafi borið þetta undir ráð­gjafa áður þegar Sölvi spyr hann að því:

„Það er nákvæm­lega það sem ég gerði, að setj­ast niður við lykla­borðið og skrifa þessa færslu þegar ég var kom­inn heim til mín. Þegar ég var búinn að setja þetta út vakti ég athygli aðstoð­ar­manna minna á því að þessi færsla væri komin í loftið. Ég er kos­inn á Alþingi og þarf ekki að biðja um leyfi frá ráð­gjöfum til þess að tjá mig. En auð­vitað ber ég margt undir aðstoð­ar­menn mína og þigg ráð­gjöf frá þeim. En í þessu til­viki bar ég þetta ekki undir neinn.“

Í þætt­inum ræðir Bjarni líka um kristna trú og þau gildi sem hafa mótað íslenskt sam­fé­lag:

„Við þurfum að passa upp á okkar menn­ing­ar­verð­mæti sem þjóð. Það er virði í því að vera íslensk þjóð og við viljum ekki drekkja menn­ingu okkar og arf­leið í inn­flutn­ingi fólks sem á skömmum tíma verða fjöl­menn­ari en þeir sem byggja landið í dag. Það er ekk­ert vit í því. Við þurfum að gæta mjög að okkur til að þau gildi sem skil­greina okkur sem Íslend­inga verði ekki undir. Ég er ekki að leggja til stöðugan lestur bibl­í­unar, en við erum með kross­inn í fán­anum okkar og það er ekki til­viljun. Skoðaðu kristin sam­fé­lög í heim­inum og skoð­aðu mann­rétt­indi á sama tíma. Hvar eru mann­rétt­indi best varin? Hvar er frelsi ein­stak­lings­ins best varið? Hvar er virkt lýð­ræði fram­kvæmt? Það er ein­kenn­andi fyrir norð­ur­löndin til dæmis, sem öll eru með kross í þjóð­fán­anum að þar er lýð­ræði virkast, jafn­rétti kynj­anna mest og mann­rétt­indi í fremstu röð. Þetta er ekki til­viljun og eitt­hvað sem ger­ist á einni nóttu. Við eigum ekki að ímynda okkur að svona verði þetta alltaf ef við gætum ekki að okkur og bjóðum heim sof­anda­hætti.“

Bjarni ræðir í þætt­inum um stöðu fjöl­miðla á Íslandi og stöðu RÚV í því sam­hengi:

„Ég er þeirrar skoð­unar að fyr­ir­ferð Rík­is­út­varps­ins sé of mikil og skuggi Rík­is­ú­varps­ins sé mjög langur og í honum þrí­fist fáir fjöl­miðlar. Ég hef áhyggjur af rekstr­ar­skil­yrðum fjöl­miðla í land­inu og þess vegna finnst mér aug­ljós­ast að við ættum að taka Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði. Það þarf að skapa heil­brigð­ari skil­yrði fyrir frjálsa fjöl­miðlun í land­inu. Við í Sjálf­stæð­is­flokknum lítum svo á að við höfum tryggt frelsi í fjöl­miðlun á sínum tíma, sem ungu kyn­slóð­inni kann að finn­ast skrýtið. En það var þannig að það gat ekki hver sem er opnað útvarps­stöð. Það var einka­réttur rík­is­ins. En það dugir ekki til að búa til þetta frelsi ef starfs­skil­yrðin eru ekki tryggð á sama tíma. Það þarf að tryggja aðstæður þar sem frjálsir fjöl­miðlar geta þrif­ist. Sem stjórn­mála­maður verð ég að sýna því skiln­ing að manni sé veitt aðhald, en ég ætla ekk­ert að neita því að mér finnst það á köflum ganga út í öfgar hjá RÚV. Það blasir oft við þegar maður á í sam­skiptum við starfs­fólk á rík­is­fjöl­miðl­inum að það brennur fyrir ein­hvern mál­stað og maður hefur það á til­finn­ing­unni að stundum verði sá mál­staður fag­mennsku í umfjöllun mála­flokks­ins yfir­sterk­ari. Það er kannski bara mann­legt og maður skilur það, en auð­vitað líður mér stundum þannig að fréttir séu ekki hlut­lausar.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Bjarna og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum